Fréttablaðið - 12.08.2007, Qupperneq 66
Afgreiðsla og skjalaskráning
Ríkisskattstjóri leitar að kraftmiklum og jákvæðum
einstaklingi til starfa við afgreiðslu viðskiptavina og
þjónustu innanhúss. Helstu verkefni eru móttaka
viðskiptavina, afgreiðsla skattkorta, skjalaskráning
og símvarsla.
Starfið krefst lipurðar í samskiptum, þjónustulundar,
tungumálakunnáttu, frum kvæðis og ná kvæmni í vinnu -
brögðum. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af
sambærilegum stöfum, reynslu af vinnu við tölvur og
hafi lokið stúdentsprófi.
Vinnutími er kl. 8-16. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst. Laun taka mið af kjarasamningi
ríkisins við SFR.
Umsóknir er hafi að geyma ítarlegar upplýsingar m.a.
um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað er máli
skiptir, sendist til ríkisskattstjóra á tölvu póst fangið
umsoknir@rsk.is eða með bréfi til RSK, Laugavegi 166,
150 Reykjavík, merkt starfsmanna stjóra, eigi síðar en
16. ágúst 2007.
Upplýsingar um starfið gefur Inga Hanna Guð munds -
dóttir starfsmannastjóri RSK í síma 563 1202.
Öllum umsókn um verður svarað þegar ákvörðun hefur
verið tekin um ráðningu.
Upplýsingar um embættið má finna á vefsíðu þess www.rsk.is.
Leikskólar Kópavogs
Í leikskóla er gaman.........
..
Fræðsluskrifstofa
Kópavogs
Kópavogsbær óskar að ráða leikskólakennara og fl . starfsfólk í leikskóla Kópavogs.
Um er að ræða heilar stöður og hlutastöður. Kópavogsbær rekur 16
leikskóla og nýr leikskóli tekur til starfa nú í ágúst. Leitast er við að búa sem best að
leikskólunum og þeim sem þar dvelja, börnum og starfsmönnum.
Leitað er að fólki sem er tilbúið til að taka þátt í metnaðarfullu og skemmtilegu
leikskólastarfi og fjölbreyttu þróunarstarfi þar sem starfsgleði er í fyrirrúmi.
Fólk á öllum aldri og af báðum kynjum er velkomið til starfa og leikskólar
kópavogs bjóða þroskaða einstaklinga sérstaklega velkomna.
Leikskólakennarar! Kynnið ykkur nýjar samþykktir Kópavogsbæjar í tengslum við bókanir í
kjarasamningar Félags leikskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga.
Kynnið ykkur leikskóla Kópavogs á heimasíðu Kópavogs www.kopavogur.is
þar sem jafnframt er hægt að sækja um störfi n í gegnum job.is.
Upplýsingar um störfi n og sérkjör gefur leikskólafulltrúi
í síma 570-1600 eða netfang: sesselja@kopavogur.is
og leikskólastjórar hvers leikskóla.
Fólk á öllum aldri óskast til starfa
Skólaskrifstofa
S E L T J A R N A R N E S B Æ R
A
ug
l.
Þó
rh
ild
ar
2
20
0.
37
3
Grunnskóli Seltjarnarness
Mýrarhúsaskóli
Starfsfólk vantar
í Skólaskjól
• Almenn störf
• Vinna með börnum með sérþarfir
Skólaskjól er lengd viðvera fyrir nemendur
í 1. til 4. bekk í Mýrarhúsaskóla á
Seltjarnarnesi.
Við óskum að ráða fólk til almennra starfa
og til vinnu með börnum með sérþarfir.
Þetta eru skemmtileg og gefandi störf á
góðum vinnustað.
Upplýsingar veitir Rut Bjarna forstöðu-
maður Skólaskjóls í síma 5959 200 eða
822 9123, rutbj@seltjarnarnes.is
Náms- og starfsráðgjafi við Háskólann á Bifröst
Helstu verkefni
Náms- og starfsráðgjöf til nemenda skólans
og væntanlegra nemenda; bæði er um
einstaklingsráðgjöf og hópráðgjöf að ræða.
Námskeiðahald tengt vinnulagi og
viðhorfum í námi.
Umsjón með sérúrræðum vegna fötlunar
eða námsörðugleika.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði náms- og starfsráðgjafar,
meistaragráða æskileg.
Reynsla af náms- og starfsráðgjöf til fullorðinna.
Reynsla af námskeiðahaldi.
Góð samstarfsfærni.
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
Möguleiki er á húsnæði á staðnum.
Við háskólann eru starfandi þrjár
deildir á grunn- og meistarastigi;
viðskipta-, laga- og félagsvísinda-
deild.
Auk þess eru starfandi símenntunar-
deild og frumgreinadeild sem er árs
undirbúningur fyrir nám í
háskólanum. Nemendur eru um
1000 talsins í stað- og fjarnámi.
Í háskólaþorpinu búa nemendur og
starfsfólk ásamt fjölskyldum sínum.
Þar er ört vaxandi samfélag fólks á
öllum aldri.
Háskólinn á Bifröst er vinnustaður
sem heldur jafnréttissjónarmið í
heiðri og því hvetjum við bæði karla
og konur til að sækja um starfið.
Laust er til umsóknar starf náms- og starfsráðgjafa við Háskólann á Bifröst.
Um 80% stöðu er að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Erla Hrönn Vilhjálmsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og sálfræðingur við
skólann, s: 433 3000 eða netfang: erla@bifrost.is.
Umsóknir berist á sama netfang.
Starfið felst einkum í uppsetningu vélstýringa í vinnuvélar, kennsla og viðhald á þeim sem
og öðrum búnaði sem fyrirtækið selur og þjónustar. Búnaðurinn byggir ýmist á GPS, laser
eða alstöðvatækni. Viðkomandi starfsmaður hefur samskipti við viðskiptavini fyrirtækisins
varðandi þjónustu og leiðbeiningar um notkun tækja og hugbúnaðar.
Boðið er upp á starf á fullkomnasta rafeindaverkstæði á sínu sviði hérlendis, við hlið hæfustu manna
með áratuga reynslu í þjónustu á ofangreindum búnaði. Gott vinnuumhverfi og nýjasti tækjabúnaður
er til staðar. Námskeið í þjónustu á búnaðinum eru haldin bæði hérlendis og erlendis.
Leitað er að drífandi laghentum og þjónustulunduðum einstaklingi sem er fljótur að tileinka
sér nýjungar og getur unnið undir miklu álagi á álagstímum. Gott vald á ensku og tölvukunnátta
er skilyrði. Til greina koma t.d. vélvirkjar, rafvirkjar, rafeindavirkjar eða aðrir með áþekka reynslu en ekki
er slík menntun skilyrði. Vinnutími er milli kl. 08-17 á reyklausum vinnustað
Upplýsingar um starfið veitir Jón Tryggvi í síma 5105100.
Umsóknir sendist á tölvupósti á póstfangið jon@ismar.is ,
ásamt upplýsingum um umsækjanda fyrir 23. ágúst 2007.
Ísmar, sem var stofnað 1982, er sérhæft fyrirtæki á sviði hvers konar mælingatækni s.s. GPS, Alstöðvum
eða Lasertækni. Fyrirtækið býður heildarlausnir fyrir verktaka, verkfræðistofur, jarðvísindamenn og
ýmis ríkisfyrirtæki á sviði mælitækni og vélstýringa auk umferðaröryggisbúnaðar fyrir löggæslu,
sveitafélög, verktaka o.fl.
Ísmar er umboðsaðili fyrir framleiðendur sem eru leiðandi á sínu sviði í heiminum.
Ísmar óskar eftir að ráða tæknimann á verkstæði.