Fréttablaðið - 08.08.2007, Page 38
Hljómsveitin The Viking Giant
Show, sem er hugarfóstur Heiðars
Arnar Kristjánssonar úr Botn-
leðju, hefur gefið út nýtt lag sem
nefnist The Cure. Tvö ár eru liðin
síðan síðasta lag hljómsveitarinn-
ar, Party at the White House, kom
út við góðar undirtektir. Fjallaði
það á kaldhæðnislegan hátt um
þátttöku Bandaríkjamanna í Íraks-
stríðinu en nýja lagið fjallar aftur
á móti um náunga sem leitar lækn-
inga við samkynhneigð sinni.
Lögin verður að öllum líkindum
að finna á fyrstu plötu The Viking
Giant Show sem er væntanleg í
haust. Hafa Heiðar og félagar
þegar bókað sig á Iceland Air-
waves-hátíðina í október þar sem
platan verður kynnt enn frekar.
Nýtt lag frá Heiðari Erni
Hljómsveit Emils
Svanängen, Loney, Dear,
er ein af þeim sveitum sem
spila á Airwaves-hátíðinni
í október. Steinþór Helgi
Arnsteinson hitti Svíann
knáa í Færeyjum á dögunum
og tók hann tali.
Emil er frá Jönköping og hóf feril
sinn með því að taka upp alla sína
tónlist sjálfur sem hann seldi síðan
á netinu og á tónleikum. Fljótlega
myndaðist spenna í kringum
sveitina í sænsku tónlistarsenunni
og eftir þrjár plötur sem hljóm-
sveitin gaf út sjálf gerði Loney,
Dear plötusamning við Seattle-
plötufyrirtækið Sub Pop. Fyrr á
þessu ári kom síðan út platan
Loney, Noir. Sub Pop þykir með
þeim virtari í bransanum og hefur
gefið út merkar sveitir á borð við
Low, Nirvana, Modest Mouse,
Sebadoh og CSS svo fáeinar séu
nefndar. „Ég hafði ekki heyrt um
þá [Sub Pop] áður en þeir höfðu
samband við mig. Ég komst samt
fljótlega að því að þetta var nokkuð
stórt dæmi,“ útskýrir Emil rólega.
Tónlistarsenan í Svíþjóð hefur
hlotið mikið lof undanfarin ár en
Emil veit ekki hvort það sé honum
til ábata að vera frá Svíþjóð, þar
sem hann hafi engan samanburð.
Hann segir jafnframt að hann sé
mun vinsælli utan föðurlandsins og
því vilji hann breyta. „Núna erum
við samt orðin ágætlega þekkt
hljómsveit í Svíþjóð en til dæmis
höfum við ekki spilað á einni
einustu tónlistarhátíð þar í ár. Það
hlýtur að segja manni eitthvað.“
Spurður hvort hann kjósi samt
ekki fremur að vera lítill í Svíþjóð
og stór utan hennar en stór í
Svíþjóð og óþekktur utan hennar,
svarar Emil því neitandi. „Ég er
ekki mikið fyrir ferðalög, eða jú,
kannski ferðlög, en ekki að vera að
túra úti um allt. Fyrir mér væri
þægilegra að spila meira í Svíþjóð.
Ég er samt ánægður eins og staðan
er núna. Mér finnst bara yndislegt
að vera heima en núna á ég í raun
hvergi heimili.“
Emil tekur samt skýrt fram að
Íslendingur þurfi engu að kvíða
fyrir komu sveitarinnar hingað til
lands. Hann og hans hljómsveit bíði
mjög spennt eftir ferðinni til
Reykjavíkur. „Við verðum búin að
vera í góðu fríi fyrir tónleikana og
ég hlakka mikið til. Þetta er sá
atburður sem ég hlakka mest til á
árinu.“
Jaðarpopparinn Lee Hazlewood er
látinn, 78 ára að aldri.
Hazlewood er þekktastur fyrir
samstarf sitt við Nancy Sinatra,
dóttur Franks Sinatra, en hann
samdi meðal annars smellinn
hennar These Boots Are Made for
Walking og flest hin lögin sem hún
gerði vinsæl. Hazlewood söng
einnig með kynþokkafullri
barítónrödd sinni inn á þrjár
plötur með henni.
Hazlewood fæddist í Oklahoma
í Bandaríkjunum árið 1929. Hann
ferðaðist mikið alla ævi og bjó
víða. Meðal annars bjó Hazlewood
lengi í Svíþjóð þar sem hann tók
upp nokkrar plötur, þar á meðal
eina þekktustu plötu sína, Cowboy
in Sweden.
Þrátt fyrir velgengni og sam-
starfið við Nancy Sinatra seldust
sólóplötur Hazlewoods illa. Þær
voru margar orðnar ófáanlegar
þegar Steve Shelley úr Sonic
Youth tók hann upp á sína arma
fyrir átta árum og endurútgaf
margar plötur hans hjá útgáfufyr-
irtæki sínu Smells Like Records.
Hazlewood naut í kjölfar þess
mikillar virðingar innan jaðar-
tónlistarsenunnar síðustu árin
sem hann lifði og hóf að gefa út
tónlist á ný eftir tæpra tveggja
áratuga útgáfuhlé. Síðasta plata
hans kom út í nóvember á síðasta
ári, eftir að hann hafði greinst
með krabbamein, og ber hið
skemmtilega nafn Cake or
Death.
Fjölskylda hans biður þá sem
vilja minnast hans um að styrkja
Hjálpræðisherinn.
Lee Hazlewood er allur
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
TRANSFORMERS kl. 5 - 8 -11
TRANSFORMERS LÚXUS kl. 5 - 8 -11
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10
THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10
EVAN ALMIGHTY kl. 4 - 6
DIE HARD 4.0 kl.8 - 10.45
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
BECOMING JANE kl. 5.30 - 8 - 10.30
PLANET TERROR kl. 5.20 - 8 - 10.40
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl.6.30 - 8.30 - 10.30
DEATH PROOF kl. 5.20 - 8 - 10.40
7
14
16
16
7 PLANET TERROR kl. 8 - 10
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 6 - 8 - 10
THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 6
16
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
TRANSFORMERS kl. 6 - 9
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 8 - 10
THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 6
ÞEIRRA STRÍÐ.
OKKAR HEIMUR
Sýnd í
EIN BESTA ÁSTARSAGA ALLRA TÍMA BYGGÐ
Á ÆVI RITHÖFUNDARINS JANE AUSTEN.
BAKVIÐ ALLAR GÓÐAR ÁSTARMYNDIR
ER FRÁBÆR SAGA
TRANSFORMERS kl. 4, 7 og 10-POWER 10
PLANET TERROR kl. 8 og 10.20 16
SIMPSONS enskt tal kl. 4, 6, 8 og 10 L
SIMPSONS íslenskt tal kl. 4 og 6 L
www.laugarasbio.is - Miðasala á
- bara lúxus
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
Sími: 553 2075
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
ÁLFABAKKA
BLIND DATING kl. 4 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 2 - 4 - 6 L
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 8 L
OCEAN´S 13 kl. 10:10 7
ROBINSON... M/- ÍSL TAL kl. 2 L
TRANSFORMERS kl. 2 - 5 - 8 - 11 10
TRANSFORMERS kl. 2 - 5 - 8 - 11
NANCY DREW kl. 6 - 8:10 - 10:20 7
GEORGIA RULES kl. 5:30 - 8 - 10:30 7
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 - 11 10
EVAN ALMIGHTY kl. 2 L
DIGITAL
VIP
KRINGLUNNI
TRANSFORMERS kl. 4 - 7 - 10 10
NANCY DREW kl. 5:50 - 8 7
GEORGIA RULES kl. 10:10 7
HARRY POTTER 5 kl. 4 - 7 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 4 L
KEFLAVÍK
TRANSFORMERS kl. 5 - 8 - 11 7
SIMPSONS M/- ENSK TAL kl. 6 - 8 L
NANCY DREW kl. 10 7
DIGITAL
HJ. MBL
www.SAMbio.is 575 8900
AKUREYRI
TRANSFORMERS kl. 5 - 8 - 11 10
HARRY POTTER 5 kl. 5 10
NANCY DREW kl. 8 - 10 7
ÞEIRRA STRÍÐ. OKKAR HEIMUR
STÆRSTA MYND SUMARSINS
FRÁ MICHAEL BAY OG STEVEN SPIELBERG
DIG
ITAL
mynd
og hljó
ðgæði
í SA
Mbí
óun
um
Álfa
bakk
a og
Krin
glun
ni