Fréttablaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 16
Höfuðborgamót Norrænu félaganna fer fram helgina 28.-30.
september í Reykjavík.
Norræn félög frá Norðurlöndunum standa fyrir dag-
skránni og er þema mótsins að þessu sinni norræn goða-
fræði og ásatrú ásamt áhrifum þeirra á þúsund ára kristni
fram til okkar daga.
„Áhrifa goðafræðinnar gætir víða í daglegu lífi og má
til dæmis greina þau í mannanöfnum eins og Óðinn, Njörð-
ur, Freyja, Sif, Laufey og Þór sem er orðið algengasta karl-
mannsnafnið á Íslandi. Auk þess bera mörg hús í borginni
nöfn eins og Valhöll og Þórshamar og Norræna félagið á Ís-
landi hefur til að mynda aðsetur á Óðinstorgi þar sem mæt-
ast Þórsgata, Týsgata og Óðinsgata. Svo eru stórfyrirtæki
eins og Glitnir sem sækja nafn sitt í goðafræðina,“ segir
Þorvaldur S. Þorvaldsson, formaður Norræna félagsins í
Reykjavík.
Dagskrá höfuðborgamótsins hefst með málþingi í Perl-
unni föstudaginn 28. september klukkan þrjú.
„Þar verður fjallað um þátt ásatrúarinnar í lífi okkar
gegnum söguna og verða þar góðir gestir með erindi. Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, Þórarinn Eldjárn, Terry Gunnell og Þorvaldur Friðriks-
son verða með fyrirlestra ásamt Tríói Reykjavíkur sem flyt-
ur tónlist,“ útskýrir Þorvaldur.
Síðdegis laugardaginn 29. september verður hátíð á Óðins-
torgi í Reykjavík frá klukkan tvö til fimm.
„Norræna félagið fagnar 85 ára afmæli þennan dag og eru
allir velkomnir. Það verða ýmis skemmtiatriði, til dæmis
tónlistaratriði og matarsmökkun þar sem norrænar afurðir
eru til sölu ásamt sérstakri dagskrá fyrir börnin á skrifstofu
félagsins. Þar munum við segja sögur úr ásatrú, útskýra og
leika fyrir börnin. Einnig geta þau sest niður, teiknað og sitt-
hvað fleira,“ segir Þorvaldur og ljóst er að hér er um fjöl-
breytta og skemmtilega dagskrá að ræða.
Um kvöldið verður hátíð í Hafnarhúsinu þar sem Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri talar og frumflutt
verður tónverk eftir Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld og
allsherjargoða.
Gjörningaklúbburinn, „The Icelandic Love Corporation“,
verður með gjörning undir flutningi tónlistarinnar sem
fjallar um tengsl goðafræðinnar og kristinnar trúar á Norð-
urlöndum.
Höfuðborgamóti verður slitið með norrænni hámessu í
Hallgrímskirkju sunnudaginn 30. september klukkan ellefu.
„Í messunni munu þátttakendur frá öllum Norðurlöndunum
lesa ritningar dagsins á sínu móðurmáli. Ritningarnar verða
allar lesnar í röð svo hægt sé að heyra muninn og bera saman
tungumálin. Sálmar dagsins verða einnig af norrænum toga
og biskup Kaupmannahafnar, herra Erik Norman Svendsen,
predikar á dönsku,“ segir Þorvaldur sem segir jafnframt að
messan eigi sérstakt erindi til allra sem eiga ættir að rekja til
Norðurlanda, en að sjálfsögðu eru allir velkomnir.
Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á vef Norræna
félagsins www.norden.is og hvetur Þorvaldur alla til að láta
sjá sig á höfuðborgamóti um helgina.
Fyrsti togarinn tekinn
„Eftir kvikmyndina Zorro var
fólk endalaust að tala spænsku
við mig. Ég er velsk en þessi
kvikmynd gaf mér skyndilega
nýtt þjóðerni.“
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Elskuleg eiginkona mín, móðir og tengda-
móðir,
Anna Lilja Gestsdóttir,
flugfreyja, Heiðarbakka 1, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, aðfaranótt mánu-
dagsins 24. september. Útför verður tilkynnt síðar.
Reynir Ólafsson
Gestur Páll Reynisson Inga María Vilhjálmsdóttir
Kristín Guðrún Reynisdóttir Bjarki Ómarsson
Sérstakar þakkir sendum við eigendum og stjórn-
endum Bónuss fyrir ómetanlegan hlýhug, styrk og
stuðning.
Margrét Friðriksdóttir
Aðalheiður María Sigmarsdóttir
Emelía Rán Sigmarsdóttir
Svanhildur María Ólafsdóttir Eðvarð Ingólfsson
Aðalheiður Gréta Guðmundsdóttir Friðrik Jónsson
Ólafur Páll Eðvarðsson
Ásta Friðriksdóttir Bjarki Traustason
Auður Gunnarsdóttir
Sigríður U. Ottósdóttir
Vigdís Ámundadóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð,
hlýhug, styrk og stuðning við andlát og útför sambýlis-
manns míns, föður okkar, sonar, tengdasonar, bróður,
mágs, svila og barnabarns,
Sigmars Þórs Eðvarðssonar
verslunarstjóra hjá Bónus, Hraunbæ,
Sílakvísl 13, Reykjavík.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Kristín Guðbrandsdóttir
Svölutjörn 44, Njarðvík,
áður Smáratúni 29, Keflavík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 19. septemb-
er, verður jarðsingin frá Keflavíkurkirkju fimmtudag-
inn 27. september kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Jóhann R. Benediktsson
Benedikt Jóhannsson María Hákonardóttir
Kristbjörg Jóhannsdóttir Jóhann Frímann Valgarðsson
Jóhanna A. Jóhannsdóttir Andre Masumbuko
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Anna Albertsdóttir
Sóltúni 2, áður til heimilis að
Teigagerði 15,
lést laugardaginn 22. september á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni. Jarðarförin auglýst síðar.
Haraldur Sighvatsson Elfa Hafdal
Jón Albert Sighvatsson Kristjana Markúsdóttir
Emilía Sighvatsdóttir Halldór Jón Ingimundarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Eggert Ó. Brynjólfsson
Kleppsvegi 64, Skjóli,
lést á Landspítalanum Hringbraut laugardaginn 15.
september. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 26. september kl. 13.00.
Björn Hafsteinsson
Óttar Eggertsson Elín Anna Sigurjónsdóttir
Ester Eggertsdóttir Bjarni Eyjólfsson
barnabörn og barnabarnabörn.
90 ára afmæli
Innilegar þakkir
Innilegar þakkir færi ég þeim mörgu sem
sýndu mér vinarhug og veittu mér ánæg ju
með heimsóknum, góðum g jöfum, hlýjum
kveðjum og með öðrum hætti á 90 ára
afmæli mínu 13. september síðastliðinn.
Megi gæfa og guðs blessun fylg ja ykkur
öllum um langa framtíð.
Jón Þórarinsson.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar,
Huldu Sigmundsdóttur
frá Þingeyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði
fyrir alúð og góða umönnun.
Erla Árnadóttir Gústaf Jónsson
Guðmundur Árnason Kolbrún Sigfúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær dóttir okkar, systir, barnabarn og
mágkona,
Edda Sigrún Jónsdóttir
Álftamýri 8,
lést þriðjudaginn 11. september síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju í dag, þriðju-
daginn 25. september kl. 15.00. Blóm og kransar eru
vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Barnaspítala Hringsins.
Anna Reynisdóttir Jón Baldvin Sveinsson
Halldór Jónsson Helena H. Júlíusdóttir
Guðbjörg R. Jónsdóttir Brynjar Ingason
Sigurður R. Jónsson Svala Hilmarsdóttir
Kristinn S. Jónsson Hólmfríður E. Gunnarsdóttir
Kjartan V. Jónsson Olga B. Bjarnadóttir
Svandís E. Jónsdóttir Ólafur Þráinsson
Hrefna V. Jónsdóttir Tómas Rúnarsson
Anna Sigurjónsdóttir Kristján J. Ólafsson
Elskuleg konan mín, móðir okkar og systir,
Guðrún Ingeborg
Mogensen,
Sandavaði 3, Reykjavík,
lést föstudaginn 21. september sl. Útförin verður
auglýst síðar.
Magnús Björgvinsson
Ásdís María Jónsdóttir
Þórey Jónsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Karen Margrét Mogensen