Fréttablaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 10
Atli Gíslason bauð vinum og ættingj-
um í heljarinnar teiti í gær í tilefni sex-
tugsafmælis síns sem er reyndar í dag.
Hófið var haldið í Þrastalundi í Gríms-
nesi, þeim hlýlega stað. „Ég varð að
halda upp á þetta afmæli því alþjóð var
tilkynnt um það á kosninganótt í vor,“
segir Atli hlæjandi en bætir síðan við
að það hafi aldrei staðið til að fara í
felur með tímamótin. „Ég hélt líka upp
á fimmtugsafmælið mitt og fannst það
mjög skemmtilegt. Það er svo ótrúlega
gaman að gleðjast með fólki. Við svona
tækifæri hittir maður bæði nána vini og
ættingja og líka fólk sem maður hittir
ekki oft. Svo fær maður á tilfinninguna
að maður sé einhverjum einhvers virði.
Að einhverjum þyki vænt um mann og
það er gott fyrir sálina.“
Fleira er eftirsóknarvert við afmæli
að mati Atla. Til dæmis það að eldast.
Hvað skyldi honum þykja gott við það?
„Reynslan,“ svarar hann að bragði. „Þá
gerist það að meira vinnur vit en strit.
Slíkt kemur með reynslunni.“
Þegar haft er orð á að Atli hafi valið
fallegan stað fyrir veisluna segir hann.
„Já, Þrastalundur er yndislegur stað-
ur á öllum árstíðum. Ég á sumarbústað
þarna rétt hjá og hef gengið mikið um
svæðið. Þetta er feiknarlega gott skíða-
göngusvæði þegar snjór er. Manni líður
hálfpartinn eins og í norskum aðstæð-
um. Skógurinn er svo mikill enda er
búin að vera ræktun þarna í gangi í 70-
80 ár. Þetta var vinsæll staður á stríðs-
árunum. Þarna var offiserahús sem
brann til grunna og nú stendur ekkert
eftir nema hliðið.“
Í afmælinu var bæði andlegt og lík-
amlegt fóður. „Ég var með flinkan mann
að stjórna fjöldasöng,“ segir Atli. „Hann
heitir Jarl og er úr Eyjum. Ótrúlega öfl-
ugur. Veislustjórinn Sveinn Magnús-
son er Eyjamaður líka. Heiða úr Unun
og maður hennar Elvar tóku nokkur
lög, þau kalla sig Helvar. Stelpubandið
Vicky Pollard flutti svo pönk og rokk.
Söngkonan í því er barnabarn vina-
fólks míns. Síðan var dansiball þar sem
hljómsveitin Þjóðviljinn spilaði fyrir
mig nostalgíumúsík.“
Þegar Atli bauð til veislunnar óskaði
hann eftir að afmælisgjöfum yrði sleppt
en samtökin Stígamót væru látin njóta
tímamótanna. Hér kemur skýring á því.
„Ég hef lengi verið að vinna í sambandi
við kynbundið ofbeldi, vegna reynslu
kvenna sem ég hef verið að reyna að
aðstoða. Slíkt ofbeldi gengur svo þvert
gegn réttlætiskennd minni að það hálfa
væri nóg. Menn sleppa refsilaust trekk
í trekk frá þessum skelfilega verknaði,
sem er hreint einkalífsmorð og hefur
áhrif, ekki bara á þolandann, heldur
alla nánustu fjölskyldu, jafnvel börn og
barnabörn, ef ekkert er að gert.
Aðstoðin sem konunum býðst er hjá
Stígamótum. Þar er mikil þekking til
staðar. Ég á allt af öllu og því benti ég
á reikning Stígamóta eða gjafir í ein-
hverju formi. Ég tala nú ekki um ef
fleiri karlmenn færu að taka þátt í bar-
áttunni en nú er. Það myndi gleðja mig
ósegjanlega.“
Borað eftir heitu vatni í fyrsta sinn
„Ég trúi því að engin heimspeki
komist hjá því að taka ýtrasta
tillit til náttúruvísindanna í
kenningum sínum.“
Ástkær bróðir,
Óli H. Karlsson
(f. 1935), frá Siglufirði, Snorrabraut 32,
andaðist á líknardeild Landspítala á Landakoti laugar-
daginn 28. júlí. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landspítala-háskóla-
sjúkrahúsi.
Ragnar Karlsson
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Skírnis Jónssonar
bónda á Skarði,
er andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánu-
daginn 23. júlí.
Hjördís Sigurbjörnsdóttir
Sigurbjörn Ingi Skírnisson Kristín Tryggvadóttir
Jón Bragi Skírnisson Sigurbjörg Helga Pétursdóttir
Jóhann Skírnisson Freydís Ágústa Halldórsdóttir
Bessi Skírnisson Eiríksína Þorsteinsdóttir
Hannes Trausti Skírnisson Katrín Eymundsdóttir
Skafti Skírnisson Kristbjörg Lilja Jóhannesdóttir
Sigrún Skírnisdóttir
Sigurlaug Skírnisdóttir Víðir Ársælsson
Guðrún Elfa Skírnisdóttir Kjartan Guðmundsson
Hjördís Sunna Skírnisdóttir Magnús Þór Helgason
Brynjólfur Gunnarsson Anna Birna Sæmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Þorbjörg Eyjólfsdóttir
Hrafnistu Hafnarfirði, áður Noðurbraut 1,
lést fimmtudaginn 2. ágúst. Jarðarförin fer fram frá
Víðistaðakirkju mánudaginn 13. ágúst kl. 13.00.
Sólveig Björgvinsdóttir Jóhannes Páll Jónsson
Eyjólfur Björgvinsson Elsa Rúna Antonsdóttir
Guðfinna Björgvinsdóttir Sigurður Emilsson
barnabörnin og fjölskydur þeirra.
Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir og
fyrrum eiginmaður og tengdasonur,
Birgir Árni Þorvaldsson
lést þriðjudaginn 7. ágúst. Jarðarförin verður auglýst
síðar.
Logi Birgisson
Kjartan Birgisson
Viktoría Sól Birgisdóttir
Benjamín Árni Birgisson
Óðinn Guðmannsson
Þorvaldur Signar Aðalsteinsson Aðalheiður Ingólfsdóttir
Ingólfur Örn Eggertsson Kristín Örlygsdóttir
Þorvaldur Þorvaldsson Erna Jónsdóttir
Adrea Margrét Þorvaldsdóttir
Sigrún Rósa Kjartansdóttir
Kjartan Tryggvason
Sólrún Stefanía Benjamínsdóttir
50 ára afmæli
Einar
Þorvarðarson
framkvæmdastjóri
Handknattleikssambands Íslands, og besti
landsliðsmarkvörður okkar til þessa, er fimmtugur í dag.
sti
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Ástkær móðir mín, amma okkar og
langamma,
Inga S. Jónsdóttir
lést miðvikudaginn 8. ágúst á elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund. Áður til heimilis á Miklubraut 84.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sjöfn Jóhannesdóttir
Inga og Íris Reynisdætur
Jóhannes Reynisson Marýna Lytvyn
Malena og Elísa Þórisdætur
MOSAIK