Fréttablaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 48
Réttlæti er eitt fegursta hugtak tungumálsins. Það getur samt
verið erfitt að festa reiður á merk-
ingu þess. Sérstaklega þegar sví-
virðilegir og óafturkræfir glæpir
eru framdir. Þegar ég var átta ára
gömul greyptist frétt í huga mér.
Hún sagði frá hrottalegu morði.
Svo mikið varð mér um að enn
man ég frásögnina nær orðrétta,
hvar ég var stödd, hvað ég var að
gera og hverjir voru í kringum
mig. Réttlætiskennd barna er
sterk en óþroskuð, ég er fegin að
ekki er stuðst við slíkar tilfinning-
ar þegar dæmt er í sakamálum.
mínum og mér lenti
saman fyrir skömmu eftir að við
höfðum verið að ræða um dóma og
réttlæti. Mér blöskraði að frænda
mínum, sem ég hef ávallt talið
góðan mann, virtist þykja eðlilegt
að halda uppi vörnum fyrir menn
sem hafa gerst sekir um svo viður-
styggilega og grimmilega hluti að
ég get vart ímyndað mér þá. Við-
horf hans þóttu mér svo fáránleg
að lengi á eftir henti ég gráglettn-
islegt gaman að því sem okkur
hafði farið á milli.
heimsótti ég þenn-
an sama frænda. Þegar ég gekk
inn svipaðist ég tilgerðarlega í
kringum mig og sagði hæðnislega:
„Nú, alveg var ég viss um að þú
hefðir smalað saman einhverjum
úrhrökum til að sannfæra mig um
gæsku þeirra.“ Frændinn hristi
höfuðið yfir hótfyndni minni. Ég
hafði þó rétt fyrir mér að ein-
hverju leyti, skömmu síðar kom
annar gestur. Ég heilsaði honum
með handabandi og áttaði mig á
því að þar var kominn maðurinn
sem bar ábyrgð á glæpnum sem
mér varð svo um að heyra af þegar
ég var barn. Hann hafði afplánað
dóm sinn, var aftur kominn út í
samfélagið, var ekkert ólíkur
öðrum þegnum þess, bar jafnvel
af sér góðan þokka og var að vinna
gott og þarft starf með föngum.
velti því fyrir mér hvort rétt-
lætinu hefði verið fullnægt frekar
ef hann væri hundeltur eða dauð-
ur. Slíkt viðhorf virðist vera mjög
útbreitt ef marka má nokkrar af
þeim umræðum sem fóru fram á
spjallvefjum í gær.
verður ekkert
frekar fullnægt þótt múgurinn
hefji kyndla á loft og heimti refs-
ingar að hætti Gamla testament-
isins, heldur þegar sakamenn
horfast í augu við glæpi sína og
reyna að bæta fyrir þá. Sem betur
fer virðast íslensk fangelsisyfir-
völd vinna með það að markmiði.
Morðingjar
og réttlæti