Fréttablaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 48
Íbúar Fårø voru vanir að svara upp í tunglið þegar aðkomufólk spurði hvar Ingmar Bergman byggi. „Annars hefði hann aldrei fengið frið,“ segir leigubílstjórinn sem ekur mér norður eftir eyj- unni. Á svona degi er hægur vandi að átta sig á því hvers vegna leik- stjórinn hreiðraði hér um sig. Hvítar strendur breiða úr sér og gráa Gotlandsféð vappar um í grösugum haga. Nú þegar Ingmar er genginn á vit formæðra sinna er ekkert sem heldur aftur af leigubílstjóranum. „Sko, þarna bjó hann,“ segir hann allt í einu og bendir í átt að afleggjara sem ligg- ur niður að sjó. Þar á milli trjánna leynist þá húsið sem birst hafa loftmyndir af í fjölmiðlum að undanförnu. blöðin fjölluðu ítarlega um Bergman um leið og kallið kom. Fjallað var um feril hans og ekki bara kvikmyndir, bækur og leikrit, heldur líka eiginkonurnar sex og börnin níu. „Konurnar hans Bergmans“, og er þá bæði átt við dætur og fyrrverandi eiginkonur, drifu sig til Fårø eftir að fréttist af andlátinu en Liv Ullman náði þó að hitta Ingmar áður en hann skildi við. Hún fann á sér hvað var í aðsigi og var ekki lengi að panta þyrlu. Allt eins og í góðu drama; fyrirboðar, dauðvona kóngur og grátandi konur. fengu eftirmæli hjá alvörukónginum, samstarfsmönn- um Ingmars og aðdáendum, eins og Woody Allen sem aldrei hefur jafnað sig eftir að hafa séð Harriet Andersson spranga um bera í Sommaren med Monika. Svíar fylgdust vel með því hvernig útlendingar minntust Ingmars. Fyrst barst þaðan aðeins lof en svo tóku menn að færa sig upp á skaft- ið. Í New York fannst pistlahöf- undur sem sagði myndir Ingmars útataðar í tilgerð og var sérlega uppsigað við dauðann í Sjöunda innsiglinu. Þá vatt almenningur sér fram á sjónarsviðið og viður- kenndi í lesendadálkum að hann „fattar inget af hans filmer“. viku eftir lát Ingmars hafa blöðin snúið sér að frægu pari í forræðisdeilu og vangaveltur um greftrunarstað leikstjórans hafa lognast út af. Leigubílstjórinn á heldur ekki von á að neitt breytist á Fårø þótt Ingmars njóti ekki lengur við. „Líklega á árlega Berg- manshátíðin þó eftir að falla niður,“ tekur hann þó fram. „Hann var vanur að taka þátt í henni en gat ekki mætt síðast vegna slapp- leika.“ Samt grunar mig að nú eigi einmitt fleiri slíkar hátíðir eftir að spretta upp þótt kannski verði þær ekki allar á Fårø. Þar sem er góð list er jú alltaf hátíð. Jag är döden ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 3 60 69 0 8/ 07 Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 420-6600 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Toyota Austurlandi Miðási 2 Egilsstaðir Sími: 470-5070 www.toyota.is Hilux - Enn betri með stærri vél Nú er ekki hægt að standast það lengur að setjast undir stýri á Hilux Double Cab, fjallkóngi, vinnuþjarki og borgarbarni sem enginn stenst snúning við íslenskar aðstæður. Þú færð ekki styrk og öryggi á hagstæðara verði. Nýr Hilux er með öflugri 3,0 lítra D-4D dísilvél (common rail turbo). Hann er rýmri, hljóðlátari, rennilegri og getur tekist á við mun kröfuharðari verkefni en áður. Láttu reyna á'ann Verð 2.990.000 kr.* *Gildir fyrir Hilux Double Cab

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.