Fréttablaðið - 27.11.2007, Side 38
30 27. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
Tímaritið Entertainment
Weekly hefur krýnt
skemmti krafta ársins 2007.
J.K. Rowling trónir á toppn-
um innan um bæði gömul
andlit og ný.
Entertainment Weekly hefur skipt
skemmtikröftunum niður í nokkra
flokka, sem virðast sækja inn-
blástur sinn í hefðir í kringum
útskriftir úr skólum þar ytra.
Þannig er að finna hóp ræðumanna
á listanum, vinsælustu persónurn-
ar, undrabörnin, bekkjartrúðana,
umtalaðasta hópinn og að lokum,
drottningu listans.
Undir ræðumennina falla þekkt
andlit á borð við George Clooney,
Will Smith og Angelinu Jolie, sem
þykja öll hafa áorkað miklu á
árinu. Jolie hefur til dæmis vakið
mikla athygli í myndinni A Mighty
Heart, og þá ekki síðri sem móðir
skrímslisins Grendels í Bjólfs-
kviðu.
Matt Damon, Johnny Depp og
Kanye West slást í för með Kath-
erine Heigl og Carrie Underwood
hvað varðar vinsælustu skemmti-
kraftana, en þau hafa öll sett mark
sitt á árið með kvikmyndaleik eða
tónlistarútgáfu. Undrabörnin eru
hins vegar þau Zac Efron, sem lék
meðal annars í Hairspray, og söng-
konan Rihanna, sem er Íslending-
um vel kunnug. Þeim til samlætis
eru leikkonan Miley Cyrus, sem
leikur í gríðarlega vinsælum þætti
að nafni Hannah Montana vestan-
hafs, og Shia LaBeouf úr Transfor-
mers.
Bekkjartrúðarnir eru úr öllum
áttum, en þeirra á meðal eru Will
Ferrell, Simpson-fjölskyldan og
Vanessa Williams, sem hefur vakið
mikla athygli með frammistöðu
sinni sem hin illskeytta Wilhelm-
ina Slater í þáttunum Ugly Betty.
Í hópi umtalaðasta fólksins
þekkja Íslendingar helst Amy
Winehouse og Gerard Butler, sem
lék í Bjólfskviðu Sturlu Gunnars-
sonar hér á landi.
Það er hins vegar J.K. Rowling
sem slær alla út, en eins og flestir
vita lauk bókaflokknum um Harry
Potter á þessu ári. Entertainment
Weekly útskýrir valið á eftirfar-
andi hátt: „Það sem hún gerði var
mjög, mjög erfitt og hún gerði það
mjög, mjög vel og gladdi þannig
hundruð milljóna barna og full-
orðinna mjög, mjög mikið.“
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
10
7
12
14
16
10
16
16
14
DAN IN REAL LIFE kl. 8 - 10
RENDITION kl. 8 - 10:10
WEDDING DAZE kl. 6
ROGUE ASSASSIN kl. 6
10
16
12
16
14
DAN IN REAL LIFE kl.5.45- 8 - 10.15
LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.5.20 - 8 - 10.40
LIONS FOR LAMBS kl.6 - 8 - 10
THIS IS ENGLAND kl.6 - 8 - 10
DAN IN REAL LIFE kl. 3.40 - 5.45 - 8 - 10.15
DAN IN REAL LIFE LÚXUS kl. 3.40 - 5.45- 8 - 10.15
WEDDING DAZE kl. 3.40-5.50- 8 -10.10
BALLS OF FURY kl. 4 - 6 - 8
ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 4 - 6
THE HEARTBREAK KID kl. 8 - 10.30
LIONS FOR LAMBS kl. 10
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
RENDITION kl.3- 5:30- 8 -10:30
WEDDING DAZE kl.3
EASTERN PROMISES kl. 10.40
SYNDIR FEÐRANNA SÍÐUSTU SÝN. kl. 4 - 6 - 8 - 10
VEÐRAMÓT SÍÐUSTU SÝN. kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10:20
ELIZABETH kl. 5.30
NÝTT Í BÍÓ!
Eitthvað hefur komið fyrir Dan. Það er flókið. Það
er óvenjulegt. Það er fjölskylduvandamál.
Steve Carell úr 40 year Old Virgin og Evan
Almighty leikur ekkill sem verður ástfanginn af
kærastu bróður síns!
Frábær rómantísk gamanmynd í
eftir handrithöfund About a Boy
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR
ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFSTBRÚÐKAUPSBILUN
DAN Í RAUN OG VERU
LÍF RÓSARINNAR
BORÐTENNISBULL
ÁSTARSORG
LOFORÐ ÚR AUSTRI
ÞETTA ER ENGLAND
LJÓN FYRIR LÖMB
Stórskemmtileg
rómantísk
gamanmynd
- bara lúxus
Sími: 553 2075
RENDITION kl. 5.30, 8 og 10.30 16
AMERICAN GANGSTER kl. 7 og 10 16
MR. WOODCOCK kl. 6 L
ROGUE ASSASSIN kl. 10.30 16
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
SV MBLLIB TOPP5.IS
„Þetta er eitthvað sem hefur vant-
að hérna niðri í bæ,“ segir Arnar
Þór Gíslason veitingamaður sem
opnar enskan pöbb í Austurstræti
á fimmtudaginn. Barinn verður til
húsa í Austurstræti 12, þar sem
Deco var áður, og kallast einfald-
lega Enski barinn, The English
Pub.
„Þetta er alvöru enskur pöbb
með teppi á gólfunum eins og fólk
ætti að þekkja að utan,“ segir
Arnar þegar hann er beðinn að lýsa
staðnum. Arnar segir að staðurinn
ætti að henta vel fyrir þá sem vilja
kíkja við eftir vinnu til að fá sér
eina kalda ölkrús. Þá muni einnig
verða mikið lagt upp úr góðri
stemningu yfir fótboltaleikjum.
Guinness-bjórinn verður að
sjálfsögðu í hávegum hafður á
enska pöbbnum en Arnar lofar
einnig fjölda annarra tegunda,
sem og glæsilegu úrvali af viskí. Á
miðjum barnum verður svo lukku-
hjól sem gestir staðarins geta
spreytt sig á. „Fólk borgar þús-
undkall fyrir að snúa hjólinu og
getur unnið allt frá einu skoti og
upp í tuttugu bjóra,“ segir Arnar
sem hyggst einnig selja fólk bjór í
metratali: „Já, fólk getur keypt
sér metra af bjór. Það eru tíu litlir
bjórar á einum planka. Það er hug-
mynd sem við fengum frá Berlín
og skapar alltaf mikla stemn-
ingu.“
Enskur pöbb í Austurstræti
ENSKI PÖBBINN Arnar Þór Gíslason á nýjum bar sínum í Austurstræti, The English
Pub, sem hann opnar á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dagskrárgerðarmaðurinn Sverrir
Þór Sverrisson, betur þekktur sem
Sveppi, hefur gefið út spurninga-
spilið Bíóbrot þar sem reynir á
kvikmyndaþekkingu þátttakenda.
„Ég gerði þetta með þremur
æskufélögum mínum úr Breið-
holtinu. Við vorum að spila ensku
útgáfuna af spilinu, Real Clue, og
fannst bráðvanta svona kvik-
myndaspil á íslensku. Höfðum því
samband við framleiðandann og
fengum leyfi til að
gefa það
út á
Íslandi,“
segir
Sveppi, en spilið hefur verið í
bígerð í um tvö ár. Hönnunarfyrir-
tækið Koma hannaði nýtt útlit
spilsins. „Það er nauðsynlegt að
borðið í svona borðspilum sé flott,“
segir Sveppi, „Við breyttum því og
gerðum það veglegra. Ég er ljóm-
andi sáttur við útkomuna.“
Bíóbrot inniheldur margs
konar verkefni sem spila-
aðdáendur ættu að þekkja
vel. Meðal annars þurfa
keppendur að teikna og leika
kvikmyndatitla eða annað
tengt bíómyndum, í
bland við hefð-
bundnar vísbend-
ingaspurningar.
„Þú þarft ekki
að vera kvik-
myndagúrú
til að spila Bíóbrot, spurt er út í
myndir sem flestir ættu að hafa
séð,“ segir Sveppi. „Við breyttum
talsvert frá ensku útgáfunni.
Tókum út spurningar um gamlar
klassískar myndir sem við sjálfir
þekktum ekki og settum í staðinn
inn íslenskar myndir, leik-
ara og leikstjóra.“
Kvikmyndaspilið Bíó-
brot fæst í verslun-
um BT.
Sveppi gefur út bíómyndaspil
SVEPPI Fannst vanta
kvikmyndaspil á
íslensku.
BÍÓBROT
Borðspil fyrir
kvikmynda-
áhugafólk.
Skemmtikraftar ársins
J. K. ROWLING Rithöfundurinn J.
K. Rowling trónir á toppi lista Ent-
ertainment Weekly yfir skemmti-
krafta ársins. Einum vinsælasta
bókaflokki allra tíma lauk þegar
hún sendi frá sér síðustu bókina
um Harry Potter.
KATHERINE HEIGL
Á lista Entertainment Weekly yfir skemmtikrafta ársins
2007 kennir ýmissa grasa. Þar er að finna þekkt andlit á
borð við George Clooney og Matt Damon, sem var einmitt
kosinn kynþokkafyllsti maðurinn af People um daginn, og
nýgræðlinga eins og Zac Efron og Miley Cyrus, sem enn eru
Íslendingum ókunn að mestu. Listinn teygir sig frá teiknuð-
um stjörnum Simpson-fjölskyldunnar til Amy Winehouse,
sem þykir enn eiga hrós skilið fyrir hæfileika sína, þó að
meira hafi borið á öðrum afrekum hennar upp á síðkastið.
TRÚÐAR OG UNDRABÖRN
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
R
IH
A
N
N
A
GERARD BUTLER
A
N
G
EL
IN
A
J
O
LI
E
VA
N
ESSA
W
ILLIA
M
S