Tíminn - 06.01.1981, Síða 9
Þriöjudagur 6. janúar 1981
9
Tónleikar Eddu
Erlendsdóttur
Edda Erlendsdóttir pianóleik-
ari hélt tónleika aö Kjarvals-
stöðum laugardaginn 3. janúar.
Edda byr og starfar i Paris, og
liklega eru þetta fyrstu einleiks-
tónleikar hennar hér i Reykja-
vik siöan hún lauk námi — fyrir
nokkrum árum var hún hér á
ferö meö knéfiðlara, en þá var
ég ekki i bænum.
Ekki þótti mér blása byrlega
um aösókn á pianótónleika á
laugardaginn: 10 stiga frost,
noröangjóla, ófærð i bænum og
benzi'nleysi, en Reykvikingar
létu slíkt hvergi aftra sér, og
Edda lék fyrir troðfullu húsi.
Fyrst vil ég leyfa mér aö taka
ofan fyrir henni fyrir það hug-
rekki að bjóöa oss upp á jafn-
strembiö efni og þá Schönberg,
Webern og Berg: 20. aldar tón-
list heyrist hér alltof sjaldan —
Webern heyrði ég einmitt siðast
aö Kjarvalsstöðum fyrir 5 árum
— en sitthvaö bendir til þess, aö
talsveröur jarövegur sé fyrir
hana hér nú orðið.
Efnisskráin skiptist i tvennt:
fyrir hlé lék Edda verk eftir
hina þrjá ofangreindu höfunda,
sem hvert um sig telst einkenn-
andi fyrir eitthvert skeið i
þroska listamannsins, en eftir
hlé fylgdu Schubert og Schu-
mann.
Eftir Arnold Schönberg (1874-
1951) lék Edda 3 pianóstykki óp.
11. Schönberg fæddist i Vinar-
borg og fékk litla sem enga
formlega tónlistarmenntun.
Hann vann fyrir sér meö þvi aö
útsetja fyrir aöra, var um tima i
Berlin en snéri aftur til Vinar
sem kennari og hljómsveitar-
stjóri. Þá gerðust þeir Webern
og Berg nemendur hans. Ariö
1921 gaf hann Ut bók sina um
Tólftónatæknina, sem hefur ljáö
honum sess meö Debussy og
Siravinský sem einn af áhrifa-
mestu tónbyltingarmönnum
aldarinnar. Arið 1925 gerðist
hann prófessor I Berlin, en þeg-
ar nazistar komust til valda fór
hann um Spán til Bandarikj-
anna og endaði sem yfirmaöur
tónlistardeildar Kaliforniuhá-
skóla i Los Angeles (frá 1936).
Schönberg tók hrööum breyt-
ingum i list sinni: hann byrjaöi
undir sterkum áhrifum frá
Wagner og Mahler, en fljótlega
Edda Erlendsdóttir pfanóleik-
ari.
TONLIST
Sigurður
Steinþórsson
riöluöust bönd tóntegunda meö
öllu — frá þvi timabili eru hin 3
pianóstykki óp. 11 sem nú voru
leikin. Úr þessarri fullkomnu
upplausn þróaöist svo hiö nýja
kerfi, tólftónakerfiö, sem hann
fylgdi kórrétt I fyrstu, en vék
síöarfráá ýmsa lund, unz hann
endaði meö þvi aö taka ofan og
hneigja sig djúpt fyrir fortiö-
inni.
Webern (1883-1945) fæddist
einnig i Vinarborg, og var einn
af nemendum Schönbergs.
Hann vann fyrir sér alla ævi
sem hljómsveitarstjóri i ýmsum
leikhUsum, liföi spart og fékkst
viö tónsmiöar sinar, sem voru
aldrei leiknar. Aöeins einu sinni
komst Webern á blaö — á
dauöastundinni, en ameriskur
hermaöur skauthann i misgrip-
um. Webem tók upp tólftóna-
tækni Schönbergs, og náöi á
henni fullkomnum tökum, en
Variasjónir óp.27, semEdda Er-
lendsdóttir lék, samdi hann á
siðustu árum sinum, þá hann
var laus orðinn Ur öllum viöj-
um: tæknin orðin aö náttúrlegu
áhaldi andans.
Siöast „nUtimaverkanna” var
Sónata óp. 1 eftir Alban Berg
(1885-1935). Sónötuna samdi
hann meðan hann var nemandi
Schönbergs, og á góöri leiö meö
aö losna undan áhrifum Schu-
manns og Mahlers. Frægasta
verk Bergs er annars óperan
Wozzeck, sem byggö er á leik-
ritinu Woyzeck eftir Buchner,
sem var leikið i Þjóöleikhúsinu
um áriö. Sú sýning misheppnað-
ist fyrir eindæma klaufaskap,
og nú mætti Islenzka óperan
taka þetta upp og snúa ósigri i
sigur.
Eftir hlé lék Edda verk 19.
aldar manna, „rómantisku”
tónskáldanna Schuberts og
Schumanns. Aö visu voru áöur-
nefnd 20. aldar skáld vist engu
minna rómanti'sk, en þaö var þó
á annan hátt. Verk Schuberts
voru Sónata i A dúr óp. 120 og
Klavlerstiick DV 946, en eftir
Schumann Noveletta nr. 8 óp.
21. Nú þarf ekki lengur aö vitna i
bækur um Schubert, þvi Arni
Kristjánsson er nýbúinn að
birta afmæliserindi sitt um
hann i Andvara, en nóg tækifæri
gefur til aö masa um Schu-
mann.
Þessir tónleikar Eddu Er-
lendsdóttur voru i hæsta máta
ánægjulegir. Bæði var efnis-
skráin skemmtilega og óvenju-
iega saman sett, og svo spilar
hún alveg prýöilega. Afburöa
pianóleikur er sagöur krefjast
meiri vinnu og ögunar en flest
önnur mannleg starfsemi, og
þeirsem langt ná, eiga að baki
mikið strit og mikla hugsun.
Tónleikar sem þessir eru ekki
hristir fram Ur erminni, og
vafalaust er hver taktur og
hending þaulhugsuö og æfö. Mér
fannst listakonan sýna þama,
auk ágætrar tækni (sem I sjálfu
sér er forsenda), agaða túlkun á
verkunum, sem á sinn hátt eru
af tveimur heimum: safamikill
tilfinningahiti og ljóöræna 19.
aldar, og „tilfinnningaleg
abstraksjón” hinnar 20.
Ég óska Eddu Erlendsdóttur
til hamingju meö þessa tón-
leika.
4.1. Siguröur Steinþórsson
Hafrannsóknarstofnunin
Staða deildarstjóra við reiknideild Haf-
rannsóknarstofnunarinnar er laus til um-
sóknar.
Háskólapróf i Tölvunar- eða reiknifræði
æskileg. Skriflegar umsóknir sendist
stofnuninni fyrir 20. janúar 1981.
Hafrannsóknarstofnunin
Skúlagötu 4, simi 20240.
VARIST STEIN-
SKEMMDIR
OG LEKA
KLÆÐIÐ MEÐ BLIKKI. FRAMLEIÐUM
ALLAR GERÐIR BLIKKHLÍFA.
BIIKKVER
YD
Skeljabrekka 4 - 200Kópavogur - Sími: 44040.
BUKKVER
SELFOSSI
Hrísmýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040.
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti
Dagskólinn:
Nýnemar i dagskóla Fjölbrautaskólans i
Breiðholti á vorönn 1981 eiga að koma i
skólann mánudaginn 12. janúar kl. 13.00.
Þann dag og þriðjudaginn 13. janúar fer
fram sérstök kynning á skólanum og
skólastarf seminni.
Eldri nemendur i dagskóla Fjölbrauta-
skólans i Breiðholti komi i skólann mið-
vikudaginn 14. janúar kl. 9.00 til 17.00 að
fá stundatöflur. Kennsla samkvæmt
stundaskrá hefst fimmtudaginn 15. janú-
ar. Kennarafundur verður haldinn
fimmtudaginn 8. janúar og hefst kl. 9.00.
Kvöldskólinn:
Nemendur er stunda fullorðinsfræðslu við
Fjölbrautaskólann i Breiðholti á vorönn
1981 eiga að koma i skólann að velja
námsgreinar og gera stundarskrá þriðju-
daginn 20. jan. kl. 18.00 til 21.00. Kennsla
hefst næsta dag miðvikudaginn 21. janúar.
Skólameistari.
Útboð
Eskifjarðarbær auglýsir hér með útboð i
pipulagnir, múrverk og rafmagn i ný-
byggingu Grunnskóla. Verkið er boðið út i
einu lagi en heimilt að bjóða i einstaka
hluta þess.
Útboðsgögn fást á bæjarskrifstofu Eski-
fjarðar gegn skilatryggingu. Útboðsfrest-
ur er til 19. janúar. Tilboð verða opnuð á
bæjarskrifstofu Eskifjarðar mánudaginn
19. janúar kl. 14.
Bæjarstjóri.
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga við
Heilsuverndarstöð Reykjavikur eru
lausar til umsóknar:
Við barnadeild
Við heimahjúkrun
Við heilsugæslu i skólum.
Heilsuverndarnám æskilegt.
Skriflegar umsóknir berist hjúkrunarfor-
stjóra, sem jafnframt gefur nánari upp-
lýsingar i sima: 22400.
Heilbrigðisráð Reykjavikur.
Miðvikudag 7. janúar kl. 20:30
Sigríður Ella Magnúsdóttir
syngur lög eftir isiensk tónskáld m.a. Pál
ísólfsson, Árna Thorsteinsson, Sigfús
Einarsson, Emil Thoroddsen, Jórunni
Viðar, Karl O. Runólfsson o.fl. Undir-
ari er Ólafur Vignir Albertsson.
Verið velkomin
NORRÆNA
HUSIÐ