Fréttablaðið - 08.08.2007, Side 22

Fréttablaðið - 08.08.2007, Side 22
Barnabílstólar eru nauðsynleg- ur öryggisbúnaður fyrir börn. Bílaleigan Hertz og Bílaleiga Akureyrar í samstarfi við Sjóvá Forvarnahúsið og N1 festu nýlega kaup á nokkrum tuga Britax- barnabílstóla. Með þessu á að bæta öryggisbúnað barna í útleigu- bílum og mæta aukinni kröfu um notkun öryggisbúnaðar fyrir börn í bílum. Í samstarfi við Sjóvá Forvarna- húsið hafa í vor og sumar verið haldin námskeið meðal starfs- manna Bílaleigu Akureyrar og Hertz bílaleigunnar til að auka öryggi erlendra ökumanna auk þess sem Sjóvá Forvarnahúsið hefur yfirfarið þá barnabílstóla sem notaðir eru og ráðlagt um val á nýjum stólum. Þá mun Forvarna- húsið leiðbeina starfsmönnum um meðferð barnabílstóla á næstunni og gera sérstakar notkunarleið- beiningar fyrir erlenda ferða- menn sem þeir fá afhentar með barnabílstólunum svo tryggja megi að stólarnir séu rétt spenntir í bílinn. Fjöldi barnabílstóla hjá bílaleig- unum hefur verið aukinn enda var ný reglugerð um búnað barna í bílum gefin út en sú reglugerð gerir auknar kröfur um verndar- búnað barna. Aukin áhersla lögð á öryggi barna í bílum Það er ekki sjálfgefið að öku- menn kunni að þrífa bíla þó að þeir nái ökuprófi. Sumir skilgreina bílþvott sem eins konar listgrein og alls ekki er sama hvernig staðið er að því verki. Metnaðarfullir bílaþvotta- sérfræðingar mæla með því að forðast notkun kústa á bílaþvotta- stöðvum þar sem þeir geta haft í sér sand og óhreinindi sem rispa lakkið á bílnum. Best er að væta bílinn með vatni, þrífa hann að innan meðan vatnið leysir upp óhreinindin, sápuþvo tvisvar, skola vel og bera svo jafnvel hrað- bón yfir í lokin. Mikilvægt er að enda alltaf á því að hreinsa svæðið í kringum hjólbarða og þar sem tjara safnast, upp því ellegar er hætt við því að þeim óhreinindum sé dreift yfir bílinn. Kanntu bíl að þrífa? Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.