Fréttablaðið - 27.11.2007, Síða 39

Fréttablaðið - 27.11.2007, Síða 39
ÞRIÐJUDAGUR 27. nóvember 2007 31 Hús Flea, bassaleikara Red Hot Chili Peppers, brann til kaldra kola í eldum sem hafa geisað í Malibu í Kaliforníu. Flea var sem betur fer ekki staddur heima hjá sér þegar bruninn varð því hann hafði flutt á annan stað og hafði auglýst húsið til sölu fyrir rúmar þrjú hundruð milljónir króna. Alls hafa um fimmtíu glæsivill- ur eyðilagst í eldinum og var Hollywood-stjörnunum Minnie Driver og Matthew McConaughey gert að yfirgefa heimili sín ásamt tíu þúsund manns til viðbótar, þrátt fyrir að hægt hafi á vindin- um á svæðinu. Fleiri þekktar per- sónur sem búa í Malibu hafa verið varaðar við eldunum, þar á meðal Britney Spears, Courtney Love og Sting. Arnold Schwarzenegger, ríkis- stjóri Kaliforníu, lýsti í síðasta mánuði yfir neyðarástandi vegna eldanna sem hafa verið afar skæðir. Hús Flea brann RED HOT CHILI PEPPERS Flea, bassaleik- ari Red Hot Chili Peppers, er annar frá hægri á myndinni. Breska fyrirsætan Katie Price, betur þekkt sem Jordan, er búin að leysa jólagjafa- vandamál ársins. Hún ætlar að gefa eiginmanni sínum, Peter Andre, ný brjóst í jólagjöf. Brjóstin munu þó prýða hana sjálfa en verða eigin- manninum eflaust uppspretta jólagleði. Jordan fer þar með í sína fjórðu brjóstaað- gerð, en hún ætlar víst að minnka við sig í þetta skiptið. Daniel Craig er mættur aftur í líkamsrækt til að komast í form áður en tökur hefjast á næstu Bond-mynd. Hann vakti athygli hjá kvenþjóðinni víða um heim í síðustu mynd, Casino Royale, en segist hafa verið fljótur að slá slöku við í ræktinni. Craig ábyrgist hins vegar að vera aftur kom inn í form þegar tökur hefjast. „Þegar þessi gaur fer úr skyrtunni á hann að líta út eins og hann gæti drepið einhvern,“ segir Craig. Naglanum Vinnie Jones var hent út af bar í Cork á Írlandi á dögun- um, eftir að hafa hrætt starfsfólkið. Vinnie fór þar með setningar úr næstu glæpamynd sinni fyrir drykkjufélaga sína, en ekki vildi betur til en svo að rekstrarstjóranum varð illa við og bað hann um að fara þar sem hann hélt að þar væri glæpa- maður á ferð. „Við gátum ekki hætt að hlæja og þegar við útskýrðum hver Vinnie er dó hann næstum því af skömm,“ segir vinur leikarans. Byron Velvick, fyrrverandi piparsveinn úr þáttunum The Bachelor, komst í hann krappan á dögunum. Kærasta hans, Mary Delgado, sem hann trúlofaðist einmitt í lokaþætti The Bachelor árið 2004, hefur verið handtekin í Flórída og sökuð um heimilisofbeldi. Þolandinn ku vera Byron sjálfur sem gengur nú um með sprungna vör. FRÉTTIR AF FÓLKI Söngkonan Hrund Ósk Árnadóttir heldur tónleika á Domo í kvöld ásamt hljómsveitinni Park Projekt sem er skipuð Pálma Gunnarssyni, Gunnlaugi Briem, Agnari Má Magn- ússyni og Kristjáni Edelstein. Hrund Ósk kom fyrst fram á sjónarsviðið þegar hún vann Söng- keppni framhaldskólanna fyrir nokkrum árum. Eftir mennta- skólanám tók við nám í Söngskól- anum í Reykjavík og tónleikahald á hinum ýmsu djass- og blúshátíð- um vítt og breitt um landið. Núna standa yfir upptökur á fyrstu plötu hennar. Tónleikarnir í kvöld hefj- ast klukkan 21. Hrund Ósk syngur með Park Projekt HRUND ÓSK ÁRNADÓTTIR Hrund Ósk heldur tónleika á Domo í kvöld. M YN D /SVEIN N TH O R A R EN SEN                                                  Reykskynjarar á þúsund kall (rafhlaða innifalin)! Hvers virði er fjölskyldan? 990 krónur* Reykskynjarar eru ódýrir. Auðvelt er að setja þá upp og halda þeim við. Þeir eru mikilvægasta öryggistæki heimilisins. Skerandi vælið í þeim hefur bjargað fjölmörgum mannslífum. Samt eru talsverð brögð að því að reykskynjara vanti á íslensk heimili. Eftir hverju ert þú að bíða? Þú færð reykskynjara, slökkvitæki, eldvarnateppi og annan eldvarna- búnað í byggingavöruverslunum, sérverslunum, hjá trygginga- félögunum og víðar. Er þér þá nokkuð að vanbúnaði? Ítarlegar upplýsingar um eldvarnir heimilanna birtust í Eldvarnablaðinu sem kom út með Morgunblaðinu 23. nóvember. Blaðið er að finna á www.lsos.is. TM er samstarfsaðili LSS í Eldvarnaátakinu 2007. TRYGGINGAMIÐSTÖÐINwww.lsos.is www.tm.is *dæmi um verð í byggingavöruverslun 31.10.07 – á ekki við reykskynjarann á myndinni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.