Fréttablaðið - 27.11.2007, Síða 1

Fréttablaðið - 27.11.2007, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% Þriðjudagur *Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í ágúst–október 2007 Lestur meðal 18–49 ára á höfuðborgarsvæðinu* 36% B la ð ið /2 4 s tu n d ir M o rg u n b la ð ið F ré tt a b la ð ið 38% 68% B la B l Sími: 512 5000 ÞRIÐJUDAGUR 27. nóvember 2007 — 323. tölublað — 7. árgangur VEÐRIÐ Í DAG JÓL 2007 Koma þau senn • matur • hefðir • skraut • föndur FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG ÓL 2007 HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA BÆKUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir þarf að vera í góðu formi í vinnunni. Hún er í t i söngleikju Dansar og æfir jóga Leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir hreyfir sig mest í vinnunni en er annars hrifin af jóga og dansi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FUNDAÐ UM FRIÐAndrés Ingi Jónsson átaka-fræðingur er einn þeirra sem tala á málþingi sem efnt er til vegna útgáfu bókarinnar Hnífur Abrahams eftir Óttar M. Norðfjörð, rithöfund og heimspeking. BÆKUR 4 VOPN Í BARÁTTUNNIChampix er nýtt lyf sem hjálpar fólki sem vill hætta að reykja með því að festast við nikótínmóttaka í heilan-um svo að nikótínið komist ekki að. HEILSA 3 ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR Hreyfir sig í vinnunni, dansar og stundar jóga • heilsa • bækur Í MIÐJU BLAÐSINS Súkkulaði og rósir í Reykjavík Edda Heiðrún Back- man opnar verslun á fimmtugsafmælinu. TÍMAMÓT 22 www.kornax.is - veldu ferskasta hveitiÐ! Súperman saknaði Guðna Guðni Gunnars- son komst ekki í brúðkaup Brandons Routh sem leik- ur Súperman. FÓLK 38 Bíóspil úr Breiðholtinu Sverrir Þór Sverrisson gefur í samstarfi við æskufélaga sína út spurn- ingaspilið Bíóbrot. FÓLK 30 Vignir til Lemgo Vignor Svavarsson hefur samið við þýska úrvalsdeildarfélagið Lemgo til tveggja ára. ÍÞRÓTTIR 32 BJART EYSTRA - Í dag verða suð- vestan 3-8 m/s víðast hvar. Skúrir eða él á vesturhluta landsins, ann- ars skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti við frostmark nyrðra en 2-5 stig syðra. VEÐUR 4       SKIPULAGSMÁL Gera má ráð fyrir að árið 2010 verði að minnsta kosti 3.200 hótelherbergi í boði á höfuð- borgarsvæðinu, eða um það bil eitt hótelherbergi fyrir hverja 55 íbúa Reykjavíkur og nágrennis. Hótelherbergi og hótelrúm eru í dag jafnmörg á höfuðborgar- svæðinu og þau voru á öllu Íslandi árið 2000. Það sama gildir ef gisti- heimili eru talin með. Árið 2000 voru sextán hótel í höfuðborginni, en nú eru þau tut- tugu og átta talsins. Á hótelunum eru 2.576 herbergi, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Hag- stofunnar. Verið er að byggja fjögur ný hótel í miðbæ Reykja- víkur sem flest eru í hæsta gæða- flokki. Bætast þar við á bilinu 600 til 650 hótelherbergi. Við hafnarbakkann í miðbæ Reykjavíkur rís hótel í tengslum við Tónlistarhúsið undir merkj- um Starwood Hotels hótelkeðj- unnar. Samkvæmt upplýsingum frá Ásthildi Sturludóttur, hjá Portus hf., verða 400 herbergi og íbúðir á hótelinu og gert er ráð fyrir að það verði skreytt fimm stjörnum. Við Laugaveg 4 til 6 er ráðgert að byggja hótel í stað gömlu hús- anna. Að sögn Jóhannesar Sig- urðssonar, eiganda hótelsins, verða um 50 til 90 herbergi í því hóteli. Ekki liggur fyrir í hvaða gæðaflokki hótelið verður. Á teikniborði Icelandair Hotels Group og Rivulus ehf. er 133 her- bergja hótel við Lækjargötu 12, þar sem nú er útibú Glitnis. Gert er ráð fyrir að hótelið, sem miðað er við að fái fjórar stjörnur, verði opnað árið 2009. Þá byggir Karl J. Steingríms- son, kenndur við Pelsinn, 24 lúxusíbúðir við Tryggvagötu. Til greina kemur að íbúðirnar verði til útleigu fyrir erlenda viðskipta- vini fyrirtækja. Karl segir líklegt að íbúðirnar verði tilbúnar í mars á næsta ári, en framkvæmdin hefur dregist nokkuð vegna erf- iðra aðstæðna við Tryggvagötu. Frá því árið 2000 hafa tólf ný hótel verið opnuð í borginni, sem er tæplega tvöföldun á sjö árum. Þrjátíu og níu gistiheimili hófu starfsemi á sama tíma. Um 85 prósenta aukning varð á fram- boði hótelherbergja og 100 pró- senta aukning á framboði á rúmum. Á landsvísu hefur hótelum fjölgað um 52 prósent síðastliðin sjö ár. Á sama tímabili hefur nýt- ing hótelherbergja ekkert breyst og hefur nánast staðið í stað í 60 prósent nýtingu að meðaltali. Nýting hótelrúma er um 47 pró- sent. eva@frettabladid.is Hátt í sjö hundruð hótelher- bergi í smíðum í miðbænum Á síðustu sjö árum hefur fjöldi hótela á höfuðborgarsvæðinu nánast tvöfaldast. Árið 2010 stefnir í að minnsta kosti 230 prósenta aukningu á framboði hótelherbergja á tíu árum. Nýting herbergjanna er góð. NEYTENDUR Svokallað Wagyu-nauta- kjöt verður í fyrsta sinn til sölu í verslunum hér á landi, milli jóla og nýárs, en kjötið er dýrasta kjöt sem völ er á í heiminum. Kílóið kostar um tólf þúsund krónur frá heild- sala, en kílóverðið út úr búð verður líklega um sextán þúsund krónur. Kjötið er af nautgripum af jap- önsku kyni sem ber heitið Kobe en nafnið er dregið af svæðinu þar sem ræktun þeirra hófst árið 1860. Nautgripirnir eru aldir á bjór og úrvalsfæði auk þess sem þeir eru nuddaðir reglulega. Þá er leikin klassísk tónlist fyrir þá og þeim strokið daglega. Ræktun þeirra hefur breiðst út til Bandaríkjanna, Nýja-Sjálands og Ástralíu og kemur kjötið á Evrópumarkað þaðan, en þá heitir það Wagyu- beef. Kjötið hefur verið að finna á matseðlum nokkurra íslenskra veitingastaða undanfarið, en aldrei fyrr hefur almenningi staðið kjötið til boða í verslunum. „Við byrjuð- um að selja kjötið til veitingastaða í byrjun ársins og viðtökurnar hafa verið frábærar. Fólk er farið að þekkja þetta og þeir sem hafa smakkað kjötið vilja helst ekki borða aðra gerð af nautakjöti,“ segir Gunnar Guðsveinsson hjá Sælkeradreifingu, en fyrirtækið flytur mest inn af kjötinu hérlend- is. „Það er von á þrjú til fjögur hundruð kílóum af kjötinu til landsins núna fyrir jól, en það er mjög erfitt að fá þetta kjöt því það er mikil eftirspurn eftir því, enda besta kjöt í heimi. Ég reikna með að um 150 kíló af kjötinu muni fara í verslanir.“ Wagyu-kjötið er ávallt sent ferskt og er aldrei fryst. „Kjötinu er alltaf flogið fersku inn, en því miður fyrir okkur hér á Íslandi gilda sömu reglur um þetta kjöt eins og annað ferskt kjöt sem hingað er flutt inn, en það verður að hafa verið frosið í þrjátíu daga.“ segir Gunnar. Um sextíu kíló af kjötinu fóru í nýafstaðið brúðkaup Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, kenndan við Baug, og Ingibjargar Pálmadótt- ur. aegir@frettabladid.is Wagyu-nautakjöt í íslenskum verslunum á milli jóla og nýárs: Kílóið á sextán þúsund krónur VIÐ REYKJAVÍKURTJÖRN Félagarnir Gísli og Steinar úr Hafnarfirði biðu saman spakir og prúðir í tunglsljósinu við Tjörnina þegar ljósmyndari Fréttablaðsins hitti á þá í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM NÁTTÚRA Snarpur jarðskjálfti mældist við norðanverðan Langjökul klukkan hálf fjögur í gær. Fannst hann víða í Húna- vatnssýslu, á Blönduósi og á Akureyri. Skjálftinn var stærstur í jarðskjálftahrinu sem byrjaði um hádegisbil. Fjöldi eftirskjálfta fannst fram eftir kvöldi í gær. Upptök skjálftanna voru á svæði um tólf til fjórtán kíló metra norðvestur af Hvera völlum og voru þeir á bilinu 4,4 til 2,3 stig á Richterskvarða. Alls höfðu mælst fimmtán skjálftar á svæðinu á tíu klukkustund- um. Svæðið er á svokölluðu Langjökulsbelti sem er þekkt jarðskjálftasvæði. - shá Jarðskjálftar við Langjökul: Stærsti skjálft- inn 4,4 stig KÍNA Stjórnvöld í Guandong- héraði í Kína hafa lagt rúman milljarð í smíði á skipasafni tuttugu og fjóra metra undir yfirborði sjávar. Í safninu verða fimm sýningarsalir en megin- ástæðan fyrir byggingunni er 800 ára gamalt skipsflak sem er talið ómetanlegt. Safnið verður byggt þar sem flakið liggur en um borð er talið að megi finna allt að 80 þúsund fornmuni. Árið 2002 náðust sex þúsund munir úr skipinu, en aðeins náðist að opna eitt herbergi. Talið er að skipið myndi grotna í sundur yrði reynt að lyfta því upp á yfirborðið. Í þess stað verður skipið sett í stálgám sem er fimm þúsund tonn að þyngd og síðan flutt inn í safnið. Bygging safnsins gengur vel og er áætlað að það verði opnað seint á næsta ári. - shá Sérstakt safn í Kína: Skipasafn undir yfirborðinu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.