Fréttablaðið - 08.08.2007, Qupperneq 21
Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri ferða-
skrifstofunnar Bjarmalands, stendur fyrir
septemberferð til Moskvu í samstarfi við félagið
MÍR (Menningartengsl Ísland og Rússlands).
„Siglt er frá Moskvu eftir Volgu til borgarinnar Ast-
rakhan við Kaspíahaf,“ segir Haukur Hauksson,
framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Bjarma-
lands. „Að því hafi liggja Íran, Kasakstan, Túrkmen-
istan, Aserbaídsjan og Rússland. Þetta er langt ferða-
lag eða 2.700 kílómetrar, sem jafngildir því ef siglt
væri frá Íslandi til Portúgals.“
Að sögn Hauks tekur ferðin fjórtán daga og hefst
10. september með flugi til Frankfurt am Main í
Þýskalandi. Þar verður farið í um þriggja klukkutíma
skoðunarferð með rútu á meðan beðið er eftir fluginu
til Moskvu. Þar, og það sem eftir er ferðarinnar, verð-
ur farið í skoðunarferðir um hverja borg undir leið-
sögn Hauks, sem er lærður leiðsögumaður.
„Við byrjum á að skoða Moskvu þar sem 15 milljón-
ir manna búa, en í seinni tíð er hún orðin að gríðar-
legri menningar-, sögu- og viðskiptamiðstöð,“ segir
Haukur. „Jafnframt því er hún orðin að miðpunkti
fyrir samgöngur Samveldisríkjanna eins og þau heita
nú.
Svo verður farið til Kasan, höfuðborgar Tatarstans,
Tataralýðveldis í Rússneska sambandsríkinu. Síðan
til Simbírsk, sem áður hét Úljanovsk, þar sem Lenín
fæddist og safn um hann heimsótt. Auk þess verða
merkilegar söguminjar skoðaðar í borginni Volgo-
grad eða Stalíngrad eins og hún kallaðist áður.“
Að auki er boðið upp á fullt fæði og ýmsa afþrey-
ingu um borð í skipinu sjálfu, sem er 200 metra langt
og tekur 260 farþega. „Félagslífið er í blóma, einkum
á kvöldin,“ útskýrir Haukur. „Þá eru, auk veitinga-
staða, barir og diskótek höfð opin og hægt að skella
sér á dansleik. Svo er staðið fyrir hinum og þessum
skemmtunum. Þannig að enginn ætti að þurfa að láta
sér leiðast í ferðinni.“
Hægt er að afla sér frekari upplýsinga um ferðina
á heimasíðunni www.austur.com eða með því að hafa
samband við Hauk í síma 848-4429.
Á slóðir Stalíns