Fréttablaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 27
Laus störf hjá Marel
www.marelfoodsystems.com
Umsóknarfrestur er til 22. ágúst. Vinsamlegast sækið um á heimasíðu Marel,
www.marel.is. Nánari upplýsingar veitir Hörður Valgeirsson, framleiðslustýringu,
í síma 563 8000, hordurv@marel.is.
Marel ehf er dótturfélag Marel Food Systems
sem er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki í fararbroddi
í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og
lausna fyrir matvælaiðnað. Hjá fyrirtækinu
starfa yfir 2100 starfsmenn í 5 heimsálfum,
þar af um 370 manns á Íslandi
Hvernig vinnum við í framleiðslu Marel?
Í framleiðslu Marel ehf er unnið í sellum eða
litlum, sjálfstæðum liðum. Sellan ber ábyrgð á
að uppfylla kröfur og væntingar viðskiptavina
um gæðavöru, pökkun og útskipun búnaðar á
afhendingardegi. Í sellunni er lögð er áhersla á að
fólk vinni sjálfstætt og að því sé treyst fyrir sínu
vinnusviði. Góð samvinna og liðsandi skipta miklu
máli. Við leggjum einnig áherslu á símenntun.
Hvað segir starfsfólkið?
„Þú færð ekki betri vinnuaðstöðu”
Snyrtilegt og öruggt
Gott mötuneyti
Barnaherbergi
„Ég nota íþróttaaðstöðuna mikið”
Heilsuvernd í fyrirrúmi og íþróttastyrkir
Tveir íþróttasalir, tækjasalur, Boot Camp, skvass,
hlaupahópur og yoga
„Góður starfsandi og góðir vinnufélagar”
Virkt félagslíf
Öflugt starfsmannafélag
Þrjú sumarhús
„Manni er treyst til að gera hlutina”
Sjálfstæð vinnubrögð
Fjölbreytt verkefni
Sveigjanleiki í vinnutíma
Okkur vantar starfsfólk í framleiðslu:
Laghent fólk
Við leitum að fólki sem er laghent og tilbúið að læra. Um er að ræða störf í
snyrtilegu starfsumhverfi við samsetningu á tækjum og búnaði. Við veitum
góða þjálfun og leitum að áhugasömum einstaklingum sem vilja vinna á
fjölbreyttum og góðum vinnustað.
Rafvirkjar
Rafvirkjar sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum við frágang rafbúnaðar
fyrir framleiðsluvörur Marel. Þeir sjá einnig um stillingu og prófun tækja og
búnaðar.
Málmiðnaðarmenn
Málmiðnaðarmenn vinna við smíði úr ryðfríu stáli, samsetningu og frágang
tækja og búnaðar. Við leitum að áhugasömum og hæfileikaríkum málm -
iðnaðarmönnum og veitum þjálfun í smíði samkvæmt gæðakröfum Marel.
Störfin henta jafnt konum sem körlum.