Tíminn - 19.07.1981, Page 27

Tíminn - 19.07.1981, Page 27
26______ nútíminn Sunnudagur 19. jiílí 1981 —— ■ Bubbi Morthens er nýr. Þaö vill segja hann var aö gefa út sólóplötu nr. 2 „Plág- an” heitir hún. Tivoli er búin að gefa út „Þrumuvagninn”. Sina aöra 45 snúninga plötu. Þungarokk er þema hennar. Borgfirska hljómsveitin Chaplin er hins vegar meö sina fyrstu á feröinni. Einnig 45 snúninga. Væntanlegar eru plötur frá Bara-flokknum, Taugadeild- inni og Pollock bræörunum. Af erlendum útgáfum er það helst aö frétta aö Rolling- arnir eru meö eina á prjónun- um. Nýjasta plata Bob Dylan mun eiga aö heita „Shot of Love”. Electric Light Orchestra er nú loks komin fram i dagsljós- iö eftir nokkuð hlé. „Time” heitir nýjasta afkvæmi þeirra. Og i kjölfar sólóplötu Jim Steinman ætlar vinur hans Meat Loaf aö senda frá sér plötu. Plötuna sem átti aö vera i kjalsoginu eftir „Bat out of Hell”. Nýja platan á aö heita „Rock & Roll Dreams Come True”. Annars er þaö staöfest að Bernie Tormé, gitarleikari, hefur nú yfirgefiö hljómsveit- ina Gillan, vegna óánægju með stjórn hljómsveitarinnar. Gillan skartar nýjum gitar- leikara, Jannick Gers og er hann úr hljómsveitinni White Spirit. Steely Dan eru vist hættir, þar sem bæði Donald Faeen og Walter Brecker vinna nú hvor aö sinu verkefninu. Samt veit maöur aldrei. Nú hefur King Crimson veriö end- urvakimRobert Fripp, Adrian Belew, Tony Levin og Bill Bruford eru meðlimir en aö- eins Fripp og Bruford eru upp- haflegir i hljómsveitinni. Mjúkar lútur Ýmsir: Feels Fine ■ Pianóundirleikur og kyn- þokkafull karlsmannsrödd fyllir herbergiö. Lagið liöur áfram og þú si'gur aftur f stdlnum og rifjar upp siöasta dstarævintýri. Atr- iöi Ur kvikmynd. Eöa bara gtíöa minningu. „Easy listening” tónlist er sú tegund tónlistar kölluö sem gerir þér kleift aö hlusta á tónlist án þess aö hlusta, draga athygli sessu- nautsins frá þvi sem þU ert raunverulega að gera (ekki meira um þetta efni, — ritstj.), eða til að koma þér i afslappað skap eftir „erfiöan dag á skrif- stofunni”. Undir þessa skilgreiningu fellur einmitt platan „Feels Fine”. Á henni er aö finna sam- ansafn af einum bestu „easy listening”lögum sem hafa kom- iö Ut á vegum CBS útgáfunnar á siðustu árum. Platan er tvenna og á henni eru heil 24 lög meö jafnmörgum listamönnum. Listamennirnir eru ekki af verri endanum og má nefna þá Neil Diamond, sem flytur SUNNUDAGS ^■BLADID DJÚmiUINN Alltaf um helgar Kvikmyndin „Útlaginn” „Sálarlíf” fiska — viðtal við Loga Jónsson, líffræðing Hversu kristni kom á íslandi fyrir 1000 árum reyndar fyrsta lag plötunnar og minnst var á hér áðan, Janis Ian, uppáhaldið mitt, flytur gullfallegt lag af „Night Rains” plötunni sinni, Barry White, sem hvíslar eitt lag, Herp Al- bert, sem blæs sig i gegnum „Rise” Dan Fogelberg og Kenny Loggins, tveir af skemmtilegri lagahöfundum vestanhafs nU til dags, Santana, Quincy Jones, sá óviðjafnan- legi, Rita Coolidge, Gladys Knight, Joan Armatrading og l»nnig mætti lengi telja. 011 eiga lögin það sameiginlegt á þessari plötu aö vera rtíleg og melódisk. Væmin safnplata af rómantiskum lögum, en góð sem slik. Nauösynlegt hjálpar- tæki fyrir Casanova þessa Á réttri braut George Harrison: Somewhere in England ■ Loksins hefur Georg Harri- son rifiö sig upp úr þeim svart- sýnisdal sem hann dvaldist i siðastliðin ár. Hver man eftir léttri og skemmtilegri Harrison plötu? Ekki sfðan hann gaf Ut „All Things Must Pass”. NU loksins finnst mér hann taka já- kvæða afstööu gegn tónlist sinni, leyfir sér aö skemmta sér á meöan hann skemmtir öðrum. Ég hef trU á þvi aö platan „Somewhere In England” eigi eftiraö marka timamót I tónlist Georg Harrison. Með þessari plötu nú sýnir hann að þaö er ekki tímabært aö afskrifa hann þrátt fyrir það að hann hafi dal- að svo á undanförnum árum. Þessu lýsir hann mjög vel i lag- inu „Teardrops”, en þar segir hann aö hann hafi fengiö nóg af tárum, hann sé búinn að gráta heilu föturnar þaö mikiö aö hann haldi aðhann hafi tekið við af rigningunni. Meö þessu er hann kannski aö gefa i skyn aö hann sé skilinn við sitt fyrra háttalag og li't i bjartari augum á framtiðina. Viö skulum vona það. Platan „Somewhere In England” er I sjálfu sér ekki ný hlið á Harrison heldur fremur gamlir taktar, finir og fágaöir, enduruppteknir. Hann hefur samiö öll lögin, nema tvö, sjálf- ur. Þeirra vinsælast hefur veriö „All those Years Ago”, sem er óður til John Lennon. Satt aö segja er ég sáróánægöur meö þetta lag. Þetta er alls ekki þannig lag sem John Lennon heföi viljaö aö samið yröi um sig. Væmiö og alls ekki nógu gott, nema þá ef vera kynni textinn. Þaö aö Paul og Linda McCartney og Georg Martin, fyrrum upptökustjóri Bitlana, skyldu hafa tekiö þátt i þessari vellu gerir aöeins illt verra. Eitt er þaö líka sem ég get ekki stillt mig um að minnast á og þaö er þessi mikli trúaráhugi Harrison. Mér þykir nokkuö merkilegt hve trúmál eru hon- um hugleikin. Ekki það aö þaö rýri plötuna eöa tónlistina á nokkurn hátt. Mér virðist trú hans mjög alþjóðleg og hann byggir frekar á skynsemi og djúphugsaöri speki en ofsatrU. Þessu lýsir hann nokkuö vel i laginu,,Life Itself”. Ekki verður skiliö viö þessa plötu án þess aö minnast á hlut Roy Cooper. Glöggir menn muna kannski eftir honum Ur þætti sem sjónvarpið sýndi s.l. vetur um hljtímleikaferð Elton Johns til RUsslands, en þar var Ray Cooper aðstoðarmaður hans. Það var reyndar i hljóm- sveit Elton Johns sem Ray varð fyrst frægur. Og hann er einn af fáum ásláttarhljóöfæraleikur- um sem hefur tekist aö ná at- hygli umheimsins. Astæðan fyr- irþvi aö ég minnist á Ray er sU að mér segir svo hugur að hann hafi tekið verulegan þátt i mót- un „Somewhere in England” og hann er fyrir utan Harrison mest afgerandi einstaklingur- inn sem hefur tekiö þátt i gerð plötunnar. Hann stjórnaði upp- töku, ásamt Harrison, og lék auk þess á trommur, hljómborð og ýmis ásláttarhljóðfæri. Og ekki lét hann sig muna um þaö að hanna plötuumslagið. Fjöl- hæfúr maður Ray. Já, svo Harrison er kominn á kreik. Hann er kannski aö gefa eitthvaðískyn meö þvíaöskýra plötuna „Somewhere In Eng- land”. Þaö er heitiö á verkinu sem prýöir plötualbúmiö. Verk sem er frá árinu 1967, sama ár og „The Beatles” gáfu út sina bestu plötu „Sgt. Peppers Lon- ely Hearts Club Band”. Hann slö'ldi þó aldrei vera að.... Fyrir fætur The Beats Wha’ppen? B M.D.—Breska hljómsveitin The Beat er forvitnileg blanda af dans og ádeiluhljómsveit. The Beat er sextett og i honum eru: Everett Morton, David Steele, Saxa, Ranking Roger, David Wakeling, og Andy Cox. Þrir þeirra eru svartir og þrir hvitir. The Beat er tiltölulega ung hljóm- sveit. „Wha’ppen” er önnur stóra platan þeirra. Það var fyrsta plata þeirra „Just Can’t Stop It” sem vakti athygli á sextettnum og var hún ofarlega á lista yfir bestu plötur siðasta árs hjá plötugagn- rýnendum breska poppblaðsins „Sounds”. Samsetning hljómsveitar,nnar með tilliti til húðlitar er óvenjuleg. Þessi blanda og sú staðreynd að þeir eru breskir gerir það e.t.v. skiljanlegra hvers vegna þeir taka fyrir samfélags- leg vandamál i lögum sinum. The Beateralls ófeimin við að taka á kýlum breska samfélagsins. Yrkisefni þeirra eru fjölbreytt en alloft verður maður var við orð eins og atvinnuleysi og kynþátta- fordómar. En ég tek vara fyrir þvi að platan „wha’ppen” er eng- in leiðinda plata. Þó svo að efni texta þeirra sé ádeila þá klæða þeir hana i svo skemmtilegan búning að það leið langur timi áður en ég tók eftir þvi að þetta ■ eru „reiðir ungir menn” sem vilja breytingu. Tónlist þeirra er fyrst og fremst' ska. Rythmisk og létt. Full af saxafón til að gera hana milda og melodiska. An þess að vita það nákvæmlega þá heyrist mér þeir skipta söngnum bróðurlega á milli sin og eykur það á fjöl- breytnina. Tónlist fyrir fætur með alvarlegu ivafi. ' I C‘ Japönsk “ýbylgja The Plastics: Welcome Back ■ Sjónvarpið, úrið ritvélin, heimilistækin. Allt framleitt i Japan. Þessu forðabúri tækni- væöingar tuttugustu aldarinnar. Hefur þú aldrei hugleitt það hve mjög við treystum á Japan til að sjá okkur fyrir tæknilegum, þæg- indum? Hve mikil áhrif Japan hefur á daglegt lif okkar? Hvaö við gerðum ef ekki væru fyrir hendi svo sjálfsagðir hlutir eins og vasatölvur, útvörpin og kikir- ar? Ég skal veðja við þig að i öll- um þessum hugleiðingum þinum hefur þú ekki eitt andartak leitt hugann að japanskri tónlist. Hvers vegna ekki? Fyrst og fremst vegna þess að hingað til hafa japanskar hljómsveitir verið lélegar eftirlikingar af vestræn- um og ekki þess virði að taka eft- ir. En allt þetta breytist og eru Japanir ekki frægir fyrir að til- einka sér hugmyndir og tækni annarra og þróa það lengra? Fyrsta japanska hljómsveitin . sem vakti á sér alheimsathygli var Yellow Magic Orchestra. CJr vinsældum varð hins vegar ekki vegna þess að þeir spila steingelt tæknipopp (og fundu sjálfir upp orðiö tæknipopp) og einnig vegna þess að þeir hafa haldið per- sónum sinum algerlega leyndum, hlutur sem hið átrúnaðargoða- sjúka þjóðfélag vesturlanda sætt- ir sig ekki viö. Þess vegna vikur sögunni að The Plastics (fyrirtaks nafn). Spakir menn spá þvi að sú hljóm- sveit eigi eftir fyrst allra jap- anskra að leggja heiminn að fót- um sér. En hvers vegna The Plastics? Tónlist þeirra er hress dansmúsik, þau eru hæfilega sér- vitur og þeim finnst þetta gaman. Og það er aðalmálið. Gamaniö. Þegar tungumála(fá)kunnátta kemur i veg fyrir frekari tján- ingaskipti þá er hlátur og skemmtan alþjóðlegt tungumál. Annars eru The Plastics ekki alókunnug á vesturlöndum. Þau hafa farið i tónleikaferðalag um Bandarikin tvisvar og gefiö út litla plötu hjá Rough Trade i Eng- landi. Það var framkvæmdastjóri Talking Head/ B52 sem gerði sér grein fyrir hæfileikum hljóm- sveitarinnar og kom þeim á samning hjá hljómplötuútgáfunni Island. Og nú hafa þau einmitt sent frá sér sina fyrstu stóru plötu „Wel- come Back”. Platan var tekin uppá einni viku á Bahamas undir stjórn Alex Sadkin, upptökustjóra Bob Marleys heitins. Tónlist þeirra er það næsta sem japanskt tæknipopp kemst rockabilly tón- list. Aðalástæðan fyrir þvi að þau eru tæknipoppshljómsveit er sú að þau nota Roland Rythm Com- puter i staðinn fyrir venjulegan trommuleikara. I viðtali voru þau spurö: „Hvers vegna?” Og svar- ið: „Góð spurning”. „Jæja, kom- ið þá með gott svar”. „Engir góð- ir trommarar”. Já þeir láta ekki stinga upp i sig þessir Japanir. Annars hafa þau lent i ýmsu á ferðalögum sinum. T.d. hafa þau gaman af þvi að segja þessa dæmisögu. „Einu sinni féll Toshi (aðalsöngvarinn) fram af sviðinu með mikrafóninn og allt saman i miðju lagi. Þar sem hann lá á gólfinu lauk hann við lagið með sóma.Ef þettahefði gerst i Japan hefðu áhorfendur grip^ið hann. I Bandarikjunum hefðu ahorfendur ýtt honum upp á sviðið aftur. En þar sem þetta gerðist á Englandi þá stýðu áhorfendur bara og ým- ist gondu á hann eða hlógu að honum.” En burtséð frá öllum ævintýr- um sem hljómsveitin hefur lent i þá eiga tónlistaunnendur, sem láta sig nýbylgju einhverju skipta eftir aö upplifa það ævintýri sem hljómsveitin The Plastics er. — M.G. Hjólum ávallt hægra megin sem næst vegaitoiún hvoit heldurJ við emm í þéttbýli eða á þjóðvegum.y jlssr> Harry Chapin er látinn Bandariski tónlistarmaðurinn Harry Chapin er lát- inn. Hann lest i bilslysi s.l. föstudag skammt frá New York. Harry Chapin fæddist 7. des. 1942. Tónlistarferill hans hofst seint eða ekki fyrr en á árinu 1972. Fram að þeim tima stundaði hann ymis störf, var m.a. flugmaður og kvikmyndagerðamaður. Reyndar var hann utnefndur til oskarsverðlauna fyrir þogla mynd sem hann gerði um hnefaleika. ollu þekktari var Chapin hins vegar sem söngvari og lagasmiður, einkum i Bandarikjunum. Að vissu leyti fetaði Chapin i fótspor Dylan hvað ton- list varðaði. Lög hans voru yfirleitt löng og textar frem- ur smasögur, heldur en orð og orð á stangli. Þekktastur varð hann fyrir lögin ,,W.O.L.D." og ,,Cat's In The Cradle". mairna frá MITSUBISHI Getum afgreitt strax hinar glæsilegu 20 manna fólksflutningabifreiðar frá MITSUBISHI. Mjög hagstætt verð. Hafið samband við sölumenn okkar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.