Fréttablaðið - 27.11.2007, Qupperneq 22
[ ]Ólívuolía er grundvallarhráefni í ítalskri matargerð. Einfaldleiki olíunnar lífgar oft upp á og dregur fram bragðgæði annars hráefnis sem notað er í matseldina auk þess sem ólívuolía þykir meinholl.
Kínversk stjórnvöld hafa fyrir-
skipað hóteleigendum í Peking
að birgja öll hótelherbergi sín
af smokkum.
Heilbrigðisyfirvöld í kínversku
höfuðborginni hafa reyndar hvatt
til þessa undanfarin ár, en hingað
til hafa aðeins 133 af 700 hótelum í
Peking brugðist við.
Samkvæmt upplýsingum frá
opinberu fréttastofunni Xinhua
greindust 973 einstaklingar með
HIV/AIDS í Peking fyrstu tíu mán-
uði ársins, og er það 54 prósenta
aukning frá árinu 2006.
Hóteleigendum er frjálst að
rukka gesti sína fyrir þær verjur
sem notaðar eru, en fyrirskipun
stjórnvalda sýnir viðleitni þeirra
til að fyrirbyggja frekara eyðni-
smit í Kína.
Í lok október höfðu 4.663 eyðni-
smitaðir einstaklingar verið skráð-
ir í Peking einni frá árinu 1985; þar
af 171 útlendingur, 964 heimamenn
og 3.524 frá öðrum svæðum í Kína.
- þlg
Verjur með
lyklunum
Hótelgestir í Peking eiga að geta fundið
smokka á herbergjum sínum.
Úrlausnir fyrir
reykingafólk
ÝMSIR AÐILAR BJÓÐA UPP Á
REYKLEYSISMEÐFERÐ OG STUÐNING
■ Reyksíminn – Ráðgjöf í reykbindindi
800 6030/ www.8006030.is
■ Heilsugæslustöðvar um land allt
■ Viltu hætta að reykja? – Krabba-
meinsfélag Reykjavíkur
■ Aðstoð við að hætta að reykja –
Heilsustofnun NLFÍ
■ Reyklaust líf/ Reykjalundi
■ Reyklaus.is, ný gagnvirk heimasíða
■ Hjartavernd, áhættumat www.
hjarta.is
■ Reykleysisnámskeið í Mývatnssveit,
Dagbjört Bjarnadóttir, hjúkrunarfræð-
ingur
■ Aðstoð til reykleysis fyrir fólk sem á
von á barni – Miðstöð
mæðraverndar
í Reykjavík.
Reykingar valda skalla
VÍSINDAMENN HAFA FUNDIÐ ENN EINA NEIKVÆÐA HLIÐ REYKINGA
Reykingar virðast auka líkur á skallamyndun ef marka má niðurstöður
vísindamanna við Far Eastern Memorial-spítalann í Taipei.
Hingað til hefur skallamyndun karlmanna aðallega verið tengd erfðum
og karlhormónum. Vísindamennirnir hafa þó komist að því að asískum
karlmönnum, sem síður mynda skalla en karlar frá Vesturlöndum, sé hættara
við að fá skalla ef þeir reykja.
Rannsóknin, sem náði til 740 taívanskra karlmanna sem að meðaltali
voru um 65 ára gamlir, birtist í tímaritinu Archives of Dermatology.
Vísindamennirnir söfnuðu saman upplýsingum um á hvaða aldri mennirnir
fóru að mynda skalla og tóku saman ýmsa áhættuþætti. Niðurstaðan varð sú
að ef mennirnir reyktu að minnsta kosti
20 sígarettur á dag voru meiri líkur á því
að þeir mynduðu skalla, jafnvel þegar
aðrir áhættuþættir höfðu verið teknir
með í reikn inginn. Vísindamennirnir
leiða líkur að því að reykingarnar
skemmi hársekkina eða hafi
eyðileggjandi áhrif frumur í
hársverðinum. - ve
Offita hrjáir í auknum mæli
íbúa Vesturlanda og eru
Íslendingar ekki þar undan-
skildir. Dr. Tinna Laufey Ás-
geirsdóttir heilsuhagfræðingur
hefur skrifað bók um málið.
Meirihluti fullorðinna Íslendinga
er yfir kjörþyngd og í bókinni er
leitað svara við því hvaða hag-
fræðilegu áhrif þeir lifnaðarhætt-
ir sem orsaka offitu hafa. Einnig
er leitað svara við fleiri spurning-
um er snerta holdafar enda heitir
bókin „Holdafar – hagfræðileg
greining“.
Lýðheilsustöð fól Tinnu að gera
heilsuhagfræðilega úttekt á
of fituvanda Íslendinga, orsökum
og mögulegum úrlausnum og er
bókin afrakstur þeirrar vinnu. Í
samantekt kemur meðal annars
fram að hægt sé að stöðva fram-
gang ofþyngdar og koma í veg
fyrir hana með breyttri hegðun.
- hs
Holdafarið greint
Í bókinni eru sjö tillögur að aðgerðum til
að taka á offituvanda Íslendinga.
11
-2
00
7
N
át
tú
ra
n
.is
www.natturan.is
....kíktu inn, opið allan sólarhringinn!
....og pakkinn
er sendur beint
heim til okkar.
Náttúran.is gefur
góð ráð um allt
sem varðar heilsu
og umhverfisáhrif
á heimilinu...
..og er líka
náttúrumarkaður
með lífrænar og
umhverfisvottaðar
vörur og gjafir...
Fæst í Bónus og Inspired (Flugstöðinni)
Japanir hafa sushi
Við höfum bitafisk og
harðfisk í hæsta gæðaflokki
Íslenskir karlmenn
verða nú langlífastir!
www.madurlifandi.is
Næstu fyrirlestrar og námskeið
Hátíðakökur og eftirréttir
Fimmtudagur 29 nóvember
Fimmtudagur 6. desember
kl 18:00 - 20:00
Leiðbeinandi:
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir
meistarakokkur
Staður:
Maður lifandi Borgartúni 24
Skráning:
madurlifandi@madurlifandi.is
Verð: 3.500