Fréttablaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 6
– og farsælan vinnudag! Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Eigum einnig til notaðar vel meðfarnar TASKI gólfþvottavélar, nýkomnar úr 3ja ára rekstrarleigu frá viðskiptavinum RV. Tækifæri til að gera ótrúlega góð kaup. Einstaklega lipur vél sem hentar á svæðum þar sem aðkoma er þröng. Vél sem kemur á óvart! Reiknuð afköst 1250m2/klst Lítil og nett, en afkastamikil vél með innbyggðu hleðslutæki sem hindrar afhleðslu rafgeyma. Reiknuð afköst 1935m2/klst Á tilb oði í ágú st 20 07 U ni qu eR V 07 07 02 Örverur sem voru fastar í ísnum á Suðurskautsland- inu í hundrað þúsund ár hafa lifnað við á ný eftir að vísinda- menn gáfu þeim hlýju og næringu í tilraunastofu. Það eru vísindamenn við Rutgers-háskólann í Washington í Bandaríkjunum sem gerðu tilraunir með örverurnar, sem allar eru á aldrinum hundrað þúsund til átta milljón ára. Elstu örverurnar sýndu ekki mikil lífsmerki, en þær „yngstu“ reyndust býsna sprækar komnar inn úr kuldan- um. Örverur lifna við eftir ísdvöl Læknar fjarlægðu blýant úr höfuðkúpu 59 ára gamallar þýskrar konu á dögun- um, en blýanturinn hafði verið fastur í höfði hennar í 55 ár. Þetta kom fram hjá Sky News. Margaret Wegner hrasaði þegar hún var fjögurra ára gömul og blýantur sem hún hélt á fór í gegnum húðina og inn í höfuð hennar. Til allrar hamingju slapp heili hennar við skaða. Blýanturinn orsakaði blóðnasir og höfuðverki hjá Margaret. Enginn læknir hafði þorað að fjarlægja blýantinn þar til nú. Læknum tókst að fjarlægja átta sentimetra bút, en of áhættusamt þótti að fjarlægja oddinn. Skáru blýant úr höfði konu Fréttablaðið heldur yfirburðastöðu sinni á íslenskum dagblaðamarkaði samkvæmt nýrri lestrarkönnun Capacent. Með- allestur landsmanna mælist nú 63 prósent á hvert tölublað. Þetta er örlítið minni lestur en mældist í síðustu könnun, sem var framkvæmd í vor, en þá lásu um 65 prósent Íslendinga Fréttablaðið. Lestur Morgunblaðsins og Blaðs- ins helst einnig svipaður milli kannana. Morgunblaðslestur fer úr 43 prósentum í 44,4 prósent, en lestur Blaðsins lækkar úr 38,2 pró- sentum í 36,2 prósent. Langt á eftir hinum dagblöðunum kemur DV, en blaðið mælist með 7 pró- senta meðallestur á tímabilinu. Yfirburðastaða Fréttablaðsins á dagblaðamarkaði er enn grein- ilegri ef litið er til lesenda á aldr- inum 18 til 49 ára. Meðallestur á hvert tölublað í þeim hópi mælist 63,8 prósent hjá Fréttablaðinu, en 36,4 prósent hjá Morgunblaði. Lestur Fréttablaðs umfram Morgunblað er því 75 prósent. Í sama aldurshópi er Blaðið með 31,1 prósents lestur og er umframlestur Fréttablaðs því 105 prósent. Það þýðir að meira en tvöfalt fleiri Íslendingar á aldrin- um 18 til 49 ára lesa Fréttablaðið en Blaðið. DV mælist svo með 6,7 pró- senta meðallestur í þessum hópi og telst umframlestur Frétta- blaðsins á DV því 859 prósent. Könnun Capacent var gerð í síma og nær yfir tímabilið 1. maí til 31. júlí. Niðurstöðurnar eru byggðar á svörum 2.455 manna á aldrinum 12 til 80 ára. Yfirburðir Fréttablaðsins Fiskur sem veiddur er samkvæmt íslensku fiskveiðistjórnunarkerfi getur fengið vottun frá þriðja aðila um að hann sé veiddur á sjálfbæran hátt. Þannig geta framleiðendur fengið sérstakt merki á umbúðir sem staðfesta að framleiðslan sé samkvæmt íslenskum kröfum. Þetta kom fram í um- hverfislýsingu um íslenskar fiskveiðar sem var kynnt í gær. Að yfirlýsingunni stóðu Fiskifélag Íslands, sjávarútvegsráðuneytið, Hafrannsóknastofnun og LÍÚ. Vinnuhópur hefur verið skipaður sem mun skilgreina virkni íslenska fiskveiðistjórn- unarkerfisins. Framleiðendum verði svo kleift að fá vottun frá þriðja aðila um að vara þeirra sé framleidd eftir þessu kerfi. Erlendir fiskmarkaðir hafa kraf- ist þess í auknum mæli að fá stað- festingu á að íslenskir fiskistofn- ar séu nýttir með ábyrgum hætti, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá Fiskifélaginu. „Þetta undirstrikar ásetning okkar að sýna með afgerandi hætti að íslenskur sjávarútvegur sé stundaður með ábyrgum hætti,“ sagði Einar K. Guðfinns- son sjávarútvegsráðherra við undirritunina. „Það hefur verið talsverður þrýstingur að taka upp einhvers konar umhverfis- merki í íslenskum sjávarútvegi.“ Íslenskur fiskur fær vottun Brimborg afhenti fyrirtækinu Bugt ehf. fyrstu bílaskífurnar á fimmtudag. Skífurnar gilda sem stöðumælar í miðborg Reykjavíkur fyrir svokallaða visthæfa bíla, sem eyða litlu eldsneyti og losa út lítið magn koltvísýrings í andrúms- loftið. Bugt, sem er lítið smávörufyrir- tæki, keypti þrjá Citroen C1 hjá Brimborg og flokkast þeir sem visthæfir bílar. Fimm bílaumboð bjóða upp á visthæfa bíla og geta eigendur slíkra bifreiða sótt bílaskífur þangað. Fyrstu bílaskíf- urnar afhentar 350 gestir og hátt í tvö hundruð fyrirlesarar verða á 26. norræna sagnfræðingaþinginu sem hefst í Háskóla Íslands í dag og stendur til 12. ágúst. Þingið var síðast haldið hér á landi árið 1987, segir Einar Hreinsson sagnfræðingur, sem er framkvæmdastjóri þingsins. Einar segir að meðal efnis verði fyrirlestrar um lagalega stöðu samkynhneigðra á Norður- löndum frá árinu 1842 þegar samkynhneigð hætti að vera dauðarefsing í Noregi, hvort jafnaðarstefnan sé liðin undir lok á Norðurlöndum og eins verði rætt um hleranir á Norðurlöndun- um í kalda stríðinu. Heimasíða þingsins er: www.nordisk.hi.is. Hefst í Háskóla Íslands í dag Unnið hefur verið að því á þessu ári að koma á GSM- sambandi á hringveginum og fimm fjölförnum fjallvegum. Því verki á að ljúka í janúar á þessu ári. Vegirnir eru Fróðárheiði á Snæfellsnesi, Fagridalur, sem er leiðin milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar, Fjarðarheiði, sem er milli Egilsstaða og Seyðis- fjarðar, Steingrímsfjarðarheiði á Vestfjörðum og Þverárfjalls- vegur, sem er milli Skagastrandar og Sauðárkróks. Auk þess verður sendirinn sem kominn er í gang í Flatey settur upp í mastur þar í nóvember og mun hann ná til sunnanverðra Vestfjarða. Talið er að hann nái alveg frá Kleifaheiði á Barðaströnd og að Reykhólum. Þó má búast við að ýmsir vegakaflar sem liggja innarlega í fjörðunum á þessu svæði verði utan GSM- sambandsins. Útboð er síðan hafið um að GSM- væða yfir 800 kílómetra svæði á landinu. Því útboði lýkur í október og að sögn Jóhannesar Tómassonar hjá samgönguráðuneytinu er vonast til að þær framkvæmdir geti hafist í kringum áramót. Það verkefni á að taka tvö ár. Síminn ætlar að setja upp nýtt langdrægt kerfi sem mun leysa NMT-kerfið af hólmi í lok næsta árs. Það kerfi verður með sama dreifikerfi og NMT og næst því um allt land, þar með talið uppi á jöklum og einnig út á mið. Það verður með háhraðatengingu svipaðri ADSL-kerfinu og verður hægt að senda myndir og önnur gögn með því kerfi eins og í öðrum þriðju kynslóðar farsímakerfum. Allur hringvegurinn með GSM í janúar Hringvegurinn og fimm fjölfarnir fjallvegir utan hans verða komnir með GSM- samband í janúar. Útboð er hafið í seinni hluta áfangans um að GSM-væða vegakerfið. Búist er við að því verki verði lokið á tveimur árum. Fórst þú í ferðalag um helgina? Hefur þú ekið undir áhrifum? Bresk heilbrigðis- yfirvöld sögðu í gær miklar líkur til þess að gin- og klaufaveiki, sem greinst hefur í nautgripum í sunnanverðu Englandi síðustu daga, hefði borist frá rannsóknar- stöð þar sem bóluefni gegn veikinni hefur verið framleitt. Bresk stjórnvöld stækkuðu í gær einangrunarsvæðið eftir að gin- og klaufaveiki hafði greinst í fleiri nautgripum. Smit líklega úr rannsóknarstöð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.