Fréttablaðið - 12.08.2007, Side 62
Við leitum að duglegu, skapgóðu og
þjónustulunduðu fólki í afgreiðsluna:
Um vaktavinnu er að ræða
− bæði fullt starf og hlutastarf
Umsóknir sendist á netfangið anna@jsb.is
Nánari upplýsingar í
síma 581 3730
Viltu vinna
á hressum og líflegum stað
með konum?
Um starfið:
Starfið felst í sölu, ráðgjöf og þjónustu við
viðskiptavini
Menntun eða einhver reynsla af
pípulögnum æskileg
Reynsla úr sambærilegu starfi kostur
Spennandi
framtíðarstörf
Umsóknir berist til starfsmannastjóra Húsasmiðjunnar,
Guðrúnar Kristinsdóttir, atvinna@husa.is, fyrir
20. ágúst n.k. Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu
Húsasmiðjunnar www.husa.is. husa.is.
Húsasmiðjan hf. er stærsti
söluaðili byggingarvara á
Íslandi og eitt af 25 stærstu
fyrirtækjum landsins.
Húsasmiðjuverslanir eru 21 á
landsvísu.
Í verslunum okkar höfum við
á boðstólum yfir 100.000
vörutegundir.
Hjá Húsasmiðjunni starfa að
jafnaði um 1000 manns á
öllum aldri.
Við leggjum mikla áherslu á
að starfsmenn eigi þess kost
að eflast og þróast í starfi.
www.husa.is
Pípulagnaverslunin Skútuvogi
Viljum ráða áhugasama sölu- og
afgreiðslumenn í pípulagnaverslun
okkar Skútuvogi
Húsasmiðjan
hvetur alla, á
hvaða aldri sem
er,sem vilja starfa
hjá traustu og
góðu fyrirtæki til
að sækja um.
Fyrir alla
Neytendastofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan lög-
fræðing til starfa á Neytendaréttarsviði stofnunarinnar.
Um er að ræða faglega krefjandi starf þar sem reynir á
gerð úrskurða, umsjón lögfræðilegra málefna, afgreiðslu
erinda og frumkvæði við framfylgd og þróun laga sem
falla undir starfssvið Neytendaréttarsviðs. Um er að ræða
margvísleg áhugaverð verkefni er varða löggjöf á sviði
viðskipta og eftirlit með viðskiptaháttum hér á landi og
innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Helstu verkefni eru:
• Umsjón og afgreiðsla stjórnsýsluerinda
• Undirbúningur og gerð úrskurða
• Upplýsingagjöf til viðskiptamanna, s.s. neytenda,
fyrirtækja, o.fl.
• Þátttaka í þróun laga og reglna um viðskiptahætti
Menntun:
• Lögfræðipróf frá innlendum háskóla
Framhaldsnám á sviði lögfræði eða viðskipta er kostur
Almenn þekking og hæfniskröfur:
• Frumkvæði
• Skipulags- og samskiptahæfni
• Góð tungumálakunnátta er kostur
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningum Bandalags
háskólamanna. Vakin er athygli á 20. gr. laga nr 96/2000,
um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Umsóknir óskast sendar Neytendastofu, Borgartúni 21,
105 Reykjavík eða rafrænt á póstfang stofnunarinnar,
postur@neytendastofa.is, eigi síðar en 27. ágúst 2007.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veita Tryggvi Axelsson for-
stjóri og Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri Neytendaréttar-
sviðs, í síma 510 1100. Netföng: tryggvi@neytendastofa.is
og thorunn@neytendastofa.is.
Neytendaréttarsvið skal stuðla að því að neytendur hafi
sem mestar upplýsingar og yfirsýn yfir markaðinn, efla
neytendafræðslu, taka við ábendingum og vinna gegn
óréttmætum viðskiptaháttum.
LÖGFRÆÐINGUR
Á NEYTENDARÉTTARSVIÐI
Borgartúni 21 • 105 Reykjavík • Sími 510 1100 • Bréfasími 510 1101
postur@neytendastofa.is • www.neytendastofa.is