Fréttablaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 88
30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
Hin árlegu og virtu tískuverðlaun Bret-
lands, British Fashion Awards, voru afhent
með pompi og prakt í Lundúnum á dögun-
um.
Óhætt er að segja að Stella McCartney, fatahönnuð-
ur og dóttir Bítilsins Paul McCartneys, hafi verið
sigurvegari hátíðarinnar en hún var útnefnd
hönnuður ársins. Þar með þurftu bæði Anya
Hindmarch og Luella Bartley að lúta í lægra haldi
fyrir henni en verðlaunin eru veitt þeim hönnuði
sem þykir hafa skarað fram úr á árinu.
Aðrir sigurvegarar voru skartgripahönnuðurinn
Tom Binns, Christopher Bailey sem hannar fyrir
Burberry og hin óviðjafnanlega Lafði Vivienne
Westwood sem var heiðruð fyrir framlag sitt til
tískunnar um árin. Agyness Deyn var valin fyrir-
sæta ársins. Verðlaunin eru skipulögð af tískuráði
Bretlands og er ætlað að hampa bæði nýgræðingum
og reynsluboltum í tískubransa landsins. Verðlauna-
hafarnir eru valdir af sérstöku ráði sem skipað er
ritstjórum hátískublaða, söluaðilum og fleirum en
Alexandra Shulman, ritstjóri hins
breska Vogue, veitti nefndinni
forsæti að þessu sinni.
Tískuverðlaun Bretlands afhent
HÖNNUÐUR ÁRSINS Stella McCartney
kom, sá og sigraði á British Fashion
Awards þar sem hún var útnefnd
hönnuður ársins.
Leikarinn Russell Crowe mun að öllum líkindum
hlaupa í skarðið fyrir Brad Pitt, sem hætti nýverið við
að leika í pólitíska tryllinum State of Play. Pitt stökk
frá borði vegna þess að hann hafði áhyggjur af handriti
myndarinnar og í framhaldinu var leitað til Crowe.
Leikstjóri myndarinnar verður Kevin McDonald,
sem síðast sendi frá sér The Last King of Scotland þar
sem Forest Whitaker var í Óskarsverðlaunastuði. State
of Play verður byggð á samnefndum sjónvarpsþáttum
frá Bretlandi sem hafa notið mikilla vinsælda undan-
farin ár. Með önnur hlutverk í myndinni fara Edward
Norton, Helen Mirren, Rachel McAdams, Jason
Bateman og Robin Wright Penn. Crowe mun leika
blaðamann sem rannsakar morðmál.
Næsta mynd Crowes verður Nottingham, sem er
byggð á sögunni um Hróa hött. Leikstjóri verður
Ridley Scott, sem stýrði Crowe einnig í American
Gangster.
Crowe í stað Brad Pitt
RUSSELL CROWE Crowe fer að öllum líkindum með aðalhlut-
verkið í State of Play.
„Þetta er trommuheilanýbylgja,“
segir Elvar Geir úr hljómsveit-
inni Hellvar sem hefur gefið út
sína fyrstu plötu, Bat Out of Hell-
var, á vegum Kimirecords.
Hellvar var stofnuð fyrir þrem-
ur árum í Berlín af Elvari Geir og
Heiðu Eiríksdóttur og þar var
platan einmitt samin og fram-
leidd. „Við tókum með okkur út
trommuheila, gítar og forritunar-
græjur. Vinur okkar heyrði lögin
okkar í partíi og skoraði á okkar
að flytja þau „live“,“ segir hann
um tilurð sveitarinnar.
Að sögn Elvars gengu upptökur
hægt fyrir sig. „Ég er fullkomn-
unarsinni með frestunaráráttu
þannig að Heiða þurfti að sparka í
mig til að eitthvað gerðist. Ég á
fimmtán til tuttugu útgáfur af
plötunni í tölvunni minni og heyri
engan mun á þeim núna,“ segir
hann og kímir.
Hellvar bættist liðsauki fyrir
tveimur og hálfum mánuði, áður
en hún fór í vel heppnaða tón-
leikaferð um New York-ríki.
Gengu þá til liðs við sveitina þau
Sverrir og Alexandra. Spilaði
sveitin þá með vinum sínum í
Zhanartz og gekk tónleikaferðin
framar vonum.
Næstu tónleikar Hellvar verða
á Paddy´s í Keflavík 1. desember.
Á milli jóla og nýárs spilar sveitin
síðan í Berlín, þar sem þéttur
aðdáendakjarni hefur myndast að
undanförnu. - fb
Nýbylgja með trommuheila
HELLVAR Hljómsveitin Hellvar í New
York-ríki þar sem hún fór í vel heppnaða
tónleikaferð.
UNG OG EFNILEG Agyn-
ess Deyn er aðeins 24
ára gömul en var valin
fyrirsæta ársins. Hún sat
fyrir hjá bæði Burberry
og Giorgio Armani á
árinu.
MÆTTU SAMAN Hönnuðurinn Giles
Deacon og söngkonan Lily
Allen mættu saman til
bresku tískuverðlaunanna.
FRÆGIR FJÖLMENNTU
Þekktir einstaklingar úr
skemmtanaiðnaðinum
fjölmenntu á tískuverð-
launin að venju. Leik-
konan Dita Von Teese var
ein þeirra.
HEIÐRUÐ FYRIR
FRAMLAG SITT
Tískudrottningin
og skrautfuglinn
Vivienne West-
wood var heiðruð
fyrir framlag sitt
til tískuheimsins í
gegnum árin.
GLÆSILEG
Rokkdóttirin Kelly
Osbourne hefur
verið þekkt fyrir
misgóða takta í
fatavali. Hún mætti
þó óvenjulega vel
til fara á tískuverð-
launin í Lundún-
um.