Fréttablaðið - 12.08.2007, Page 27

Fréttablaðið - 12.08.2007, Page 27
Laus störf hjá Marel www.marelfoodsystems.com Umsóknarfrestur er til 22. ágúst. Vinsamlegast sækið um á heimasíðu Marel, www.marel.is. Nánari upplýsingar veitir Hörður Valgeirsson, framleiðslustýringu, í síma 563 8000, hordurv@marel.is. Marel ehf er dótturfélag Marel Food Systems sem er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki í fararbroddi í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og lausna fyrir matvælaiðnað. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 2100 starfsmenn í 5 heimsálfum, þar af um 370 manns á Íslandi Hvernig vinnum við í framleiðslu Marel? Í framleiðslu Marel ehf er unnið í sellum eða litlum, sjálfstæðum liðum. Sellan ber ábyrgð á að uppfylla kröfur og væntingar viðskiptavina um gæðavöru, pökkun og útskipun búnaðar á afhendingardegi. Í sellunni er lögð er áhersla á að fólk vinni sjálfstætt og að því sé treyst fyrir sínu vinnusviði. Góð samvinna og liðsandi skipta miklu máli. Við leggjum einnig áherslu á símenntun. Hvað segir starfsfólkið? „Þú færð ekki betri vinnuaðstöðu” Snyrtilegt og öruggt Gott mötuneyti Barnaherbergi „Ég nota íþróttaaðstöðuna mikið” Heilsuvernd í fyrirrúmi og íþróttastyrkir Tveir íþróttasalir, tækjasalur, Boot Camp, skvass, hlaupahópur og yoga „Góður starfsandi og góðir vinnufélagar” Virkt félagslíf Öflugt starfsmannafélag Þrjú sumarhús „Manni er treyst til að gera hlutina” Sjálfstæð vinnubrögð Fjölbreytt verkefni Sveigjanleiki í vinnutíma Okkur vantar starfsfólk í framleiðslu: Laghent fólk Við leitum að fólki sem er laghent og tilbúið að læra. Um er að ræða störf í snyrtilegu starfsumhverfi við samsetningu á tækjum og búnaði. Við veitum góða þjálfun og leitum að áhugasömum einstaklingum sem vilja vinna á fjölbreyttum og góðum vinnustað. Rafvirkjar Rafvirkjar sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum við frágang rafbúnaðar fyrir framleiðsluvörur Marel. Þeir sjá einnig um stillingu og prófun tækja og búnaðar. Málmiðnaðarmenn Málmiðnaðarmenn vinna við smíði úr ryðfríu stáli, samsetningu og frágang tækja og búnaðar. Við leitum að áhugasömum og hæfileikaríkum málm - iðnaðarmönnum og veitum þjálfun í smíði samkvæmt gæðakröfum Marel. Störfin henta jafnt konum sem körlum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.