Fréttablaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 6
Hjólaðir þú í vikunni sem leið?
Snertir vandi við mönnun
leikskóla eða frístundaheimila
þitt heimili?
Allt að hundrað þúsund
manns tóku þátt í mótmælagöngu
í Rangún í Búrma í gær, með um
það bil 20 þúsund búddamunka í
fararbroddi. Þetta er langstærsta
mótmælaganga í landinu frá því
herforingjastjórnin braut upp-
reisn lýðræðissinna árið 1988 á
bak aftur.
Gengið var frá Shwedagon-
pagóðunni, helgasta stað landsins,
meira en tuttugu kílómetra leið að
heimili Aung San Suu Kyi, leið-
toga stjórnarandstöðunnar, sem
hefur verið í stofufangelsi heima
hjá sér árum saman.
Margir heltust þó úr lestinni,
en meira en fimm klukkutímum
eftir að gangan hófst voru um
þúsund munkar og 400 stuðnings-
menn þeirra eftir og luku göng-
unni með því að fara að gatna-
mótum, þar sem lögreglan lokaði
leiðinni að heimili Suu Kyi.
Göngufólkið reyndi ekki að
komast framhjá lögreglunni, held-
ur lét það sér nægja að fara með
bænir og segja: „Megi friður
verða“ og sneri síðan frá.
Sumir þátttakenda fullyrtu að
nokkur hundruð þúsund manns
hefðu tekið þátt í göngunni, en
alþjóðleg hjálparstofnun sagði
mannfjöldann vera mun meiri en
fimmtíu þúsund og líklega allt að
hundrað þúsund.
Mótmælin í Búrma hófust 19.
ágúst eftir að herstjórnin hækk-
aði skyndilega verð á eldsneyti,
en þau snerust fljótlega upp í
almenn mótmæli gegn herfor-
ingjastjórninni sem hefur stjórn-
að með harðri hendi áratugum
saman.
Búddamunkar tóku að sér for-
ystu í mótmælunum fyrir rúmri
viku og síðan þá hafa mótmælin
eflst dag frá degi og þátttakend-
um fjölgað stöðugt. Munkarnir
sjálfir hafa forðast að koma með
pólitískar yfirlýsingar, en láta sér
nægja að koma saman og biðja
bænir á stöðum sem hafa pólit-
íska skírskotun, svo sem við heim-
ili Suu Kyi og fyrir utan banda-
ríska sendiráðið. Í gær gengu þeir
einnig framhjá varnarmálaráðu-
neyti landsins og fram hjá heimili
Thans Shwe, leiðtoga herforingja-
stjórnarinnar.
Herforingjastjórnin hefur hing-
að til að mestu látið mótmæli
munkanna í friði. Sumpart er það
talið stafa af því hve mikillar virð-
ingar munkarnir njóta í Búrma,
en stjórnmálaskýrendur hafa
sumir hverjir sagt að þrýstingur
frá kínverskum stjórnvöldum ráði
þar mestu.
Herforingjastjórnin
hótar valdbeitingu
Allt að hundrað þúsund manns mótmæltu herforingjastjórn landsins í gær.
Mótmælagöngurnar í Búrma eru orðnar þær fjölmennustu í sögu landsins.
Þátttakendum fjölgar dag frá degi en nú hótar stjórnin valdbeitingu.
Íslendingar leita í
auknum mæli til tannlækna til að
fá leiðréttingu á tannaðgerðum
sem þeir hafa gengist undir í Taí-
landi að sögn Sigurjóns Bene-
diktssonar formanns Tannlækna-
félags Ísland. „Það er mjög erfitt
að leiðrétta tannaðgerðir, það er
eiginlega ekki hægt,“ segir Sig-
urjón sem segir um að ræða stór
smíðaverkefni sem hafa ekki
gengið nógu vel. Hann mælir
ekki með tannlæknaferðum til
Taílands. „Ef fólk vill hafa ein-
hverja ábyrgð og upplýsingar um
tannlækninn er best að skipta við
tannlækni sem menn þekkja og
hafa aðgang að.“
Tannlæknaðgerðir í Taílandi
eru mun ódýrari en á Íslandi. Sig-
urjón segir algengustu aðgerð-
irnar sem fólk fari í vera krónu-
og brúarsmíði. „Þessar aðgerðir
eru mjög mikil nákvæmnisvinna.
Ef ekki eru notuð rétt efni, eins
og réttir málmar og rétt postulín,
þá fer illa. Það er svo mikil hætta
á glufu á milli tannarinnar og
krónunnar,“ segir Sigurjón og
bendir á að skemmdir geti fylgt í
kjölfarið. „Undirstaðan verður
að vera traust.“
Erfitt að leiðrétta aðgerðir
Eldur kviknaði í sófa
sem stóð á svölum hússins við
Hverfisgötu 42 í Reykjavík á
fimmta tímanum í fyrrinótt.
Slökkviliðið var með mikinn
viðbúnað og að sögn varðstjóra
logaði sófinn glatt þegar að var
komið. Eldurinn hafði sprengt
rúðu í stofu, en ekki náð að læsast í
húsið.
Um 30 manns búa í húsinu, sem
var rýmt á meðan á slökkvistarfi
stóð. Greiðlega gekk að ráða
niðurlögum eldsins, en reykræsta
þurfti húsið áður en íbúar fengu að
snúa aftur til síns heima. Að sögn
slökkviliðs er talið að eldurinn hafi
kviknað út frá sígarettuglóð.
Sófi á svölum
logaði glatt
Orkuveita Reykjavíkur
(OR) hefur eignast 6,78 prósenta
hlut í Landsneti í kjölfar sölu OR
á eignum, aðallega háspennulín-
um, að andvirði 1.313 milljóna
króna. Með kaupunum hefur
Landsnet loks eignast allt
raforkuflutningskerfið.
Landsnet greiddi fyrir
háspennulínurnar með 913 millj-
ónum króna í peningum. Auk
þess var hlutafé félagsins aukið
um 400 milljónir sem komu í hlut
OR, segir Þórður Guðmundsson,
forstjóri Landsnets.
„Landsnet hefur með þessu
eignast allt flutningskerfið.
Umsjón með kerfinu, rekstur
þess og uppbygging er þar með
komin á eina hendi. Það er ákveð-
in hagræðing fólgin í því að fá
þetta allt undir sama hatt,“ segir
Þórður. Hann segist ekki sjá
fyrir sér frekari breytingar á
hluthafahópi, eða að hlutafé
Landsnets verði aukið frekar.
Landsvirkjun á eftir sem áður
stærstan hlut í Landsneti, 64,73
prósent. Aðrir hluthafar eru Raf-
magnsveitur ríkisins með 22,51
prósent, OR með 6,78 prósent og
Orkubú Vestfjarða með 5,98 pró-
sent.
OR eignast hlut í Landsneti