Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 92

Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 92
60 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 16 10 7 12 12 16 16 16 14 HITMAN kl. 6 - 8 - 10* DAN IN REAL LIFE kl. 6 - 8 RENDITION kl. 10 *KRAFTSÝNING 16 16 16 12 16 14 HITMAN kl.5.50 - 8 - 10.10 DAN IN REAL LIFE kl.5.45- 8 - 10.15 LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.5.20 - 8 - 10.40 LIONS FOR LAMBS kl. 8 - 10 THIS IS ENGLAND kl.6 HITMAN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 HITMANLÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 DAN IN REAL LIFE kl. 5.45 - 8 - 10.10 WEDDING DAZE kl. 3.40 - 5.50 - 8 -10.10 BALLS OF FURY kl. 4 - 6 ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 4 THE HEARTBREAK KID kl. 8 - 10.30 !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu ACROSS THE UNIVERSE kl. 5.20 - 8 - 10.40 RENDITION kl. 5.30- 8 -10.30 EASTERN PROMISES kl. 10 SYNDIR FEÐRANNA SÍÐUSTU SÝN. kl. 6 - 8 VEÐRAMÓT SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.40 - 8 - 10:20 NÝTT Í BÍÓ! BRÚÐKAUPSBILUN DAN Í RAUN OG VERU LÍF RÓSARINNAR BORÐTENNISBULL ÁSTARSORG LOFORÐ ÚR AUSTRI ÞETTA ER ENGLAND LJÓN FYRIR LÖMB Stórskemmtileg rómantísk gamanmynd MÖGNUÐ MYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF STÚTFULL AF ÆÐISLEGRI BÍTLATÓNLIST! Magnaður spennutryllir sem gerður er eftir hinum frábæru tölvuleikjum með Timothy Olyphant úr Die Hard 4.0 í fantaformi. - bara lúxus Sími: 553 2075 HITMAN kl. 6, 8 og 10-POWER 16 RENDITION kl. 5.30, 8 og 10.30 16 AMERICAN GANGSTER kl. 10 16 MR. WOODCOCK kl. 4, 6 og 8 L ÆVINTÝRAEYJA IBBA kl. 4 - 600 kr. L LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR www.laugarasbio.is - Miðasala á SV MBL LIB TOPP5.IS LIB - TOPP5.IS HJ - MBL Svavar Lúthersson, fram- kvæmdastjóri Istorrent, sem á og rekur torrent. is, segist hafa íhugað meiðyrðamál á hendur Snæbirni Steingrímssyni, framkvæmdastjóra SMÁÍS. Hann segist reiðubúinn að ganga eins langt og hann getur í málinu. „Við hvetjum notendur til að beita siðprúðum aðferðum til að koma skoðunum sínum á framfæri. Snæ- björn Sigurður Steingrímsson, sak- laust fórnarlamb almennings, er hér með beðinn afsökunar á fram- ferði þeirra sem beindu ásökunum sínum að honum í misgáningi,“ segir í fréttatilkynningu sem Is torrent hefur sent frá sér en fyrir tækið á og rekur hina umdeildu vefsíðu torrent.is. Henni hefur nú verið lokað tímabundið vegna lögbanns. Eins og Frétta- blaðið greindi frá varð Snæbjörn Sigurður fyrir ómaklegum árásum brjálaðra netverja sem töldu að hann væri framkvæmdastjóri SMÁÍS. Fréttablaðið sagði frá því að Snæbjörn Sigurður hefði fengið hundruð SMS-skeyta og símtala þar sem honum var hótað öllu illu. Eftir að fréttin birtist linnti þó þessum árásum og Snæbjörn getur nú loksins haft símann sinn í friði. Svavar Lúthersson, sem verið hefur andlit vefsíðunnar, segir að forsvarsmönnum hennar hafi ekki fundist annað hægt. „Okkur finnst þetta á köflum hafa gengið kannski full langt,“ segir Svavar og jafn- framt kemur fram að þeir „harmi sumar þær aðferðir sem almenn- ingur hefur ákveðið að beita til að tjá sig um ranglæti lögbannsins“. Svavar krefst þó einnig að Snæ- björn Steingrímsson, fram- kvæmdastjóri SMÁÍS, biðjist afsökunar á ummælum sínum í fjölmiðlum. Svavar segir þetta einkum snúa að því að Snæbjörn hafi þjófkennt sig og aðra notend- ur án þess að dómur sé fallinn. Hann sé ekki með stöðu grunaðs í málinu og að allir menn séu saklausir uns sekt þeirra sé sönnuð. Spurður hvort til greina kæmi að höfða meiðyrðamál á hendur Snæbirni sagði hann það vissu- lega hafa verið íhugað en ekki hefði verið tekin nein afstaða til þess á þessu stigi. Svavar sagðist ekkert ætla að gefa eftir í málinu og tjáði Frétta- blaðinu að hann væri reiðubúinn að fara með málið eins og langt og það kæmist. Snæbjörn Steingrímsson sagðist í samtali við Fréttablaðið ekki ætla að taka orð sín til baka, hann hefði ekki tekið of djúpt í árinni og hann stæði fast á sinni skoðun um eðli málsins. En hvað haturspósta og hótanir varðar vissi Snæbjörn að Svavar stæði ekki á bak við slíkt. „Við höfum hist nokkr- um sinnum og þau samskipti hafa öll verið á eðlilegum nótum með handabandi og öðru,“ segir Snæbjörn en mál SMÁÍS fyrir hönd fjögurra rétthafasam- taka verður þingfest 12. desember. - fgg Istorrent biðst afsökunar VILL AFSÖKUNARBEIÐNI Svavar Lúthers- son vill fá afsökunarbeiðni frá fram- kvæmdastjóra SMÁÍS en biður jafnframt nafna hans afsökunar á óþægindunum. SÉR EKKI EFTIR NEINU Snæbjörn Steingrímsson segist alls ekki hafa tekið of djúpt í árinni og stendur fast á sinni skoðun. SAKLAUST FÓRNARLAMB Snæbjörn Sigurður hefur fengið formlega afsökunarbeiðni frá Istorrent. „Þetta er dýr framleiðsla, svona jóladagatal,“ segir Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, en jóladagatalið í ár hjá Ríkissjónvarpinu verður Jól á leið til jarðar eftir Sigurð Brynj- ólfsson sem frumsýnt var fyrst árið 1994 og síðan aftur notað 1999. Að undanförnu hefur nokkuð örlað á gagnrýni í garð Sjón- varpsins um að endursýna alltaf gömul jóladagatöl og í fyrra var Stjörnustrákurinn þannig notað- ur í þriðja sinn en hann var fyrst sýndur árið 1991. Þórhallur bendir á að svipað kerfi sé líka hjá leikhúsunum enda sé komin ný kynslóð barna ef fimm til sex ár líði á milli sýninga. Hann segir hins vegar nýtt jóladagatal verða frumsýnt um næstu jól. „Þetta tekur tíma og við viljum gera þetta almenni- lega fyrir börnin. Handrits- vinnan er vel á veg komin en því má ekki gleyma að þetta eru 24 þættir og yfir 200 mínútur af leiknu efni þannig að starfið er ærið,“ segir Þórhallur en sam- kvæmt heimildum Fréttablaðs- ins hefur Davíð Þór Jónsson verið að skrifa nýtt jóladagatal fyrir Sjónvarpið. - fgg Lofar nýju dagatali að ári DÝRT DÆMI Þórhallur Gunnarsson segir framleiðslu jóladagatals vera dýra.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.