Fréttablaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 104
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Í dag er föstudagurinn 30.
nóvember, 334. dagur ársins.
10.41 13.16 15.51
10.48 13.01 15.13
Þrátt fyrir (eða kannski vegna þess) að við höfum aldrei verið
jafn meðvituð um lýðheilsu er
of fitan að ríða okkur á slig. Vega-
nestið til komandi kynslóða er
óhóflega skammtað og saman-
stendur aðallega af unnum kjöt-
vörum og mettaðri fitu. Það fennir
seint í óvenjudjúp sporin sem
bústnir fætur okkar skilja eftir
sig og á milli þeirra má greina slóð
skuldahalans sem aukakílóin hafa
í för með sér. Ef fer sem horfir
verður V-deginum breytt í bar-
áttudag gegn kynbundnu ofeldi.
SJÁLFSAGT er þess ekki langt að
bíða að mörmengaður hugur okkar
fari að líta öfundaraugum til Afr-
íku, álfunnar sem við vorkenndum
svo sárt fyrir stuttu. Smám saman
fara hinir oföldu að sjá næringar-
skort og niðurgang sem hagnýtar
aðferðir til að halda sér slank.
Þegar öllu er á botninn hvolft
glíma Vesturlönd í rauninni við
sama vanda og þróunarlönd. Þetta
snýst allt um magamál – þau þurfa
að rýmka sitt en við að minnka
okkar. Sultur eru að verða jafn
mikið samfélagsmein á Íslandi og
sultur er í Afríku. Þar vantar pen-
ing fyrir áveitum. Hér vantar pen-
ing fyrir hjáveitum.
NÚ er magamál að linni. Offitu-
vandinn er í rauninni togstreita
milli þriggja sjónarmiða; mann-
eldis, munúðar og mannúðar (ef
ég væri sjálfshjálparbók myndi
ég kalla þau M-in þrjú). Tilraunir
til að finna jafnvægi þarna á milli
hafa hingað til skilað sér í hálfkáki
á borð við það að fá sér sykurlaust
kók með hamborgaranum. Í
áfengis lögum er kveðið á um að
bannað sé að selja þeim vín sem er
augljóslega drukkinn. Í stað þess
að gaufast í að banna súkkulaði-
auglýsingar fyrir börn er ekkert
því til fyrirstöðu að skylda
afgreiðslufólk á skyndibitastöðum
til að synja viðskiptavinum yfir
kjörþyngd afgreiðslu („mér sýnist
þú hafa fengið nóg, farðu heim og
hlauptu þetta af þér“).
SJÁLFSAGT hefur kjörorðið
„minna er meira“ aldrei átt jafn
vel við og nú. Á tuttugustu öld
ruddi sér til rúms sú lífsspeki að
manni þyrfti að„að þykja vænt um
sjálfan sig“, „líða vel í eigin
skinni,“ og fleiri klisjur. Sjáið
hverju það hefur skilað okkur.
Lífsfyllingin hefur fært sig úr sál-
inni yfir á lærin. Lausnin felst í
skammti af hollri sjálfsfyrirlitn-
ingu; hafa ímugust á spegilmynd
sinni og gera það að lífsmarkmiði
sínu að spegillinn hafi sem minnst
að spegla. Aðeins þá á maður
möguleika á að upplifa sanna ham-
ingju: að koma fram á forsíðu Vik-
unnar – í allt of víðum buxum.
Sultur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Dramatískt lífshlaup Guðna Ágústssonar; skemmtilegar sögur, hatrömm átök
að tjaldabaki. Einn vinsælasti stjórnmálamaður þjóðarinnar segir
söguna eins og hún horfir við honum.
Sigmundur Ernir Rúnarsson ræðir við Guðna en styðst líka
við fjölmargar heimildir sem ekki hefur verið vitnað til áður.
„Guðni f
er á
kostum
… gríðarl
ega
skemmt
ileg afle
strar.
... ég gat
ekki var
ist því a
ftur og
aftur að
finnast
stílbrög
ð og
texti Sig
mundar
hreinast
a
lostæti.”
– Össur
Skarphé
ðinsson
,
eyjan.is
„GUÐNI FER
Á KOSTUM“
„Sigmundi Erni hefur tekist að skrifa einhverjaáhugaverðustu og skemmtilegustu sögu um íslenskan stjórnmálamann sem ég hef lesið í mörg ár.”
– Runólfur Ágústsson,
framkvæmdastjóri Keilis,
runolfur.is
1. SÆTI
Metsölulisti Eymunds
sonar.
Handbækur, fræðibæ
kur
og ævisögur
21.11.07 - 27.11.07