Fréttablaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 92
60 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
16
10
7
12
12
16
16
16
14
HITMAN kl. 6 - 8 - 10*
DAN IN REAL LIFE kl. 6 - 8
RENDITION kl. 10
*KRAFTSÝNING
16
16
16
12
16
14
HITMAN kl.5.50 - 8 - 10.10
DAN IN REAL LIFE kl.5.45- 8 - 10.15
LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.5.20 - 8 - 10.40
LIONS FOR LAMBS kl. 8 - 10
THIS IS ENGLAND kl.6
HITMAN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
HITMANLÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
DAN IN REAL LIFE kl. 5.45 - 8 - 10.10
WEDDING DAZE kl. 3.40 - 5.50 - 8 -10.10
BALLS OF FURY kl. 4 - 6
ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 4
THE HEARTBREAK KID kl. 8 - 10.30
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
ACROSS THE UNIVERSE kl. 5.20 - 8 - 10.40
RENDITION kl. 5.30- 8 -10.30
EASTERN PROMISES kl. 10
SYNDIR FEÐRANNA SÍÐUSTU SÝN. kl. 6 - 8
VEÐRAMÓT SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.40 - 8 - 10:20
NÝTT Í BÍÓ!
BRÚÐKAUPSBILUN
DAN Í RAUN OG VERU
LÍF RÓSARINNAR
BORÐTENNISBULL
ÁSTARSORG
LOFORÐ ÚR AUSTRI
ÞETTA ER ENGLAND
LJÓN FYRIR LÖMB
Stórskemmtileg
rómantísk
gamanmynd
MÖGNUÐ MYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF
STÚTFULL AF ÆÐISLEGRI BÍTLATÓNLIST!
Magnaður spennutryllir sem gerður er eftir hinum
frábæru tölvuleikjum með Timothy Olyphant úr Die
Hard 4.0 í fantaformi.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
HITMAN kl. 6, 8 og 10-POWER 16
RENDITION kl. 5.30, 8 og 10.30 16
AMERICAN GANGSTER kl. 10 16
MR. WOODCOCK kl. 4, 6 og 8 L
ÆVINTÝRAEYJA IBBA kl. 4 - 600 kr. L
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
SV MBL
LIB TOPP5.IS
LIB - TOPP5.IS
HJ - MBL
Svavar Lúthersson, fram-
kvæmdastjóri Istorrent,
sem á og rekur torrent.
is, segist hafa íhugað
meiðyrðamál á hendur
Snæbirni Steingrímssyni,
framkvæmdastjóra SMÁÍS.
Hann segist reiðubúinn að
ganga eins langt og hann
getur í málinu.
„Við hvetjum notendur til að beita
siðprúðum aðferðum til að koma
skoðunum sínum á framfæri. Snæ-
björn Sigurður Steingrímsson, sak-
laust fórnarlamb almennings, er
hér með beðinn afsökunar á fram-
ferði þeirra sem beindu ásökunum
sínum að honum í misgáningi,“
segir í fréttatilkynningu sem
Is torrent hefur sent frá sér en
fyrir tækið á og rekur hina
umdeildu vefsíðu torrent.is. Henni
hefur nú verið lokað tímabundið
vegna lögbanns. Eins og Frétta-
blaðið greindi frá varð Snæbjörn
Sigurður fyrir ómaklegum árásum
brjálaðra netverja sem töldu að
hann væri framkvæmdastjóri
SMÁÍS. Fréttablaðið sagði frá því
að Snæbjörn Sigurður hefði fengið
hundruð SMS-skeyta og símtala
þar sem honum var hótað öllu illu.
Eftir að fréttin birtist linnti þó
þessum árásum og Snæbjörn getur
nú loksins haft símann sinn í friði.
Svavar Lúthersson, sem verið
hefur andlit vefsíðunnar, segir að
forsvarsmönnum hennar hafi ekki
fundist annað hægt. „Okkur finnst
þetta á köflum hafa gengið kannski
full langt,“ segir Svavar og jafn-
framt kemur fram að þeir „harmi
sumar þær aðferðir sem almenn-
ingur hefur ákveðið að beita til að
tjá sig um ranglæti lögbannsins“.
Svavar krefst þó einnig að Snæ-
björn Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri SMÁÍS, biðjist
afsökunar á ummælum sínum í
fjölmiðlum. Svavar segir þetta
einkum snúa að því að Snæbjörn
hafi þjófkennt sig og aðra notend-
ur án þess að dómur sé fallinn.
Hann sé ekki með stöðu grunaðs í
málinu og að allir menn séu
saklausir uns sekt þeirra
sé sönnuð. Spurður
hvort til greina kæmi
að höfða meiðyrðamál
á hendur Snæbirni
sagði hann það vissu-
lega hafa verið íhugað
en ekki hefði verið
tekin nein afstaða
til þess á þessu
stigi. Svavar
sagðist ekkert
ætla að gefa
eftir í málinu
og tjáði Frétta-
blaðinu að hann væri reiðubúinn að
fara með málið eins og langt og það
kæmist.
Snæbjörn Steingrímsson sagðist
í samtali við Fréttablaðið ekki ætla
að taka orð sín til baka, hann hefði
ekki tekið of djúpt í árinni og hann
stæði fast á sinni skoðun um eðli
málsins. En hvað haturspósta og
hótanir varðar vissi Snæbjörn
að Svavar stæði ekki á bak við
slíkt. „Við höfum hist nokkr-
um sinnum og þau samskipti
hafa öll verið á eðlilegum
nótum með handabandi
og öðru,“ segir
Snæbjörn en mál
SMÁÍS fyrir
hönd fjögurra
rétthafasam-
taka verður
þingfest 12.
desember.
- fgg
Istorrent biðst afsökunar
VILL AFSÖKUNARBEIÐNI Svavar Lúthers-
son vill fá afsökunarbeiðni frá fram-
kvæmdastjóra SMÁÍS en biður jafnframt
nafna hans afsökunar á óþægindunum.
SÉR EKKI EFTIR NEINU Snæbjörn Steingrímsson segist alls ekki hafa tekið of djúpt í
árinni og stendur fast á sinni skoðun.
SAKLAUST FÓRNARLAMB Snæbjörn
Sigurður hefur fengið formlega
afsökunarbeiðni frá Istorrent.
„Þetta er dýr framleiðsla, svona
jóladagatal,“ segir Þórhallur
Gunnarsson, dagskrárstjóri
RÚV, en jóladagatalið í ár hjá
Ríkissjónvarpinu verður Jól á
leið til jarðar eftir Sigurð Brynj-
ólfsson sem frumsýnt var fyrst
árið 1994 og síðan aftur notað
1999.
Að undanförnu hefur nokkuð
örlað á gagnrýni í garð Sjón-
varpsins um að endursýna alltaf
gömul jóladagatöl og í fyrra var
Stjörnustrákurinn þannig notað-
ur í þriðja sinn en hann var fyrst
sýndur árið 1991. Þórhallur
bendir á að svipað kerfi sé líka
hjá leikhúsunum enda sé komin
ný kynslóð barna ef fimm til sex
ár líði á milli sýninga.
Hann segir hins vegar nýtt
jóladagatal verða frumsýnt um
næstu jól. „Þetta tekur tíma og
við viljum gera þetta almenni-
lega fyrir börnin. Handrits-
vinnan er vel á veg komin en því
má ekki gleyma að þetta eru 24
þættir og yfir 200 mínútur af
leiknu efni þannig að starfið er
ærið,“ segir Þórhallur en sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins hefur Davíð Þór Jónsson
verið að skrifa nýtt jóladagatal
fyrir Sjónvarpið. - fgg
Lofar nýju dagatali að ári
DÝRT DÆMI Þórhallur Gunnarsson segir
framleiðslu jóladagatals vera dýra.