Fréttablaðið - 08.08.2007, Side 48
Íbúar Fårø voru vanir að svara upp í tunglið þegar aðkomufólk
spurði hvar Ingmar Bergman
byggi. „Annars hefði hann aldrei
fengið frið,“ segir leigubílstjórinn
sem ekur mér norður eftir eyj-
unni. Á svona degi er hægur vandi
að átta sig á því hvers vegna leik-
stjórinn hreiðraði hér um sig.
Hvítar strendur breiða úr sér og
gráa Gotlandsféð vappar um í
grösugum haga. Nú þegar Ingmar
er genginn á vit formæðra sinna
er ekkert sem heldur aftur af
leigubílstjóranum. „Sko, þarna bjó
hann,“ segir hann allt í einu og
bendir í átt að afleggjara sem ligg-
ur niður að sjó. Þar á milli trjánna
leynist þá húsið sem birst hafa
loftmyndir af í fjölmiðlum að
undanförnu.
blöðin fjölluðu ítarlega
um Bergman um leið og kallið
kom. Fjallað var um feril hans og
ekki bara kvikmyndir, bækur og
leikrit, heldur líka eiginkonurnar
sex og börnin níu. „Konurnar hans
Bergmans“, og er þá bæði átt við
dætur og fyrrverandi eiginkonur,
drifu sig til Fårø eftir að fréttist af
andlátinu en Liv Ullman náði þó að
hitta Ingmar áður en hann skildi
við. Hún fann á sér hvað var í
aðsigi og var ekki lengi að panta
þyrlu. Allt eins og í góðu drama;
fyrirboðar, dauðvona kóngur og
grátandi konur.
fengu eftirmæli hjá
alvörukónginum, samstarfsmönn-
um Ingmars og aðdáendum, eins
og Woody Allen sem aldrei hefur
jafnað sig eftir að hafa séð Harriet
Andersson spranga um bera í
Sommaren med Monika. Svíar
fylgdust vel með því hvernig
útlendingar minntust Ingmars.
Fyrst barst þaðan aðeins lof en svo
tóku menn að færa sig upp á skaft-
ið. Í New York fannst pistlahöf-
undur sem sagði myndir Ingmars
útataðar í tilgerð og var sérlega
uppsigað við dauðann í Sjöunda
innsiglinu. Þá vatt almenningur
sér fram á sjónarsviðið og viður-
kenndi í lesendadálkum að hann
„fattar inget af hans filmer“.
viku eftir lát Ingmars hafa
blöðin snúið sér að frægu pari í
forræðisdeilu og vangaveltur um
greftrunarstað leikstjórans hafa
lognast út af. Leigubílstjórinn á
heldur ekki von á að neitt breytist
á Fårø þótt Ingmars njóti ekki
lengur við. „Líklega á árlega Berg-
manshátíðin þó eftir að falla
niður,“ tekur hann þó fram. „Hann
var vanur að taka þátt í henni en
gat ekki mætt síðast vegna slapp-
leika.“ Samt grunar mig að nú eigi
einmitt fleiri slíkar hátíðir eftir að
spretta upp þótt kannski verði þær
ekki allar á Fårø. Þar sem er góð
list er jú alltaf hátíð.
Jag är döden
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
3
60
69
0
8/
07
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
www.toyota.is
Hilux - Enn betri með stærri vél
Nú er ekki hægt að standast það lengur að setjast undir
stýri á Hilux Double Cab, fjallkóngi, vinnuþjarki og
borgarbarni sem enginn stenst snúning við íslenskar
aðstæður. Þú færð ekki styrk og öryggi á hagstæðara verði.
Nýr Hilux er með öflugri 3,0 lítra D-4D dísilvél (common
rail turbo). Hann er rýmri, hljóðlátari, rennilegri og getur
tekist á við mun kröfuharðari verkefni en áður.
Láttu reyna á'ann
Verð 2.990.000 kr.*
*Gildir fyrir Hilux Double Cab