Fréttablaðið - 12.08.2007, Síða 13
FÓLKIÐ Í BÆNUM
WWW.LAUGAV.IS LAUGAV@LAUGAV.IS
HAGSMUNASAMTÖK VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU VIÐ LAUGAVEG
BASK
LAUGAVEGI 95
FRIIS-COMPANY
LAUGAVEGI 55
RÁÐHÚSBLÓM
BANKASTRÆTI 4
RE YK JA VI K ST OR
LA UG AV EG I 86 -94 , S: 51 1-20
SIA
LAUGAVEGI 86-94
LIGGALÁ
LAUGAVEGI 67
COUTURE
LAUGAVEGI 86-94
EVA
LAUGAVEGI 89
MONA
LAUGAVEGI 66
REYKJAVÍK
PIZZA COMPANY
LAUGAVEGI 81
G-STAR
LAUGAVEGI 86-94
GALLERÍHÚSIÐ
LAUGAVEGI 91
66° NORÐUR
BANKASTRÆTI 5
VINNUFATABÚÐIN
LAUGAVEGI 76
GK REYKJAVÍK
LAUGAVEGI 92
MAIA
LAUGAVEGI 86-94
[Tískuhús á tveimur hæðum]
[Tískuvöruverslun]
[Fylgihlutir]
[Tískuverslun]
[Tískuverslun
með eigin hönnun]
[Gott verð, gæði, og
persónuleg þjónusta.]
NAKTI APINN
BANKASTRÆTI 14
[Tískuvöruverslun]
VÍNBERIÐ
LAUGAVEGI 43
[Blómabúð]
[Veitingastaður]
[Barnavörur][Tískuverslun]
[Tískuverslun]
[Tískuverslun]
[Húsbúnaður]
[Tískuverslun]
WWW.LAUGAV.IS // LAUGAV@LAUGAV.IS Visa og Landsbankinn eru bakhjarlar Fólksins í bænum.
LENGRI HELGI
FRÁ 13 TIL 17
Á LAUGAVEGI
H
Í VERSLUNUM OKKAR
VERGI Á LANDINU ERU FLEIRI
OPIÐ Í DAG
VERSLANIR OG VEITINGASTAÐIR EN
VIÐ LAUGAVEG
nes og ég man að ég var svo hissa
á því að enginn í vagninum skyldi
taka eftir mér, ég hafði nú einu
sinni verið í útvarpinu!
Nú skal brátt ganga fyrir menning-
una. Hvað viljið þið helst gera og
sjá á menningarnótt? Hvaða menn-
ingarframleiðslu skammist þið
ykkar mest fyrir eigið dálæti á?
Ágúst: Sjarminn við menningar-
nótt er svo sem bara að rölta í
bænum og fara á milli. Hitta fólk
og fara á kaffihús. Menningin er
oft á tíðum svolítið vanmetin á
Íslandi. Það eimir enn svolítið eftir
af því viðhorfi að styrkir til menn-
ingar séu eitthvert snobb eða prjál.
Sem er auðvitað mikill misskiln-
ingur því það er löngu sannað að
styrkir til menningar skila líka
peningum í kassann – fyrir þá sem
hafa einhverjar áhyggjur af því.
Þorsteinn: Það er alveg útilokað
að skipuleggja nokkurn hlut því þú
kemst varla lönd eða strönd. En
það er gaman að allt fær að vera
þarna með – harmonikkuleikurinn,
keramíkmálunin og rokktónleik-
arnir. Annars held ég að ég sé orðin
það þroskaður að ég er hættur að
skammast mín fyrir það sem ég
hef gaman af. Ef ég ætti að nefna
eitthvað þá er það helst sú iðja mín
að fara á heimaleiki með Fram.
Það er svakaleg reynsla nú um
stundir – eitthvað sem alla jafna á
að vera meint fjölskylduskemmt-
un. Það er þögn í bílnum á leiðinni
heim og dæturnar niðurbrotnar í
aftursætinu.
Ágúst: Mér varð það á að segja
mínum vinahópi að ég hefði orðið
hrifinn af kvikmyndinni Titanic.
Það féll í gríðarlega grýttan jarð-
veg og ég veit ekki hvert menn
ætluðu að fara þegar ég sagðist
hafa farið tvisvar á hana í bíó. Það
er eitthvað sem ég átti augljóslega
að skammast mín fyrir. Ég er líka
mikill aðdáandi Meg Ryan-mynda
og maður þykir kannski ekkert
sérstaklega fínn pappír að fíla
þær.
En hvað með dægradvölina tekju-
blöðin. Lesið þið þau og skammist
þið ykkar fyrir það? Eru tekjur
Íslendinga þeirra einkamál?
Þorsteinn: Ég las þessi blöð í
fyrra en er ekki búinn að lesa þau í
ár og ég verð að segja að ég er allt-
af jafn hissa á umræðunni um að
þetta megi ekki. Þetta eru opinber
gögn og tölur og ég næ ekki þeim
rökum að þetta sé eitthvað ljótt.
Samt finnst manni þetta líka vera
nett plebbalegt að við séum að
birta þetta ekki bara í einu blaði í
ár, heldur tveimur.
Ágúst: Menn eru líka mislauna-
háir eftir því hvort blaðið þú lest.
Ég er launahærri í Mannlífi en
Frjálsri verslun. Fæ heilum 20.000
krónum meira borgað í laun.
Þorsteinn: Skatturinn er orðinn
svo klár að það þýðir ekkert leng-
ur að vera að skrifa á sig þessi 50.-
60.000 eins og tíðkaðist hjá sumum
stórgrósserunum hér um árið.
Ert þú flokksbundinn einhverjum
stjórnmálaflokki, Þorsteinn, og
hefur þú einhvern tímann unnið
við fjölmiðla, Ágúst Ólafur? Í hvaða
ráðuneyti myndirðu setja Þorstein,
Ágúst, ef þú fengir frjálsar hendur,
og hvers konar starf innan fjöl-
miðlaheimsins myndirðu koma
Ágústi í, Þorsteinn?
Þorsteinn: Nei, ég hef aldrei
verið flokksbundinn. Það næsta
sem ég hef komist flokksstarfi er
að vera sendill í happdrætti Sjálf-
stæðisflokksins, níu ára gamall,
og fékk svo það ábyrgðarstarf
þegar ég var tíu ára að vera send-
ill á skrifstofu flokksins. Þar fékk
ég mína fyrstu launaávísun, hjá
Sigurði Hafstein. Það er svona
það næsta sem ég hef komist pól-
itík og reyndar held ég að það sem
ég heyrði þarna á göngunum hafi
veitt mér innblástur – hvað mátt
einstaklingsframtaksins varðar.
Ágúst: Ég vann eitt sumar á
Degi, á Reykjavíkurskrifstof-
unni.
Þorsteinn: Hjá Stefáni Jóni?
Ágúst: Nei, hann var nú hættur
þegar ég var, Elías Snæland var
ritstjórinn. Og mér finnst mjög
heppilegt, nú þegar ég er kominn
út í stjórnmálin, að hafa prófað að
sitja í að minnsta kosti smátíma
hinum megin við borðið. En setja
Þorstein í ráðuneyti segirðu. Ég
myndi held ég setja hann í nýstofn-
að menningarmálaráðuneyti –
sem ég væri glaður að sjá – eða þá
bara í gamla góða menntamála-
ráðuneytið. Hann myndi væntan-
lega efla innlenda dagskrárgerð.
Þorsteinn: Ég held að Ágúst
yrði góður fréttastjóri því menn
sem komið hafa að fjölmiðlum og
verið í pólitík eru mjög skipulagð-
ir. Þeir eru fljótir að hugsa sem og
að sjá aðalatriðin og aukaatriðin.
Góður fréttastjóri þarf að sjá
nokkra leiki fram í tímann, geta
brugðist strax við, fengið hug-
myndir og framkvæmt.
Ágúst: Það er aldrei að vita.