Fréttablaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 40
Miðnætursala á töluvuleiknum
Halo 3 fyrir Xbox 360-leikjatölv-
una hefst í BT í Skeifunni í kvöld.
„Þetta er stærsta stund Xbox-eig-
enda á Íslandi. Við höfum verið að
berjast fyrir því að fá eitthvað
gert með þessa tölvu því það er
enginn umboðsaðili fyrir
hana hérlendis,“ segir
skipuleggjandinn Örvar
G. Friðriksson. „Við
ætlum að tengja fullt
af vélum þar sem
fólk getur spilað í
klukkutíma áður
en leikurinn verð-
ur seldur. Þarna verða sérstak-
lega hannaðir stýrispinnar, sem
er eitthvað sem allir nördar
vilja eiga.“
Að sögn Örvars hefur Halo 3
fengið mjög góða dóma erlendis.
„Þetta er fyrstu
persónu skot-
leikur og það
besta við hann
er að þú getur
spilað söguna
með fjór-
um vinum
þínum þar sem hver og einn getur
verið heima hjá sér að spila.“
Viðburðurinn í kvöld verður
tekinn upp og sendur á netsíðuna
Youtube í þeirri von um að Xbox
Live, sem er hluti af Xbox 360, fái
brautargengi hér á landi. Til að
spila Xbox Live hérlendis þurfa
notendur að skrá sig með banda-
rískt eða breskt heimilifang sem
hentar þeim vitaskuld afar illa.
Ætlar framkvæmdastjóri Micro-
soft á Íslandi að mæta á stað-
inn til að sýna stuðning
sinn í verki.
Berjast fyrir X-box Live
Þýski dreifingaraðilinn MDC.int
hefur keypt alheimsréttinn á
Veðramótum, kvikmynd Guðnýjar
Halldórsdóttur. MDC dreifir kvik-
myndum, heimildarmyndum,
barnamyndum, teiknimyndum og
stuttmyndum og er áberandi á
öllum helstu kvikmyndahátíðum
heims. Útsendarar
kvikmynda-
hátíðarinn-
ar í Berlín, sem er ein af sex sterk-
ustu kvikmyndahátíðum í heimi,
sáu Veðramót á lokaðri sýningu í
Noregi fyrir skömmu, og útlit er
fyrir að hún verði valin á hátíðina í
febrúar á næsta ári.
Halldór Þorgeirsson, framleið-
andi kvikmyndarinnar og eigin-
maður Guðnýjar, sagði samninginn
hafa mikla þýðingu fyrir aðstand-
endur myndarinnar. „Þetta fyrir-
tæki dreifir mjög mörgum mynd-
um sem fara á Berlínarhátíðina
2008, og hefur sambönd inn á allar
sjónvarpsstöðvar. Það er þar sem
peningurinn er,“ sagði Halldór,
sem segir þetta skipta miklu.
„Maður getur farið á allar kvik-
myndahátíðir, en það gefur ekkert
í aðra hönd, og í sannleika sagt leið-
ast mér kvikmyndahátíðir núna,“
sagði hann og hló við. „Þegar við
gerðum myndina Kristnihald undir
Jökli var annaðhvort okkar hjóna
úti í Keflavík á tíu daga fresti í ár.
Það var mjög gaman, en nú vill
maður bara fara að sjá ávísun,“
sagði Halldór.
Verði Veðramót valin á Berlínar-
hátíðina verður hún ekki sýnd á
erlendri grundu fyrr en þá.
Samið um dreifingu Veðramóta
Heimildarmyndin Girls
Rock fjallar um sumarbúðir
í Bandaríkjunum þar sem
stelpur dvelja í eina viku við
að búa til hljómsveitir, semja
lög og spila svo á tónleikum í
vikulok fyrir mörg hundruð
manns. Þetta eru stelpur á
aldrinum átta til átján ára
sem margar hafa aldrei snert
hljóðfæri áður. Jarþrúður
Karlsdóttir ræddi við leik-
stjóra myndarinnar, sem
sýnd verður á Alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í Reykjavík.
„Þessar sumarbúðir eru frábærar.
Þær gera dásamlega hluti fyrir
stelpurnar. Það var svo skrítið að sjá
hvað þurfti lítið til svo þær yrðu
frjálsar. Ég horfði á þær blómstra
fyrir framan nefið á mér. Á einni
viku breyttust þær úr óframfærn-
um músum í töffara með sjálfs-
traust,“ segir Arne Johnson, annar
leikstjóra heimildarmyndarinnar
Girls Rock. „Sem karlmaður vildi ég
að ég hefði farið í þessar búðir og
lært það sem þær læra. Ég skipa
öllum vinum mínum sem eiga dætur
að senda þær í búðirnar.
Sumarbúðirnar voru stofnaðar árið
2001 sem hluti af útskriftarverkefni
stofnandans. Eftirspurnin hefur
verið svo mikil strax frá upphafi að
miklu færri komast að en sækja um.
Í dag er búið að opna útibú frá sum-
arbúðunum í Svíþjóð, Brasilíu og
víða um Bandaríkin. „Það kom í
raun öllum á óvart hve eftirspurnin
var mikil; hversu mikil þörf var á
einhverju svona fyrir stelpur. Þetta
er augljóslega eitthvað sem á erindi
við fólk núna.“
Arne segir að búðirnar hafi mjög
fljótlega farið að snúast um eitthvað
miklu meira en bara að fá stelpur til
að spila rokktónlist í nokkra daga.
Þetta fór að snúast um af hverju
stelpur stofna ekki hljómsveitir og
af hverju þeim finnast þær ekki
geta gert það sama og strákar. Upp
úr því var bætt við kennslu í sjálfs-
vörn og tímum þar semtekin var
fyrir líkamsímynd og það að skil-
greina sig ekki út frá útlitinu einu
saman.
Í myndinni er mikið talað um áreitið
sem dynur á stelpum frá fæðingu
um að til þess að samfélagið sam-
þykki þær verði þær að líta út á
ákveðinn hátt. „Í öllum auglýsing-
um, tónlistarmyndböndum og sjón-
varpsþáttum líta stelpur allar eins
út. Stelpur lesa það út úr þessu að til
þess að samfélagið samþykki þær
þurfi þær að falla inn í hópinn. Þær
þurfi að vera mjóar, sætar og skoð-
analausar. Þetta eru í raun eins og
þröngt mót sem öllum stelpum er
troðið inn í til að fullorðnast,“ segir
Arne. „Ég veit að þessi samfélags-
mótun hefur haft áhrif á mig sjálf-
an. Ég stend mig oft að því að hugsa
að þessi eða þessi hegðunin sé nú
ekki karlmannleg. Ég eigi að bíta á
jaxlinn og vera harður gaur.“
Í myndinni er fylgst með stelpunum
í fimm daga. Við fáum að kynnast
þremur þeirra vel. Laura, þybbin
fimmtán ára stelpa af asískum upp-
runa sem myndi tæplega vinna feg-
urðarsamkeppni, er ein þeirra
þriggja. Hún segir í myndinni: „Ég
horfi á bíómyndir. Ég sé að fólk eins
og ég fær aldrei neitt.“ Til þess að
eiga von á góðu lífi þurfi hún að
grennast, verða sætari og helst
verða hvít líka.
Í sumarbúðunum losna stelpurn-
ar undan útlitsáreitinu í nokkra
daga. Það hvort þær séu í fullkomnu
nýju dressi skiptir engu máli og
þeim er hrósað fyrir hugmyndir
sínar og sérvisku og kennt að útlitið
sé ekki það sem skiptir aðalmáli
heldur það sem býr innra með þeim.
Laura sagði Arne líka frá því að
þegar hún fór aftur í skólann eftir
sumarbúðirnar þorði hún í fyrsta
skipti að rétta upp hönd og tala í
tímum.
„Aðalmarkmið sumarbúðanna er
ekki að stelpur komi út sem gítar-
gyðjur sem spili stórkostleg gítar-
sóló. Markmiðið er að breyta hug-
myndunum um hvað sé kvenlegt. Að
stelpurnar verði frjálsari, þori að
skera sig úr hópnum og standa með
sjálfum sér.“
Girls Rock er sýnd á RIFF, alþjóð-
legu kvikmyndahátíðinni sem hefst
hér á fimmtudag.
Langmest sótta myndin á Íslandi í dag Allir eiga sín leyndarmál.
Óvæntasti sálfræðitryllir ársins. Mynd í anda Clueless og Mean Girls.
Skemmtilegustu vinkonur í
heimi eru mættar.
www.SAMbio.is 575 8900
ÁLFABAKKA AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSSI
KRINGLUNNI
CUCK AND LARRY kl. 8 - 10:10 L
BRATZ THE MOVIE kl. 8 L
DISTURBIA kl. 10:10 12
CHUCK AND LARRY kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10:30
MR. BROOKS kl. 5:30 - 8 - 10:30 16
BRATZ kl. 5:30 - 8 - 10:30 L
DISTURBIA kl. 8 - 10:30 14
ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 - 10:10 L
ASTRÓPÍÁ kl. 6
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L
VIP
VIP
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 16
BRATZ kl. 5:30 L
LICENSE TO WED kl. 6 - 8 7
ASTRÓPÍÁ kl. 6 L
BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10 14
TRANSFORMERS kl. 10:30 10DIGITAL
BRATZ - THE MOVIE kl. 6 L
SHOOT ´EM UP kl. 8 -10 16
ASTRÓPÍÁ kl. 6 L
MR. BROOKS kl. 8 16
VACANCY kl. 10 16
KNOCKED UP kl. 8 - 10:30 12
VEÐRAMÓT kl. 8 - 10:20 14
síðustu sýningar
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
16
16
14
14
12
14
14
CHUCK AND LARRY kl. 6 - 8 - 10.10
HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 6
HAIRSPRAY kl. 8
KNOCKED UP kl. 10.10
12
14
16
16
14
CHUCK AND LARRY kl. 5.40 - 8 - 10.20
HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8 - 10.30
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20
ASTRÓPÍA kl. 6
BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10.30
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SHOOT´EM UP kl.6 - 8 - 10
HÁKARLABEITA 600 KR. kl.6
VACANCY kl. 8 - 10
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20
RUSH HOUR 3 kl. 8 - 10.20
SHOOT´EM UP kl. 6 - 8 - 10
SHOOT´EM UP LÚXUS kl. 4 - 6 - 8 - 10
HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 4 - 6
HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8 - 10.30
VACANCY kl. 8 - 10
VEÐRAMÓT kl. 5.40
KNOCKED UP kl. 8 - 10.40
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4
THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 3.45
-A.F.B. Blaðið
- L.I.B., Topp5.is
STÓRSKEMMTILEGT
ÆVINTÝRI Í UNDIRDJÚPUNUM!
- bara lúxus
Sími: 553 2075
CHUCK & LARRY kl. 5.45, 8 og 10.20 12
HAIRSPRAY kl. 5.30, 8 og 10.20 L
KNOCKED UP kl. 8 og 10.30 14
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á