Fréttablaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 26
25. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR6
Dekur og afslöppun er nauð-
synlegt að fá annað slagið. Sér-
staklega í hraða hversdagsins.
Þá getur verið gott að komast
burtu frá ys og þys og fara í
góða heilsulind í útlöndum,
golf á Spáni eða siglingu um
heimsins höf með þjón á hverju
strái.
Heimsferðir bjóða upp á drauma-
daga þar sem hægt er að sameina
draumadaga á strönd í Dóminíska
lýðveldinu og siglingu um Karíba-
hafið með glæsiskipinu Costa Atl-
antica. Heimsflug stendur fyrir
leiguflugi til Dóminíska lýðveld-
isins og þaðan er siglt frá bænum
La Romana. Siglingin innifelur
fæði og húsnæði þar sem hægt er
að láta fara vel um sig í heilsulind
skipsins. Brottfarardagar frá La
Romana: 7. janúar, 28. janúar og 4.
febrúar.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á: www.heimsferdir.is
Lífsstíls- og heilsunámskeið í Kiss-
imee í Orlando miða að því að gefa
konum kost á að læra að láta sér
líða betur og líta vel út. Markmið-
ið er að einblína á sjálfa sig fjarri
ys og þys hversdagsleikans.
Miðað er að því að tengja and-
lega og líkamlega þætti með að-
stoð reyndra þjálfara. Gist er
í lúxusvillum í góða veðrinu í
Orlando.
Takmarkaður fjöldi þátttak-
enda er á hvert námskeið en næstu
námskeið hefjast 6. til 13. nóvem-
ber og 14. til 21. nóvember 2007.
Nánari upplýsingar eru að finna
á: www.lifsstillogheilsa.net
Sunnan Vindar eru með umboð
fyrir ferðaþjónustuna Sunflowers.
Þeir eru sérfræðingar í ferðaþjón-
ustu fyrir gesti sem vilja komast í
heilsulindir ásamt því að tengjast
Wellness-hótelum þar sem holl-
ustan er í fyrirrúmi. Meðal ann-
ars er hægt að komast á heilsu-
hótel í Austurríki, Ítalíu, Slóvakíu,
Slóveníu, Tékklandi og Ungverja-
landi.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á: www.sunnanvindar.com
Úrval Útsýn býður upp á golf
og heilsulind í aukaferð til Valle
del Este á Spáni í byrjun októb-
er. Bærinn stendur við Miðjarð-
arhafsströnd Spánar á milli borg-
anna Murcia og Almeria sem eru
í um tveggja tíma aksturfjarlægð
frá flugvellinum í Alicante.
Golfvöllurinn er átján holu og
mjög fjölbreyttur þar sem nýjar
þrautir leynast á hverjum degi til
að sigrast á. Völlurinn er við gróð-
ursælar hlíðar þar sem kylfing-
ar geta skellt sér í sund að loknu
golfi.
Ferðin verður farin 1.-7.októb-
er.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á: www.uu.is - rh
Munaður og vellystingar heimshorna á milli
Dansinn getur dunað undir pálmatrjám
í dekurreisum.
Heilsuhótel víða um heim bjóða upp á
líkamsræktartíma, slökun og jóga ásamt
góðum ráðum um mataræði.
Ástin blómstrar sem aldrei fyrr í
áhyggjuleysi dekurferða í annarri
heimsálfu.
Vinkonur hafa bara gott af því að komast í frí frá fjölskyldu, vinnu og heimili endrum
og eins.
Dekurferðir
– fyrir þá sem vilja hvíla sig og slaka á í fríinu
Golfið hjá Valle del Este á Spáni má
sameina við ferð í heilsulind.
fréttablaðið ferðalög