Fréttablaðið - 20.02.2008, Síða 6
MARKAÐURINN 20. FEBRÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR6
F R É T T A S K Ý R I N G
V
ið höfum spilað vörn,
tekið skrefið aftur á
bak til að byggja betri
grunn, treysta stoðirn-
ar til að vinna út frá
og fínstilla reksturinn sem gerir
okkur kleift að nýta tækifærin
sem hafa orðið til. Þeir sem kom-
ast í gegnum erfiðleikana standa
sterkir eftir,“ segir Jón Sigurðs-
son, forstjóri FL Group.
Jón kynnti í síðustu viku sitt
fyrsta uppgjör. Vart öfundsverð-
ur af hlutskiptinu því uppgjör-
ið sýndi tap upp á 67 milljarða
króna, eitt mesta tap hjá íslensku
fyrirtæki til þessa. Tífalt meira
en Dagsbrún skilaði af sér fyrir
tveimur árum, sem þá skipaði
fyrsta sætið.
Markaðsaðilar eru almennt -
þrátt fyrir ýmsa fyrirvara - sam-
mála um að FL Group hafi geng-
ið hreint til verks í uppgjörinu og
benda á að 32 prósenta eign fé-
lagsins í Glitni sé færð til bókar á
markaðsvirði í stað hlutdeildarað-
ferðar. Markaðsvirðið hafi keyrt
afkomuna niður en hefði hinni að-
ferðinni verið beitt mætti ætla að
tapið hefði orðið á bilinu 20 til 30
milljörðum krónum minna.
Hlutskipti Jóns er vart öfunds-
vert en hann tók við forstjóra-
stólnum eftir að mjög tók að
þrengja um stærstu hluthafa fé-
lagsins í kjölfar mikillar gengis-
lækkunar á hlutabréfamarkaði.
Sviptingar urðu í hluthafahópn-
um í kjölfarið og greip félag-
ið til þess að selja stórar stöður
í erlendum félögum sem höfðu
lækkað mikið í verði.
Þar á meðal hafði mjög saxast
á hlut félagsins í bandarísku
flugrekstrarsamstæðunni AMR
og í hinum þýska Commerzbank.
Til tíðinda þótti þegar FL Group
flaggaði tæpum sex prósenta
hlut í AMR skömmu fyrir þar-
síðustu áramót og varði félagið
háum fjárhæðum og ærnum til-
kostnaði til að fá kröfum sínum
framgengt þar innandyra í fyrra.
Árangurinn var lítill og ákvað fé-
lagið að losa um eignir í skugga
niðursveiflu á hlutabréfamörk-
uðum samhliða háum olíuverði
sem snerti mjög við afkomu flug-
rekstrarfélagsins.
Svipaða sögu var að segja af
öðrum fjárfestingum FL Group
sem gengu ekki eftir á síðasta ári.
Mikil umsvif í fjárfestingum fé-
lagsins skiluðu sér í háum rekstr-
arkostnaði: 6,1 milljarðar króna.
NIÐURSKURÐARHNÍFUR Á LOFTI
Þeir Jón Sigurðsson, forstjóri FL
Group, og Jón Ásgeir Jóhann-
esson, stjórnarformaður þess,
boðuðu báðir á fjölmennum upp-
gjörsfundi fyrir viku að fram-
undan væri mikill niðurskurð-
ur á kostnaðinum. Stefnan er að
skera kostnað niður um helming
hið minnsta.
Forstjórinn segir hraða upp-
byggingu FL Group síðastliðin
ár skýra háan rekstrarkostnað
í fyrra. Félagið hafi flutt inn í
nýjar höfuðstöðvar síðla hausts
í fyrra auk þess sem skrifstofa
var opnuð í Lundúnum í Bretlandi
og annarri lokað í Kaupmanna-
höfn í Danmörku. Þá hafi félag-
ið borið eftirlaunaskuldbindingar
frá Flugleiða-tímanum á bakinu
auk kostnaðar vegna starfsloka,
m.a. vegna lokunar skrifstofu
félagsins í Kaupmannahöfn.
Þar er líka starfslokasamning-
ur Hannesar Smárasonar, fyrr-
um forstjóra, uppá níutíu millj-
ónir króna. Allt er þetta einskipt-
ikostnaður sem ekki falli í bækur
FL Group á næstu árum, að sögn
Jóns. Jón bendir líka á að setja
verði rekstrarkostnað félagsins
í samhengi við mikil umsvif í
kringum eignsafn sem nam 422
milljórðum í árslok 2007.
SAMKEPPNISHÆF LAUN
Launakostnaðurinn í fyrra nam
701 milljón króna sem deilist á
40 starfsmenn. Það geri 1,5 millj-
ónir á mann að meðaltali á mán-
uði, með launatengdum gjöldum.
„Laun í þessum geira eru há og
því tel ég að við greiðum sam-
bærileg laun og hjá öðrum fyrir-
tækjum í sama geira,“ segir Jón
og bætir við að nauðsynlegt hafi
verið, í sókn síðustu ára, að bjóða
vel í góða starfskrafta, bæði ís-
lenska sem erlenda. „Við erum
með mjög gott fólk, “ segir hann.
DREGIÐ ÚR STYRKVEITINGUM
FL Group hefur í ofanálag styrkt
veglega við ýmis verkefni og
málefni. Svo sem við Unicef,
BUGL (Barna- og unglingageð-
deild Landsspítalans), Mænu-
skaðastofnun Íslands, Tónvís og
Sinfóníuhljómsveit Íslands, auk
margra smærri málefna. Verk-
efnin eru flest hver bundin til
ákveðins tíma. Kostnaður við
verkefnin hefur ekki komið fram
í ársreikningum FL Group til
þessa.
Stefnan er að draga mjög úr
smærri styrkjum og einblína á
stærri málefnin.
Stærsti liðurinn í rekstrar-
kostnaði FL Group í fyrra voru
útgjöld í tengslum við stór yfir-
tökuverkefni, svo sem í banda-
rísku flugrekstrarsamstæð-
unni AMR og stórar stöðutökur
í öðrum erlendum stórfyrirtækj-
um, svo sem í Commerzbank,
sem sumar hverjar skiluðu ekki
því sem sóst var eftir. Eins og
áður hefur komið fram hóf FL
Group að losa um stöður sínar
bæði í AMR og Commerzbank
þegar niðursveifla af hlutabréfa-
mörkuðum komu fram af full-
um þunga. Félagið beitti fyrir
sig ýmsum vörnum, svo sem með
skortsölu á hlutabréf í öðrum
bandarískum flugfélögum til að
verjast lækkun á gengi AMR.
„Þetta voru aðeins erlend hluta-
bréf sem við skortseldum, meðal
annars í bandarískum,“ segir
Jón.
Yfirtökutilraunir á breska hug-
búnaðarfyrirtækinu Inspired Ga-
ming Group, sem gekk ekki eftir,
setti sömuleiðis strik í reikning-
inn. Yfirtökutilraunirnar skýra
að mestu kostnað við fjárfest-
ingar upp á 1,3 milljarða króna.
„„Við vorum komin langt í ferl-
inu og þá fellur til hár sérfræði-
kostnaður ásamt öðru,“ segir Jón
en bendir á að kostnaðurinn varð-
andi AMR og breytinga á rekstri
félagsins vegi þungt auk svip-
aðra verkefna sem aldrei urðu
opinber. „Það er ljóst að þetta
var mjög sveiflukennt ár og mjög
stórir póstar sem féllu til sem
við reiknum ekki með að komi
aftur.“
EKKI ÞÖRF FYRIR EINKAÞOTUR
Þreifingar FL Group í Banda-
ríkjunum og Evrópu í fyrra
kröfðust mikilla ferðalaga landa
á milli. Jón vill ekki gera mikið
úr umræðum um einkaþotur,
sem notaðar hafa verið í við-
skiptaerindum víða um heim í
nafni félagsins. „Í sumum til-
fellum notuðu menn einkaþotur
og hluti af kostnaðinum fellur til
vegna slíkra ferða,“ segir Jón en
áréttar að ekki hafi verið nauð-
syn fyrir slíkar ferðir síðustu
mánuðina.
Aðspurður um framtíðina
segir Jón: „Ég held að þegar við
höfum siglt í gegnum þetta tíma-
bil erfiðleika þá verðum við vel
í stakk búin til að hagnast á því
þegar markaðir jafna sig. Við
erum að undirbúa skútuna fyrir
framhaldið. Það er markmið
30
25
20
15
10
5
0
18. feb. 2005 19. feb. 200814. feb. 2006 1. mars 2007
G E N G I F L G R O U P F R Á 2 0 0 5 T I L 2 0 0 8
NÝR FORSTJÓRI SKOÐAR UPPGJÖRIÐ
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður
FL Group, og Jón Sigurðsson forstjóri skoða
uppgjörið á kynningarfundi í síðustu viku.
MARKAÐURINN/ANTON
FL Group hreinsar út fortíðardrauga fyrir framtíðina
Fjárfestingarfélagið FL Group skilaði mesta tapi Íslandssögunnar á síðasta ári. Í kjölfar umfangsmikilla sviptinga á stærstu hlut-
höfum félagsins í ólgusjó á fjármálamörkuðum leitaði félagið í var. Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group, segir í samtali við Jón
Aðalstein Bergsveinsson að rekstrarkostnaður verði skorinn niður og stoðirnar treystar til að nýta tækifærin sem hafi skapast.
NÝTT ELDHÚS
MEÐ BREYTTUM
ÁHERSLUM
Bergstaðastræti 37 s. 552 5700 holt@holt.is www.holt.is