Fréttablaðið - 27.11.2007, Blaðsíða 18
18 27. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 561
6.842 +1,33% Velta: 6.927 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 10,30 +1,48% ... Bakkavör
57,20 +1,42% ... Eimskipafélagið 36,85 +2,79% ... Exista 24,90
+0,81% ... FL Group 20,80 -0,95% ... Glitnir 24,55 +0,41% ... Ice-
landair 26,90 +3,46% ... Kaupþing 922,00 +2,44% ... Landsbankinn
37,10 +1,51% ... Straumur-Burðarás 15,50 +0,00% ... Össur 98,40
+0,41% ... Teymi 6,30 +2,44%
MESTA HÆKKUN
FØROYA BANKI 4,50%
ICELANDAIR 3,46%
EIMSKIPAFÉLAGIÐ 2,79%
MESTA LÆKKUN
EIK BANKI 1,83%
365 1,63%
FL GROUP 0,95%
Helstu hlutabréfavísitölur tóku
snarpa dýfu niður á við síðdegis í
gær eftir slæmar fréttir úr fjár-
málaheiminum. Vísitölurnar höfðu
fetað í fótspor Nikkei-vísitölunnar
í Japan það sem af var degi og
hækkað fram að því. Þá þóttu sölu-
tölur frá Bandaríkjunum um síð-
ustu helgi gefa góð fyrirheit um
upphaf vikunnar.
Fréttirnar tengjast allar banda-
rískum undirmálslánamarkaði,
sem höggvið hefur nær viðstöðu-
laust í afkomu fjármálafyrirtækja
víða um heim og þykir ljóst að enn
séu ekki öll kurl komin til grafar.
Í fyrsta lagi sagði bandaríski
fjárfestingarbankinn Goldman
Sach frá því að útlit væri fyrir að
HSBC, einn stærsti banki Evrópu,
gæti þurft að afskrifa allt að tólf
milljarða Bandaríkjadala, jafn-
virði um 760 milljarða íslenskra
króna, vegna tapaðra útlána. Við
bættist að svissneski bankinn UBS
sagði horfur á að tekjur fyrirtæk-
isins myndu minnka sökum þess
að lánsfé sé orðið mjög dýrt. Í
þriðja lagi barst út að Citigroup
íhugaði að segja upp allt að sautj-
án þúsund starfsmönnum. Um 320
þúsund starfsmenn vinna hjá
bankanum og því um lágt hlutfall
að ræða sem sagt verður upp ef af
verður.
Stjórnendur bankans leita enn
logandi ljósi að nýjum forstjóra í
stað Chucks Prince, sem tók poka
sinn þegar fyrir lá að bankinn
þyrfti að afskrifa 6,5 milljarða
dala úr bókum sínum vegna van-
skila á fasteignalánum. - jab
HASAR Á HLUTABRÉFAMARKAÐI Gengi fjármálafyrirtækja tók víða snarpa dýfu á
hlutabréfamörkuðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ /AP
Snarpur snúningur
á hlutabréfamarkaði
Kaupþing tilkynnti í gær
um lok fjármögnunar vegna
yfirtökunnar á hollenska
bankanum NIBC. Skulda-
tryggingarálag (CDS)
bankans lækkaði í kjölfar-
ið um 65 punkta. Álag á
skuldabréfaútgáfu hinna
bankanna minnkaði líka.
Kaupþing gerir ráð fyrir
að kaupin á NIBC verði að
fullu frágengin í janúar
næstkomandi.
Kaupþing hefur tilkynnt um lok
fjármögnunar vegna yfirtökunn-
ar á hollenska bankanum NIBC.
Um leið greinir bankinn frá því
að stöður í sérvörðum skulda-
bréfum (e. structured credit)
verði minnkaðar og gerir ráð
fyrir 85 milljóna evra gjald-
færslu á fjórða ársfjórðungi
vegna þessa. Í tilkynningu bank-
ans í gær er jafnframt greint
nánar frá fjármögnun bankans
og lausafjárstöðu.
Upplýsingarnar höfðu strax
áhrif á alþjóðlegum fjármála-
markaði, en álag á skuldatrygg-
ingar bankans (CDS) hafði lækk-
að um 65 punkta um miðjan dag í
gær. Álagið er mat fjárfesta á
áhættu tengdri bankanum og
hefur áhættumatið því minnkað
sem þessu nemur. Álagið er engu
að síður mjög hátt og hærra en á
aðra evrópska banka, eða um 275
punktar. Þá nutu Landsbankinn
og Glitnir einnig góðs af þróun-
inni, álag á bréf þeirra lækkaði
um 50 og 35 punkta, í 145 hjá
Landsbankanum og 205 punkta
hjá Glitni.
Fram kemur í tilkynningu
Kaupþings að bankinn hyggist
gefa út nýtt hlutafé allt að 210
milljónum hluta vegna yfirtök-
unnar á NIBC. Seljandinn, hópur
fjárfesta undir forystu J.C.
Flowers & Co., fær í sinn hlut 140
milljónir hluta í Kaupþingi á
meðalverðinu 105,67 sænskar
krónur. Seljendur NIBC verða
við þetta næststærsti hluthafi
Kaupþings með um 15,9 prósenta
hlut. Að auki greiðir Kaupþing
fyrir NIBC 1.392 milljónir evra.
„Á sínum tíma kvað samningur-
inn um kaupin á um ákveðna pen-
ingagreiðslu og 110 milljónir
hluta til viðbótar. Nú er búið að
breyta peningagreiðslunni og
koma í staðinn 140 milljónir
hluta,“ segir Jónas Sigurgeirs-
son, forstöðumaður samskipta-
sviðs Kaupþings. Verðið sem
Kaupþing greiðir fyrir bankann
nemur miðað við þetta um 2.750
milljónum evra. Þá ætlar Kaup-
þing að gefa út 70 milljónir hluta
og selja í forgangsréttarútboði
eftir að kaupin á NIBC eru frá-
gengin. J.C. Flowers & Co. og
Exista hafa gert samkomulag um
að sölutryggja útboðið. Kaupþing
gerir ráð fyrir að kaupin á NIBC
verði að fullu frágengin í janúar
2008, en þau bíða engu að síður
samþykkis fjármálayfirvalda
bæði hér og í Hollandi.
Um miðjan desember á svo að
vera fullu lokið samdrætti Kaup-
þing í stöðum í sérvörðum skulda-
bréfum, úr 1,6 milljörðum evra í
450 milljónir evra. „Samhliða
áformar bankinn að loka 1,3 millj-
arða evru lausafjárlínu sem bank-
inn hefur veitt og mun þá ekki
vera með slíkar skuldbindingar
gegnum lánalínur í tengslum við
stöður sínar í sérvörðum skulda-
bréfum (e. structured credit
exposure),“ segir í tilkynningu
bankans. Þá kemur fram að Kaup-
þing sé ekki með beinar stöður í
bandarískum undirmálslánum (e.
sub-prime) eða skuldavafningum
(e. CDOs) sem innihaldi slík lán.
Kaupþing hefur hins vegar
óbeina stöðu tengda undirmáls-
lánum þar sem bankinn veitti lán
til seljanda NIBC til að fjármagna
eignatryggð skuldabréf tengd
undirmálslánum sem skilin voru
frá í kaupunum á NIBC. „Þetta lán
hefur nú verið lækkað úr 236 millj-
ónum Bandaríkjadala í 136 millj-
ónir en nafnvirði undirliggjandi
eigna nemur sem fyrr 689 milljón-
um Bandaríkjadala.“ Eftir þessi
viðskipti á NIBC engar eignir í
bandarískum undirmálslánum.
Fram kemur að bæði samstæða
Kaupþings og móðurfélag hafi
öruggt lausafé til að standa við
allar skuldbindingar bankans í
meira en 420 daga, en þar er með
talin peningagreiðslan vegna
kaupanna á NIBC. olikr@frettabladid.is
Á AÐALFUNDI KAUPÞINGS FYRR Á ÁRINU Sigurður Einarsson, stjórnarformaður
Kaupþings, er í pontu, en við háborðið situr Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri bank-
ans. Kaupþing sló í gær á vangaveltur um getu bankans til að fjármagna yfirtöku
hans á hollenska bankanum NIBC. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Skýringar Kaupþings
róa erlenda fjárfesta
www.forlagid.is
CDS-ÁLAG Á BANKANA:
Banki CDS punktar Dagamunur
Kaupþing 275 -65
Glitnir 205 -35
Landsbankinn 145 -50
Heimild: Kaupþing
Ekki allt gull sem glóir
Fjölmargir fruminnherjar í Straumi-Burðarási
12. janúar 2006 keyptu hluti í bankanum á
genginu 17,4 sem var skráð markaðsgengi
við lokun markaða sama dag. Meðal þeirra
var Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, sem nú
hefur hætt störfum hjá bankanum. Keypti hún
fimmtán milljónir hluta á þessu gengi. Það
sama gerði Margit Robertet, sem hætti
nýlega sem framkvæmdastjóri Lánasviðs.
Eins og önnur fjármálafyrirtæki hefur mark-
aðsvirði Straums lækkað undanfarið. Í lok
dags í gær stóð gengið í 15,50. Það er því
ljóst að allur ávinningur af þessum
hlutabréfakaupum er gufaður
upp. Hins vegar var starfsmönnum
veittur söluréttur sem ver þá fyrir
mögulegu tapi af þessum viðskipt-
um. Ætli kostnaður við fjármögnun
þessara viðskipta leggist ekki á
hluthafa Straums-Burðaráss?
Hallur ekki allur
Hallur Magnússon, sviðsstjóri þróunarsviðs
Íbúðalánasjóðs, hefur sagt upp störfum og
hættir hjá sjóðnum um jólin. Mikið hefur
mætt á honum þegar bankar hafa gagnrýnt
stefnu stjórnvalda, að reka hér umfangsmikla
lánastarfsemi til fasteignalána. Og Hallur
hefur fengið gusurnar. Hann segir
óráðið hvað taki við en hann hefur
þó stofnað hlutafélag um sjálfan sig
og segist tilbúinn til að fara í ráðgjaf-
arbransann. Hallur er ekki ókunnur
ráðgjafarstörfum en hann hefur meðal
annars ráðlagt færeysku landsstjórninni
um húsnæðiskerfi. Hallur hefur
starfað hjá Íbúðalánasjóði í yfir
átta ár. Hann hefur lagt stund á
rekstrarfræði og stjórnun en er
líka sagnfræðingur og þjóð-
fræðingur að mennt.
Peningaskápurinn ... MARKAÐSPUNKTARFélög í eigu Guðmundar og Hjálmars
Kristjánssona hafa selt hlut sinn í
Vinnslustöðinni á genginu 7,9. Kaup-
endur eru Ísfélag Vestmannaeyja og
Kristinn ehf. Söluverð nemur rúmum
3,9 milljörðum króna.
Bandaríkjadalur nýtur vinsælda
sem lántökumynt í viðskiptum með
hávaxtamyntir, að því er greint er
frá í Vegvísi Landsbankans. Ákveðn-
ar myntkörfur, fjármagnaðar með
dollara, eru sagðar hafa skilað 17
prósenta ávöxtun það sem af er ári.
Þá munu slæmar aðstæður á banda-
rískum fasteignamarkaði auka enn á
væntan ábata af vaxtamunarviðskipt-
unum. Líkur eru taldar á frekari lækk-
un stýrivaxta vestra að sögn Vegvísis,
en við það myndi dollar væntanlega
enn veikjast.