Fréttablaðið - 27.11.2007, Síða 21
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA BÆKUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir þarf að
vera í góðu formi í vinnunni. Hún er í tveimur
söngleikjum um þessar mundir og líkir hverri
sýningu við tvöfalda æfingu.
„Ég er að leika í þrem til fjórum sýningum í hverri
viku, þar af tvisvar í Legi eftir Hugleik Dagsson og
hins vegar í Hér og nú einu sinni til tvisvar í viku en
það er alveg rosaleg brennsla í báðum þessum sýn-
ingum,“ segir Elma Lísa. Hver sýning sé eins og tvö-
föld æfing. „Annars er ég mikil tarnamanneskja og
fer þá gjarnan í jóga eða dans,“ segir Elma Lísa en
hún æfði dans í tíu ár. „Ég er ekki alltaf í ræktinni en
geri það þó á köflum. Annars hreyfi ég mig svo
mikið í vinnunni að það finnst mér stundum vera
bara alveg nóg.“
Elma Lísa segir Pilates jóga heilla sig mjög og
stefnir á að byrja á slíku námskeiði í janúar. „Ég hef
prófað það áður og það er alveg frábær hreyfing. Ég
er nú hrifnust af því að æfa jóga og dans og er
minnst í tækjunum. Svo finnst mér líka voðalega
gott að synda,“ segir hún.
Spurð hvort hún passi upp á mataræðið á jólunum,
segir Elma Lísa: „Ég er nú voðalega lítið í því að
passa mig og borða bara það sem mér sýnist. Mín
kenning er sú að ef maður er sem minnst að pæla í
því þá heldur maður sér bara fínum. Ef maður er
alltaf með þetta á heilanum eins og ég var stundum
þá er þetta alltaf einhver barátta,“ segir hún og hlær
og bætir því við að hún sé að fara að leika í nýjum
söngleik eftir jól þar sem verði líka mikið dansað.
„Manni líður náttúrlega miklu betur þegar maður er
að hreyfa sig og hefur miklu meiri orku.“
Spurð hvort hún geri eitthvað fleira til að halda
heilsunni í lagi segist hún vera algjör vítamínfíkill.
„Ég held ég sé alveg orðin háð Spirulina til dæmis,“
segir leikkonan og hlær.
sigridurh@frettabladid.is
Dansar og æfir jóga
Leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir hreyfir sig mest í vinnunni en er annars hrifin af jóga og dansi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FUNDAÐ UM FRIÐ
Andrés Ingi Jónsson átaka-
fræðingur er einn þeirra sem
tala á málþingi sem efnt er
til vegna útgáfu bókarinnar
Hnífur Abrahams eftir Óttar
M. Norðfjörð, rithöfund
og heimspeking.
BÆKUR 4
VOPN Í BARÁTTUNNI
Champix er nýtt lyf sem
hjálpar fólki sem vill hætta
að reykja með því að festast
við nikótínmóttaka í heilan-
um svo að nikótínið komist
ekki að.
HEILSA 3
Auglýsingasími
– Mest lesið