Fréttablaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 38
[ ]Ostur er veislukostur, fullur af kalki og afskaplega góður fyrir beinin. Það getur verið glæsileg gjöf að gefa sælkerakörfu fulla af ostum og öðru góðgæti sem bragðast vel með þeim.
Hvað get ég haft á borðum
sem er allt í senn; hollt, gott
og fljótlegt? Þeirri spurningu
er svarað í nýrri bók Stefaníu
Valdísar Stefánsdóttur, lektors
í heimilisfræðum, Eldað í dags-
ins önn, sem JPV gefur út.
„Bókin er ætluð til hversdagsnota.
Mig langar með henni að koma til
móts við unga fólkið og auðvitað
alla þá sem skilja mikilvægi þess
að borða holla fæðu,“ segir
Stefanía Valdís þegar hún er spurð
út í tilurð bókarinnar Eldað í dags-
ins önn. Bókin hefur að geyma
uppskriftir að fljótlegum, ódýrum
og hollum heimilisréttum, ásamt
lystaukandi myndum eftir mynd-
listarmanninn Jón Reykdal. Aftan
við hverja uppskrift er tilgreint
næringarinnihald eins skammts
og hvergi er hvikað frá markmið-
um Manneldisráðs og Lýðheilsu-
stöðvar.
Uppskriftunum í Eldað í dags-
ins önn er skipt í tíu hluta, kjöt-
rétti, kjúklingarétti, fiskrétti,
grænmetisrétti, meðlæti, salöt,
súpur og grauta, eftirrétti, kökur
og kaffibrauð og brauð. Þar er líka
yfirlit yfir gullnar vinnureglur í
eldhúsi og einföld leiðsögn við
matargerð og bakstur enda er höf-
undurinn lektor í heimilisfræðum
við Kennaraháskóla Íslands. Stef-
anía vill halda í matarhefðir þjóð-
arinnar en leggur áherslu á að
draga úr sykur- og fitunotkun. „Ég
hef gríðarlegan áhuga á mataræði
samfélagslega séð og hef áhyggj-
ur af því að þjóðin er alltaf að
þyngjast. Ég verð líka áþreifan-
lega vör við að unga fólkið kann
minna og minna til verka í eldhús-
inu því það lærir ekki af foreldr-
um eins og áður,“ segir hún og
bætir við: „Þessi bók á að vera
mótvægi við skyndibitann, einföld
lausn í hversdeginum og hjálp
þeirra sem vilja borða hollt en
hafa lítinn tíma. Hún ætti líka að
gagnast skólasamfélaginu við
heimilisfræðikennslu.“ Stefanía
tekur fram að nemendur hennar á
síðasta skólaári hafi borið hitann
og þungann af matargerðinni fyrir
myndatökur í bókinni og hrósar
þeim í hástert.
Sú nýjung fylgir bókinni að á
vefslóðinni www.stefaniavaldis.
com verður innan skamms hægt
að sækja forritið Matseðill vik-
unnar sem gerir lesendum kleift
að skoða réttina í bókinni og
prenta út innkaupalista með hrá-
efninu sem í þá þarf. „Forritið
einfaldar innkaupin hjá þeim sem
fara inn í matvöruverslun að
loknum vinnudegi og vita ekki
hvað þeir eiga að kaupa,“ segir
Stefanía brosandi.
gun@frettabladid.is
Einföld lausn í eldhúsinu
Stefanía með bókina góðu, Eldað í dagsins önn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Úr bókinni Eldað í
dagsins önn
4 væn stykki vel útvatnaður
saltfiskur
1 msk. matarolía
1 dl kaffirjómi
½-1 msk. sítrónusafi
2 hvítlauksrif
1 ½ msk. kapers (eða eftir smekk)
6 svartar ólífur
2 msk. rifinn parmesanostur
1 vorlaukur til skrauts
Hitið ofninn í 200 gráður. Sjóð-
ið saltfiskstykkin í mesta lagi í
3 mínútur. Hreinsið roðið af
fiskinum og raðið stykkjunum í
smurt eldfast mót.
Blandið saman olíunni, rjóm-
anum og sítrónusafanum og
hellið yfir
fiskinn.
Saxið hvít-
laukinn og
kapersið,
sneiðið
svörtu ólíf-
urnar og
stráið
þessu yfir
fiskinn.
Rífið parmesanostinn og dreif-
ið yfir réttinn. Bakið í 17 mínút-
ur. Skreytið með vorlauk sem
hefur verið skorinn langsum í
fíngerðar ræmur. Berið fram
með kartöflum eða hrísgrjón-
um, nýbökuðu brauði og græn-
metissalati.
Einn skammtur 336 kkal.; 44
g prótein; 5 g mettuð fita; 11 g
ómettuð fita; 1 g kolvetni, þar
af 0 g sykur; 0 g trefjar.
Hvernig færð þú
barnið þitt til að borða
ferskan fisk daglega?
Svarið er Skólabiti
25 gr. Skólabiti samsvarar 125 gr. af ferskum roðlausum
fiskflökum. Inniheldur prótín, vítamín og bætiefni.
Fæst í flestum matvöruverslunum
og á bensínstöðvum um allt land
N Æ R I N G O G H O L L U S T A
S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ...
Blandarinn sem allir eru
að tala um!
Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
Hnoðar deig
Býr til heita súpu og ís
Hraðastillir
Lífstíðareign!
Verð kr. 53.974
Uppskriftarbók og DVD
diskur fylgir