Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.11.2007, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 27.11.2007, Qupperneq 10
10 27. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR ATVINNUMÁL Samtök atvinnulífsins gera athugasemdir við stjórnar- frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna. Í umsögn samtakanna segir að sum ákvæði frumvarpsins séu beinlínis skaðleg og önnur til þess fallin að draga úr sveigjanleika atvinnulífsins. Samtökin ítreka að mikilvægt sé að vinna gegn kynbundinni mismunun en eru ósammála þeim aðferðum sem lagt er upp með í frumvarpinu sem nú er til umfjöllunar í félags- og trygg- ingamálanefnd Alþingis. Að mati samtakanna er ávinningur frumvarpsins óljós og aðrar leiðir árangursríkari. Samtökin hafa til dæmis lýst sig reiðubúin að styrkja tilrauna- verkefni um jafnlaunavottun. - þo Samtök atvinnulífsins: Gagnrýna frumvarp um jafnrétti HAFNARFJÖRÐUR Tveir leikskóla- kennarar stefna að því að opna ungbarnaskóla í Hafnarfirði og hafa óskað eftir að gera þjónustu- samning við Hafnarfjarðar- bæ svipaðan og Hjallastefnan hefur gert og hafa óskað eftir því að bærinn leggi þeim til viðeigandi húsnæði. Ungbarna- skólinn myndi taka við börnum um eins árs aldurinn og brúa bilið þar til börnin kæmust inn í leikskóla í kringum 18-20 mánaða aldur. Miðað yrði við 24 börn. Ellý Erlingsdóttir, formaður Fræðsluráðs, segir að bilið milli orlofsloka og leikskóla sé að styttast og alltaf séu einhverjir sem þurfi að brúa bilið. Fræðslu- ráð hafi tekið jákvætt í erindið en það sé enn til umfjöllunar. - ghs Hafnarfjörður: Ungbarnaskóli í undirbúningi ELLÝ ERLINGSDÓTTIR BAUGSMÁL Yfirskattanefnd hefur lokið umfjöllun um álitaefni varð- andi skattamál einstaklinga og félaga tengdum Baugi Group, segir Björn Þorvaldsson, settur saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra. Niðurstaða nefndarinnar er trúnaðarmál, en saksóknari mun í kjölfarið meta hvort ástæða sé til að gefa út ákærur í málinu eða hvort það verði látið niður falla. Líta má á þetta mál sem þriðja anga hins svokallaða Baugsmáls. Þessi angi málsins varð opinber þegar skattrannsóknarstjóri kærði þrjú fyrirtæki og fjóra ein- staklinga fyrir brot gegn skatta- lögum í nóvember 2004. Meint brot voru í upphaflegri kæru talin nema hundruðum milljóna króna. Á meðal þeirra sem hafa legið undir grun eru Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs Group, og Tryggvi Jóns- son, fyrrverandi forstjóri Baugs. Baugur Group er stærst þeirra félaga sem fjallað er um, en hin eru Gaumur, fjölskyldufyrirtæki Jóns Ásgeirs, og Fjárfar, sem settur ríkissaksóknari í Baugs- málinu hefur haldið fram að Jón Ásgeir hafi stjórnað í raun. Því hefur Jón Ásgeir ávallt neitað. Yfirskattanefnd hafði til með- ferðar álitaefni um skattskyldu vegna meintra brota, og getur niðurstaða hennar haft áhrif á niðurstöðu saksóknara. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að niðurstaða yfirskattanefndar væri trúnaðar- mál, og hann gæti því ekki fjallað um málið í fjölmiðlum. - bj Yfirskattanefnd hefur komist að niðurstöðu um álitamál tengd Baugi Group: Styttist í ákvörðun um ákæru BÍÐA NIÐURSTÖÐU Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort ákæra verður gefin út á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni eða Tryggva Jónssyni vegna meintra skattalagabrota. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNMÁL Þórunn Sveinbjarnar- dóttir umhverfisráðherra hyggst á morgun upplýsa fjölmiðla um þróun mála í loftslagsmálum í heiminum. „Innan skamms hefst alþjóðleg samningalota um hvað muni taka við þegar Kyoto-bókunin rennur út áramótin 2012- 2013. Loftslags- ráðstefna í Balí í desember verður fyrsti fundur- inn í þessari lotu en henni mun ljúka með fimmtánda aðildarríkj- afundi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Kaup- mannahöfn árið 2009,“ segir í tilkynningu frá umhverfisráðu- neytinu. Ráðuneytið hefur boðið Árna Finnssyni, formanni Náttúruverndarsamtaka Íslands, og Pétri Reimarssyni, forstöðu- manni stefnumótunar- og samskiptasviðs Samtaka atvinnu- lífsins, á fundinn til að lýsa afstöðu sinna samtaka til komandi viðræðna. - gar Umhverfisráðherra: Aftur samið um loftslagið ÞÓRUNN SVEIN- BJARNARDÓTTIR FINNLAND Hátt í þrjátíu Grænfrið- ungar voru handteknir í Finnlandi í gær þegar þeir mótmæltu innflutningi á tíu þúsund tonnum af pálmaolíu til Finnlands. Grænfriðungarnir sátu í fangelsi í nótt en yfirheyrslur hefjast í dag. Mómælin eru liður í alþjóðleg- um mótmælum Grænfriðunga, að sögn finnska dagblaðsins, en þeir eru mótfallnir því að pálmaolía, sem er lífrænt eldsneyti, sé flutt út frá Suðaustur-Asíu. Í vefútgáfu Aftonbladet kemur fram að til að framleiða það magn sem var flutt til Finnlands þurfi svæði sem jafngildir 2.400 fótboltavöllum. - ghs Grænfriðungar handteknir: Mótmæltu inn- flutningi olíu Tveir í geimgöngu Tveir geimfarar héldu í gær í geim- göngu til að klára nýjasta hluta Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Þetta er síðasta geimganga áhafnarinnar áður en geimferjan Atlantis kemur á staðinn. ALHEIMURINN Hugo Chavez, forseti Venesúela, segist hafa fryst tvíhliða tengsl við nágrannaríkið Kólumbíu eftir að forseti Kólumbíu, Alvaro Uribe, batt enda á hlutverk Chavez sem sáttasemjara í gísladeilu við uppreisn- arhreyfinguna FARC. Chavez sagði ákvörðunina „hráka í andlitið“ og kallaði Uribe lygara. VENESÚELA Tengsl við Kólumbíu fryst VÍGALEGUR VIÐ DÓMKIRKJUNA Þessi vígalegi maður stóð fyrir utan dómkirkj- una í Mexíkóborg í gær. Kirkjunnar er vandlega gætt af lögreglu síðan mót- mælendur brutust inn í hana í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín Rúss- landsforseti sakar Bandaríkin um að standa á bak við ákvörðun Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) um að senda ekki kosningaeftirlitsmenn til Rúss- lands um næstu helgi, þegar þar verða haldnar þingkosningar. „Samkvæmt upplýsingum sem við höfum var þetta gert samkvæmt ráðleggingu bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, og við munum vafa- laust taka það með í reikninginn í samskiptum okkar við þetta ríki,“ sagði Pútín. „Markmið þeirra er greinilega að láta líta út fyrir að kosningarnar verði ekki lögmætar, en þeim mun ekki takast það.“ Sean McCormick, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytis- ins, segir ekkert hæft í þessum ásökunum og Urður Gunnarsdótt- ir, talsmaður kosningaeftirlits ÖSE, sagði þær fáránlegar. Um síðustu helgi voru tugir stjórnarandstæðinga handteknir á mótmælafundum, bæði í Moskvu og Pétursborg, aðeins viku fyrir kosningar. Í gær úrskurðaði dómari í Moskvu að Garrí Kasparov, fyrr- verandi heimsmeistari í skák, þyrfti að afplána fimm daga í fang- elsisdóm sem hann hlaut fyrir þátt- töku sína í mótmælunum. Kaspar- ov hafði áfrýjað dómnum. - gb Pútín sakar Bandaríkin um að ekkert kosningaeftirlit verður í Rússlandi: Hefur áhrif á samskiptin FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A FP GARRÍ KASPAROV Skákmeistarinn áfrýjaði dómsúrskurði en þarf að sitja fimm daga í fangelsi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.