Tíminn - 19.07.1981, Blaðsíða 30

Tíminn - 19.07.1981, Blaðsíða 30
30 Sunnudagur 19. júll 1981 -Leyndardómurinii leystur? ■ llcr fvrst er sú gerft þessarar sögu sem gengur fjöllunum hærra f Bermúdaþrihyrningssögum: Klukkan tvö eftir hádegi þann 5. desember 1945 flugu fimm Avenger tundurskeyta/sprengju- flugvélar upp frá fíugvellinum I Fort Lauderdalc á Florida-skaga. Þær tóku stefnu á haf út. Ætlunin var að fljúga I stóran þríhyrning yfir Bermúdaþrihyrninginn. Að einni vél undanskilinni voru I hverri vél þrir menn þrautþjálf- aðir og alls 14 af bestu flug- mönnnum Ba nda rlk ja nna . Klukkan 3.45 náði fluglurninn I Fort Lauderdale sambandi við vélarnar, sem kallaðar voru Flug 19, en I stað beiðni um lendingar- leyfi eins og búist hafði verið viö, heyrðist neyðarkall frá foringja flugsveitarinnar, ungum liðsfor- Charles Carrol Taylor. Hann sagði: „Flug 19 í turn, þetta er neyðarkall... Við virðumst hafa villst af réttri leið... Við sjáum hvergi land... endurtek... sjáum hvergi land.” „Hvareruð þið staddir”, spurði flugturninn. „Við erum ekki vissir um það. Við getum ekki verið vissir. Við virðumst vera villtir.” „Takið stefnu beint í vestur.” „Við... Við vitum ekki hvaða átt er vestur,” svaraði Taylor og virtist áhyggjufullur og jafnvel hræddur. „Þaö er eitthvað að... Allter svo skrytið. Viö vitum ekki hvar við erum. Við erum ekki vissir á áttunum . Meira að segja sjórinn er ekki einsog hann á að vera.” Skyndilega rofnaði sambandið við Taylor og i nokkrar minútur riktialger ringulreið I flugturnin- um. Er aftur náðist samband við Flug 19 var Taylor ekki lengur við stjórnina. Maðurinn i talstöðinni var greinilega dauðhræddur. „Við skiljum ekki hvar við er- um... viö hljótum að vera... Allt er svo... Skil þetta ekki...” Háð- villtum flugstjórnarm önnum i Fort Lauderdale varð litið hver á annan. Þessi maður var aö þrot- um kominn. Svo heyrðist . aftur i honum. „Ekki vissir um hvar við er- um... höldum viðséum 225 milur norðaustur af flugvellinum... Það er einsog við séum á leiö inní...” Röddin þagnaði og allt varð hljótt i' talstöðinni. Meðan þetta gerðist var Robert Cox, liðsforingi, að hringsóla kringum flugvöllinn i Fort Lauderdale. Hann náði sending- um miUi Flugs 19 og turns og áleit sighafaóljósa hugmynd um hvar flugvélarnar væru aö finna. Hann kallaðiuppitalstöðinni: „Flug 19 látið vita af ykkur. Ég fiyg suður á bóginn til móts við ykkur.” Eftir nokkurra minútna þögn heyröist rödd Taylors: „Ekki koma á eftir díkur! Það er eins- og...” Ekki einasta orö heyrðist fram- ar frá Avenger-vélunum. Flugturninn íysti nú yfir neyð- arástandi og örfáum minútum siðar hóf risastór flugbátur sig upp frá Fort Lauderdale og stefndi þangað sem talið var að Flug 19 væri að finna. Skömmu siðar hafði flugturninn samband við flugbátinn en þá kom ekkert svar. Flugbáturinn var jafnhorf- inn og vélarnar fimm. „Þeir eru utan úr geimnum” NU var hafin umfangsmesta leit sem um getur. ótal flugvélar og skip kembdu 250 þUsund fermílna svæði f leit að flökum vélanna eða braki en ekkert fannst. Flug 19 og flugbáturinn höfðu horfið af yfirborði jarðar. Einsog alltaf er hlutir hverfa i Bermúdaþrihyrn- ingnum fundust engin lik, ekkert brak, engin merki um hvað gerst hafði. Það þóttimjög dularfullt og alls konar sögusagnir komust fljóttá kreik. Sagt var að Taylor liðsforingi hefði sagt ýmislegt fleira viö flugturninn en þaö sem látið var uppi. Allar rannsóknir á málinu fóru fram i kyrrþey og voru flokkaðar undir hernaðar- leyndarmál. Maöur nokkur, fyrr- verandi blaðamaður að nafni Art Ford, létsérþaðekkilynda. Hann vann að málinu i mörg ár, gróf upp dálftið hér og dálitiö þar og fékk smátt og smátt heildarmynd yfirþað sem hent hafði Avenger- vélarnar fimm. Meðal þeirra sem hann talaði við voru radióama- törari'Florida og viðar og nokkrir þeirra höfðu heyrt samtal Flugs 19 við turninn. Einn þeirra hafði heyrt Taylor liðsforingja segja: „Ekki koma á eftir okkur! Það er einsog þeir séu utan Ur geim- num!” Engin leið var að sanna svo yggjandi teldist að Taylor hefði i raun og veru sagt þetta en þetta myndi skýra mjög margt. Þetta skyrði hvers vegna Taylor hefði hafnað aðstoð, hvers vegna hann var svo skelfingu lostinn og hvers vegna vélarnar höföu horfið spor- laust. Með timanum festist þessi skýring i hugum fólks: Taylor liðsforingi og menn hans höfðu rekist á eitthvað sem ekki var upprunnið á þessari jörð. Flug 19 og hvarf þess er það sem flestir BermUdaþrihyrnings- rithöfundar byggja kenningar sinar á. Það var einmitt vegna hins dularfulla hvarfs flugsveit- arinnar sem Bermddaþrihyrn- ingurinn varð svo frægur sem raun ber vitni. í sérhverri bók um þetta hafsvæði eru rakin orða- skiptin sem fóru milli Flugs 19 og turnsins i Fort Lauderdale cg menn eru farnir að ganga Ut frá þvi sem vi'su að þar sé rétt haft eftir. En raunin er bara sú að alls ekki er rétt haft eftir. Staðreynd- irnar i' málinu hafa verið Ur lagi færðar til að gera málið dular- fyllra en það i verunni er. tJr opinberum skjölum og öðrum skýrslum héðan og þaðan má púsla saman þvi sem raunveru- lega gerðist þennan desemberdag árið 1945. Hvers vegna vildi Taylor ekki fljúga Klukkan eitt þennan dag söfnuðust 13 flugnemar saman i flugstöðinni I Fort Lauderdale og biðu þess að yfirmaður sveitar- irmar, Taylor liðsforingi, gæfi skipanir fyrir flugferð dagsins. Nemarnir hefðu átt að vera 14 en þannan dag hafði Allen Kosnar beðið um fri. Hann hefur löngum siðarhaldið þvi fram að hann hafi fengið hugboð um að eitthvað myndi fara Urskeiðis. Sjálfur var Taylor 15 minUtum of seinn en það þýddi að fresta varð fluginu til klukkan tvö. Taylor baðst af- siScuriar á töfinni en kom ekki með neinar skýringar á fjarvist sinni og sfðan kom hann öllum á óvart er hann kvaðst ekki vilja stýra flugsveitinni þennan dag. Hann bað um að annar færi i sinn stað. Þvi varð ekki við komiö og Taylor ákvaö að láta sig hafa það aö fljUga. Ekki er vitað hvers vegna Taylor treysti sér ekki til að fljUga og siðan hefur verið giskað á aðhann hafi verið veikur eða jafnvel drukkinn. Allir sem hittu hann áður en lagt var af stað eru hins vegar sammála um að Taylor hafi verið hinn eðlilegasti i alla staði og sérstök rannsóknar- nefnd friaði hann siðar af allri á- byrgð á örlögum flugsveitar- iirnar. Mennirnir 14 sem þátt tóku i Flugi 19 voru ekki þrautreyndir kappar einsog þeir sem skrifa Þrihyrningsbækumar gefa jafn- an i' skyn. Að Taylor undanskild- um höfðu flugnemarnir aðeins flogið 350—400 flugtima og þar af aðeins 55 ti'ma i Avenger-vélum. Taylor haföi tekið þátt I striðinu og var með 2509 flugtima en hann haföi ekki flogið i hálft ár og aldrei þá leið sem Flug 19 átti aö fara. SU flugleið var heldur ekki venjuleg leið sveitarinnar einsog oft er haldið fram. FljUga átti austur (091 gráðu) I 56 milur, þá beygja i norður (241 gráðu) og fljUga þannig i 73 milur og loks snUa i vestsuðvestur (241 gráðu) þær 120 mflur sem eftir voru til flugvallarins. A leiðinni átti að æfa sprengjukast. Veðrið var sæmilegt: skUrir og skýjahæð 2500 fet, skyggni um það bil 10 milur, vindhraði milli 20—31 hnUtar á yfirborði sjávar. Þetta var ekki skárra en sæmilegt veð- ur. Flugsveitin fór i loftið klukkan tvö einsog áður var getið. Farið hafði verið nákvæmlega yfir öll tól og tæki vélanna og gengið Ur skugga um að allt væri i lagi. Áætlað varað flugið tæki tvo tíma en i hverri vél voru eldsneytis- birgðir til fimm og hálfs tima flugs. Hins vegar var klukka ekki i neinni vélanna og enginn flug- manna bar Ur. Flug 19 hafði þvi enga möguleika á að fylgjast með timanum. „Ekki koma á eftir mér„.” Nokkrum minUtum eftir klukkan hálf þrjú heyrði f lugturn- inn i Fort Lauderdale samtöl milli flugvélanna i sveitinni. „Ég á eina sprengju eftir”, sagði einhver. „Varpaðu henniþá,” var svarið. Samkvæmt frásögnum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.