Fréttablaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 74
30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Sérðu
eitthvað sem
heillar?
Það eina sem ég veit er
að rómantíska tónlistin
gæti hljómað aftur...
Heyrðu, þú fórst
svo snöggt að
mér gafst aldrei
tækifæri á að
útskýra...
Þú heillar
mig allavega
ekki.
Þú! En kannski ekki af
þessari plötu.
Ég er ekki búinn að gera
nein framtíðarplön.
Eru tuttugu
mínútur
framtíðin?
Og ég sem geri
matarplan tvær vikur
fram í tímann.
Ég veit
það ekki.
Ætlar þú að borða kvöldmat?
Er haust
núna?
Þú veist hvað ég
meina!
Já, það var virkilega gott hjá henni,
að engjast um í fjörutíu tíma bara
til að skemmta sér og sínum.
Mikið var
það nú gott
hjá henni.
Í morgun.
Hvenær?
Linda var að hringja,
hún er búin að fæða.
Þú er númer
257.617.148. Þjónustu-
fulltrúinn kemur og
talar við þig þegar þú
er næstur.
Kvartanir
Kolbrún Halldórs-
dóttir, þingkona
Vinstri grænna, beindi
í vikunni athyglis-
verðri fyrirspurn til
heilbrigðisráðherra.
Þar spurði þingkonan
út í þann sið að
nýfæddir drengir séu klæddir
bláum fötum og nýfæddar stúlkur
bleikum. Í fyrstu fannst mér þessi
fyrirspurn frekar vitlaus. Sjálfur
var ég klæddur í blátt, en ég vil
hins vegar ekki að kyn mitt geri
það að verkum að ég geti ekki
valið að klæðast bleiku. Þegar ég
fór að leita að frekari mótrökum í
höfði mér létu þau hins vegar
standa á sér.
Ég get í raun ekki séð af hverju
það þarf að aðgreina kynin með
þessum hætti við fæðingu. Þarna
er um einstaklinga að ræða og
væri því nær að hægt væri að
velja úr öllum regnbogans litum.
Þar greinir okkur Kolbrúnu reynd-
ar á, því hún spyr ráðherra hvort
ekki sé nær að klæða börn kyn-
lausum lit.
Ég vil að róið sé að því öllum
árum að útrýma launamun og
jafna stöðu kynjanna í samfélag-
inu. Ég er hins vegar ekki á því að
það verði gert með því að afmá öll
einkenni kynjanna. Þessi hug-
mynd um hið kynlausa samfélag
höfðar ekki til mín.
Ég er hrifinn af fjölbreytni og á
þeim forsendum finnst mér í lagi
að endurskoða litaval á vöggustof-
um. Ég tel að það gæti lífgað veru-
lega upp á fæðingardeildir ef for-
eldrar fengju að velja barnaföt
eftir eigin höfði. Þannig kemur
líka ný aðgreining því auðvelt er
að benda afa og ömmu á vögguna
með grænklædda barninu eða því
rauðklædda. Til að útrýma launa-
mun kynjanna er hins vegar þörf á
breyttu hugarfari, á öllum stigum
þjóðfélagsins. Það verður ekki
gert með því að móta alla í sama
form. Það verður gert með því að
útrýma launaleynd og að þing-
menn eins og Kolbrún verði dug-
legir að halda merkjum jafnréttis
á lofti, þannig að gagn verði af. Ég
ætla því að bregða mér í bleika
flík í dag í nafni frelsis einstakl-
ingsins og jafnréttis kynjanna.
STUÐ MILLI STRÍÐA: Er kynlaust samfélag lausnin?
ÖRLYGUR HNEFILL ÖRLYGSSON KLÆÐIST BLEIKU Í DAG