Fréttablaðið - 27.11.2007, Side 35
ÞRIÐJUDAGUR 27. nóvember 2007 27
Söngkonan Ragnheiður Gröndal
sat fyrir svörum í viðtalsþætti Evu
Maríu Jónsdóttur síðastliðið
sunnudagskvöld. Viðtalið fór vel
fram í alla staði og var aðdáendum
söngkonunnar kærkomið tækifæri
til þess að heyra hana viðra skoð-
anir sínar á ýmsum málefnum.
En alltaf er það jafn ljúft að
hlusta á þessa ungu hæfileikakonu
kyrja lög. Því skal tónleikum henn-
ar annað kvöld á vegum djass-
klúbbsins Múlans tekið fagnandi,
en þar kemur hún fram ásamt
bróður sínum Hauki Gröndal og
hljómsveit.
Á efnisskrá tónleikanna verða
eftirlætislög þeirra systkina með
söngkonunni góðkunnu Billie Holi-
day. Billie er heimsþekkt fyrir
magnaðar túlkanir sínar á djass-
tónlist á milli- og eftirstríðsárun-
um.
Meðleikarar þeirra systkina
verða þeir Ásgeir Ásgeirsson á
gítar, Þorgrímur Jónsson á bassa
og Erik Qvick á trommur.
Múlinn er samstarfsverk-
efni Félags íslenskra hljóm-
listar manna og Jazzvakningar.
Klúbb urinn heitir í höfuðið á
helsta djassgeggjara þjóðar inn-
ar, Jóni Múla Árnasyni sem jafn-
framt var heiðursfélagi og vernd-
ari Múlans. Tónleikarnir fara
fram annað kvöld á Domo bar í
Þingholtsstræti og hefjast kl. 21.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. - vþ
Systkinin Gröndal djassa á Domo
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL Þessi vinsæla
og fjölhæfa söngkona kemur fram á
Domo annað kvöld.
HANDRIT Útlagar koma fyrir í mörgum
íslenskum miðaldahandritum.
Joonas Ahola frá Háskólanum í
Helsinki heldur fyrirlesturinn The
Saga Outlaw and Medieval Iceland
annað kvöld kl. 20. Fyrirlesturinn
verða haldinn í húsi Sögufélagsins
við Fischersund 3.
Í fyrirlestrinum mun Joonas
greina frá efni doktorsverkefnis
síns við Þjóðfræðideild Háskólans
í Helsinki, en verkefnið fjallar um
útlaga í íslenskum miðaldahand-
ritum. Fyrirlesturinn verður
fluttur á ensku og er öllum opinn.
Joonas veltir fyrir sér mikil-
vægi frásagna um útlaga í
íslenskum fornritum á þeim tíma
sem þau voru rituð. Farið verður
ofan í saumana á merkingu
útlagafrásagna í Íslendingasögun-
um í stuttu máli og rætt hvað
nútímarannsóknir geta sagt okkur
um mismunandi þýðingu textanna
fyrir ritara þeirra og áheyrendur.
- vþ
Hvers vegna
útlagar?
TÓNLIST Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari stóð fyrr á þessu ári fyrir
myndarlegu átaki í hljóðritunum
á smærri verkum Sveinbjörns
Sveinbjörnssonar sem brátt koma í
verslanir í útgáfu Naxos.
Væntanlegur er diskur á forlagi
Naxos-útgáfunnar sem mörgum er
kunn með verkum eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson sem kunnastur er
hér á landi fyrir þjóðsönginn sem
tónskáldið samdi við ljóð Mattíasar
Jochumssonar. Það er Nína
Margrét Gautadóttir píanóleikari
sem stóð fyrir hljóðritunum á
nokkrum verka Sveinbjarnar fyrr
á þessu ári en nú eru liðin 160 ár
frá fæðingu hans. Sveinbjörn var
brautryðjandi í íslensku tónlistar-
lífi og eins og þeir fáu sem vildu
eiga feril á því sviði lista starfaði
hann mest erlendis, bjó í Dan-
mörku og Skotlandi. Verk hans
urðu því fæst hluti af íslenskum
tónbókmenntum eins og þeirra
sem störfuðu hér heima. Hann
samdi talsvert af tónlist og það eru
píanó-tríó og fiðlusónata sem eru
helstu verkin á disknum auk
lýrískra smáverka. Auk Nínu leika
á disknum þau Auður Hafsteins-
dóttir, Sigurgeir Agnarsson og
Sigurður Bjarki Gunnarsson. Eru
tvö verkanna sem þau spila
frumhljóðritanir. Verkefnið var
styrkt af Tónskáldasjóði Ríkisút-
varpsins, Hljómdiskasjóði FÍT og
Þjóðhátíðarsjóði.
Nína og félagar munu fylgja
útgáfu disksins eftir með tónleika-
haldi er nær dregur jólum en hann
verður fáanlegur í öllum betri
hljómplötuverslunum og ætti í
raun að vera skylduhlustun hjá
áhugamönnum um íslenskar
tónmenntir frá upphafi borgara-
legrar tónlistarsköpunar hér á
landi. pbb@frettabladid.is
Verk eftir
Sveinbjörn
komin á disk
Kór leitar
félaga
Karlakórinn Stefnir í Mosfells-
bæ hefur hafið nýjan starfs-
vetur. Síðastliðinn vetur gerði
kórinn víðreist og fór meðal
annars til Rússlands og
Finnlands.
Fyrirhugaðar eru söngferðir
um Norður- og Austurland og
einnig á erlendar slóðir með
vorinu. Stefnir getur enn bætt
við sig góðum mönnum í allar
raddir og eru áhugasamir
hvattir til að sækja um sem
fyrst með því að hafa samband
við Hörð í síma 694 7525 eða
með því að senda línu á
netfangið stefnir@stefnir.is.
- vþ
Gildir til 2. desember
VSK
af öllum
húsgögnum
Sófar Hornsófar
Tungusófar Relax sófar
Borðstofuhúsgögn
Fáanlegt í Hagkaupum Smáralind og á Akureyri
Mikið úrval
af glæsilegum húsgögnum
Afnemum
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður sinn virðisaukaskatt af þessari sölu.
Verðlækkunin er alfarið á kostnað Hagkaupa.