Tíminn - 19.07.1981, Qupperneq 5
Sunnudagur 19. júll 1981
5
myndirnar tók gunnar vilhelmsson
mike: ja, fifti tifti.
eh: en boðskapurinn hefur
komist i gegn?
mike: ja, bubbi sagði þeim einu
sinni, þaö var i osló, sko drekki nú
hver sem betur getur og skemmt-
iö ykkur þvi i kvöld kemur rúss-
neski flotinn og varpar sprengj-
um á ykkur og þá verður það far-
vel noregur, svo þið skuluö
skemmta ykkur núna. svo fór ég
að hella bjór yfir hausinn á mér
og sagði þeim að bjórinn þeirra
væri besta hárnæring sem til
er... svo skiptum við allir um
hljóðfæri, ég spilaði á
trommur...
danny: og þarna spiluðum við
„music concrete” sem er impró-
viseraö. það kom einhver og
spurði hvort þaö yrði á næstu
plötunni okkar.
eh: hvaö fenguð þiö borgað
sirka fyrir kvöldið?
danny: ætli það hafi ekki verið
svona 3000 að meðaltali. það er
ekkert slæmt.
ij: 3000 hvað?
danny: norskar i noregi, sænsk-
ar i sviþjóð...
mike: viö fengum einu sinni
7000, það var i klúbb 7 i osló. en
það var i gegnum kliku og þegar
einn gæinn þarna heyrði það trúði
hann ekki sinum eigin eyrum:
fenguð þið 7000? annars voru
einna bestu tónleikarnir okkar i
kristjániu.
danny: já, og svo siðustu tón-
leikarnir sem viö heldum i hard
rock café i osló. þar var umboðs-
maður frægrar þungarokkhljóm-
sveitarog hann varð mjög hrifinn
af okkur. þetta var mikiö „show”.
mike:viðbrutum allt og bröml-
uöum, ég braut gitarinn minn i
þrjá hluta og maggi braut
trommusettið sitt...
ij: og svo komuði heim?
mike: já.
ij: og hvers vegna haldiði að
þessi orörómur um aö þið væruð
að hætta hafi komist á kreik? er
einhver....
mike: fólk verður að hafa eitt-
hvaðað tala um. þvi finnst gaman
aö tala um okkur.
ij: já, en er einhver spenna
milli ykkar i hljómsveitinni —
milli ykkar tveggja til dæmis og
svo bubba morthens?
mike: já, þaö er spenna milli
okkar og hefur alltaf verið, ekki
sist músikleg spenna. það er nú
þess vegna sem við erum að dútla
við sólóplötur. en þaö er spennan
sem heldur hljómsveitinni gang-
andi.
danny: það er spenna i fullt af
hljómsveitum.
eh: en þið hafið auðvitað heyrt
þetta: aö bubbi sé á egó-trippi og
hann sé einræðisherra og hirði
alla peningana.
mike: það er ekkert leyndar-
mál að bubbi hefur stórt egó,
hann yröi fyrstur til að segja ykk-
ur það, og það er oft erfitt að
vinna með manni eins og honum,
en svona er hann. og þarf stórt
egó til að gera þessa hluti. ef það
fer ekki út fyrir viss mörk er allt i
lagi.
ij: ykkur finnst ekki að hann
skyggi á ykkur og hina meðlimina
i utangarðsmönnum?
mike: hann fær mesta athygli i
blöðunum en hvað tónlistina
varðar þá eru allir jafnir, allir
jafnmikilvægir fyrir „soundið”.
eh: þið semjið töluvert af lög-
um?
mike: já, ég sem fullt af lögum
og mörg þeirra eru aldrei spiluö,
ekki sist vegna þess að ég kýs aö
syngja min lög sjálfur.
eh:þln lög eru persónulegri, er
það ekki, en lög bubba....
ij: prótestlögin.
mike: jú, þau eru það. svona
sem ég lög.
eh: og þiö haldiö að hljómsveit-
in beri ykkur báða?
danny: „sure”.
mike: i bili. ég meina, ég held
að á endanum þá stofni ég eða viö
aðra hljómsveit. en það er seinna.
ij: þið eruð að fara aö gefa út
plötu?
mike: já, þaö var ásmundur hjá
fálkanum sem bauö okkur að
gera plötu og við slógum til. ás-
geir bragason úr purrk pillnikk er
með okkur.
eh: nafnið er skrýtið....
danny: „dirty dan á project”.
mike: „verkefni danna sóða”...
(hlátur) á þessari plötu eru tvö
rock’n’roll lög — annaö eftir bob
dylan — og svo „mucic con-
crete”-uppákoman.
eh: þið eruö ekkert að reyna að
keppa við bubba, nú er sólóplatan
hans einmitt að koma út núna?
danny: nei, allsekki, það er
ekkert svoleiöis. þeir bara buðu
okkur að gera þetta og ég meina,
af hverju ekki?
mike: sko, þaö neitar þvi eng-
inn aö það eru fleiri en ein hljóm-
sveit innan utangarðsmanna svo
það er bara spurning um tima
hversu lengi við getum veriö
saman.
ij: en hvað eruö þið að gera
núna? hvila ykkur eftir feröina?
mike: já, við erum að hvila
okkur en við byrjum aftur mjög
fljótlega. við þurfum bara að æfa
betur nýtt efni, það er tónlist sem
við höfum ekkert fengist við áöur.
við reynum að fara sem viðast 1
staöinn fyrir að spila alltaf það
sama.
ij: hvernig tónlist er þetta?
mike: er það ekki kallað
„austurlenskt sýrurokk”?
(glaðlegur hlátur)
eh: eitt hef ég heyrt. aö setja
eigi hljóðfærin ykkar á uppboð til
að borga skuldirnar sem við vor-
um að tala um áðan.
danny: já, það er rétt. við gæt-
um þurft að selja tækin en ætlum
að gera allt sem við getum til aö
komast hjá þvi. við erum kannski
að fara að fá okkur vinnu.
ij: hvernig vinnu?
danny: svona vinnu sem maður
græðir pening á!
eh:fer þá bubbi aftur I fiskinn?
danny: það gæti fariö svo. en
viö getum ekki látið selja frá okk-
ur fjárfestingar. þvi söngkerfið er
ekkert annað en fjárfesting. það
er djöfull gott og má nota á ýms-
an hátt, meðal annars til aö taka
upp plötur. við höfum bara notaö
þetta kerfi einu sinni, það var á
tónleikunum i háskólabiói. við
notum það auðvitaö þegar við för-
um að spila núna.
mike: það eru bara svo fáir
staðir, sérstaklega af þvi að hótel
borg er búin aö loka.
eh: er hótel borg búin að loka?
mike: já, á hljómsveitir. það
spilaði vist einhver of hátt. túrist-
arnir kvörtuðu. kannski við ætt-
um lika að minnast á „rough
trade” albúmið — „northern
lights playhouse”. það er kannski
besta tækifærið sem við höfum
fengið ennþá.
danny: stóra stundin I islensk-
um músikbissness!!
ij: haldiði að þið getiö orðið vin-
sælir i evrópu?
mike: þetta var góö spurning.
(hugsar málið) ég held við getum
orðið vinsælir á norðurlöndunum,
þaö er að segja ef viö fáum tæki-
færi til aö vera þar mikiö að spila.
en evrópa — það þarf mikla
vinnu. og byggist kannki ekki sist
á heppni.
ij: eruði farnir aö undirbúa
aðra tónleikaferð út?
danny: andlega! (hlær) við
erum farnir að undirbúa okkur
andlega.
mike: svona hlutir taka langan
tima. ef viö ætlum i tónleikaferö
að hausti þurfum við að byrja að
plana um jól.
eh: það er vitaö aö þið lentuö
einu sinni i vandræðum á landa-
mærum noregs og sviþjóðar en er
rétt að þið hafið veriö teknir i
gegn þegar þiö voruö að koma til
islands?
mike: já, þaö er rétt. við vorum
fyrstir útúr flugvélinni og vorum
alveg tilbúnir aö fara gegnum
tollinn þegar tollararnir koma
allt i einu: þið fariö sko ekki I
gegn. og svo vorum viö teknir
einn i einu inni smákompu og þaö
var leitað nákvæmlega á okkur, i
farangrinum og þaö var komið
með hundinn. það var farið meö
okkur eins og helvitis bófa.
ij:segðið mér eitt. þiö minntust
á að á endanum mynduö þið
stofna ykkar eigin hljómsveit.
verður það islensk hljómsveit eða
fariði út?
mike: sennilega islensk hljóm-
sveit en auðvitað förum viö út. ég
meina, ég lit á Island sem heimili
mitt, ég elska island og allt það en
maður verður aö fara út.
eh: hvaö hafiöi verið hérna
lengi?
mike: sennilega ein átta ár ef
allt er lagt saman, viö höfum
flakkað töluvert fram og aftur
milli islands og bandarikjanna.
ij: þangað til i fyrra vissi eng-
inn að þiö væruð til, svo stukkuð
þið allt i einu fram i sviðsljósið.
(pollock-bræöur hlæja) hvað vor-
uð þið að gera öll þessi ár?
mike:ég varhérna, danny var i
bandarikjunum.
eh: þið eruð albræður, er þaö
ekki, ekki hálfbræður?
mike: jú.
danny: ekki vitum við betur!
(þeir hlæja hátt og mikið) pabbi
kynntist mömmu reyndar á hótel
borg....
mike: nú, við höföum alltaf
veriö að pæla i músik og ég haföi
veriö i nokkrum hljómsveitum
hérna en alltaf verið rekinn afþvi
ég heimtaði alltaf að við spiluöum
frumsamda tónlist. ég nennti ekki
að vera i þessum dansiballa
móral.
danny: svo kom ég hingaö i
fyrra og við fórum að spila dálitið
saman, bara svona i bilskúr, en
ætluðum ekkert að spila opinber-
lega. þá hittum við bubba en hann
var að taka isbjarnarblús upp i
einhverjum kjallara úti bæ! og
viö sögðum viö hann: af hverju
ekki að taka upp i almennilegu
stúdiói, og hann geröi þaö. við
hjálpuðum honum og ákváðum
svo að stofna hljómsveit til að
fylgja plötunni eftir.
mike:þá vorum við fjórir byrj-
aðir að spila saman.
eh: þá hafiöi veriö hljómsveit
bubba morthens?
danny: neinei, allsekki. það lit-
ur kannski út fyrir þaö en þá
strax vorum viö bara hver önnur
hljómsveit, allir lögöu eitthvaö af
mörkum. svo eftir að fyrstu
hljómleikaferðinni lauk, þá
ákváðum við að halda áfram.
eh:hraðinn á toppinn, hann var
ótrúlegur.
danny: æðislegur!
mike: viö vorum búnir að spila
saman i sex vikur og svo vorum
viö allt i einu farnir að spila með
clash.
ij: (við danny pollock) eitt áöur
enviðhættum. af hverju ertu allt-
af með sólgleraugu?
danny: (hlær) ég er með viö-
kvæm augu, mér er illa við birtu.
svo eru þetta ekki bara sólgler-
augu, ég er líka nærsýnn.
ij: (fer að taka saman föggur
sinar) jæja, ætli þiö séuð ekki
búnir að kveöa rækilega niður
orðróminn um að utangarösmenn
séu að hætta?
mike: það vona ég.
eh: þetta var mjög þrálátur
orðrómur.
ij: já, þegar viö komum hingaö
héldum við að þið ætluðuö aö út-
skýra fyrir okkur af hverju
hljómsveitin hefði hætt.
mike: (brosir) jæja? ég vona
bara að þið hafiö ekki oröiö fyrir
vonbrigöum....
(tjaldið)
ijskrásetti.