Fréttablaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 96
OMXI15 var 8.280,24, þegar ég setti upp nýju 55.000 króna
hlaupaskóna með metangashælpúð-
um og títaniljafjöðrun, og Nasdaq
var 2.547,33 þegar ég hafði hlaupið
tíu kílómetra og fannst ég jafnná-
lægt hruni og friðuðu grásleppu-
hjallarnir við Ægisíðu. Ég staulaðist
niður í fjöru og tók pásu á bak við
stein. Púlsinn var 178. Ég hef ekki
verið nógu duglegur í ræktinni. Það
er vika í maraþonið. Ég verð að fá
meiri stamínu. Liðið í Þeirrabanka
fær ekki að njóta þeirrar ánægju á
laugardaginn að sjá stjórnarfor-
mann Sjálfsmínbanka síga niður
eftir nokkra kílómetra á metangas-
skóm með títaniljafjöðrun.
þorði ekki að hlaupa meira. Ég
tók það rólega á bak við steininn,
náði púlsinum niður, hringdi í einkó
og bað hann að koma á Róvernum.
Ég dundaði mér við að horfa yfir á
Bessastaði á meðan ég beið. Ég sá
að Dorrit var komin út að hengja
upp þvott.
var fullt af fólki að æfa fyrir
maraþonið á Ægisíðunni. Jafnvel
Baddi í ÓP-fjárfestingum kom
gjögtandi í skræpóttum sportgalla,
maður sem verður andstuttur af því
að taka upp flösku af Romanée
Conti. En heilbrigður lífsstíll geng-
ur fyrir öllu öðru. Baddi tölti þetta
sisona með þjáningarsvip og hand-
frjálsan búnað. Það er svo mikil
ókyrrð á markaðnum. Ég ætla að
hlaupa með handfrjálsan í fyrra-
málið.
hringdi í dag einhver kven-
maður frá borginni og spurði hvort
ég væri ekki til í að hafa opið hús á
Smáragötunni á menningarnótt og
bjóða gestum og gangandi upp á
vöfflur. Ég er ennþá með verk í
bringspölunum eftir hláturskastið.
Heldur fólk virkilega að maður,
sem er áberandi í tekjublöðum
Frjálsrar verslunar og Mannlífs,
fari að standa persónulega yfir
vöfflujárni og hleypa inn á sig alls
konar organískt trúuðu menningar-
pestóliði sem er með það á heilan-
um að það þurfi að „glæða mannlíf í
miðbænum“. Ég veit ekki hvað er
að gerast í Reykjavík. Þegar ég var
strákur átti ég bók um „pönnuköku-
kónginn“. Núna á maður heima í bæ
þar sem er „vöffluborgarstjóri“.
Hjallastefnan grefur svona um sig.
er skrýtið að þessum
tekjublöðum ber ekki saman um
hvað ég hafði í tekjur í fyrra. Það
munar 25 árslaunum kennara á
mánuði. Bæði blöðin segjast með
rétta tölu. Ég kann ekki að reikna út
hvað ég var með í tekjur. Vildi bara
að endurskoðandinn gæfi örugg-
lega meira upp á mig á framtalinu
en við héldum að stjórnarformaður-
inn í Þeirrabanka vildi láta gefa upp
á sig. Svona misræmi er óþolandi.
Ég læt Sjálfsmínbanka neita blað-
inu með lægri töluna um lengri
greiðslufrest.
Billjónsdagbók
12.8.