Fréttablaðið - 12.03.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 12.03.2008, Blaðsíða 4
MARKAÐURINN 12. MARS 2008 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðla- bankans, lét á mánudag í ljósi áhyggjur vegna sterkrar stöðu evrunnar gagnvart öðrum gjaldmiðl- um. Breska viðskiptablaðið Financial Times segir gengismálin hafa orðið eftir í málflutningi Trichets þegar hann ræddi um rökstuðning seðlabankans fyrir því að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum í síðustu viku. Evran tók stökkið eftir að ákvörðunin lá fyrir, fór í 105 krónur á mánudag og hafði aldrei verið sterk- ari. Þá hefur vaxtamunurinn verið meiri gagnvart öðrum myntum, ekki síst Bandaríkjadal, sem hefur dalað hratt samfara snörpum stýrivaxtalækkun- um í Bandaríkjunum frá því lækkanaferli hófst vestanhafs í september í fyrra. Gengi Bandaríkja- dals hefur veikst um 9,2 prósent síðan þá samhliða styrkingu evrunnar. Bloomberg-fréttaveitan hafði eftir bandaríska fjárfestinum Marc Faber í vikunni að héldi seðlabankinn áfram að lækka stýrivexti sína myndi hann rýra allt traust á Bandaríkjadal, í versta falli eyðileggja hann. Fjármálaráðherra nokkurra af aðildarríkj- um myntbandalagsins hafa lýst yfir áhyggjum af þróun mála, ekki síst fyrir útflutningsfyrirtæki. Það endur speglaðist svo í ræðu Trichets á mánu- dag en þá sagði hann miklar gengissveiflur geta komið niður á hagvexti á evrusvæðinu. Þrátt fyrir það virðist ekki sem hátt gengi hafi komið illa við fyrirtæki í aðildarríkjunum. Samkvæmt nýjustu tölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, sem birtar voru á mánudag, var útflutningur frá Þýska- landi, stærsta aðildarríkinu, umfram væntingar í janúar auk þess sem framleiðni jókst umfram spár í Frakklandi og Ítalíu á sama tíma. Á vaxtaákvörðunardeginum í síðustu viku lagði Trichet sem fyrr ríka áherslu á að halda verð- bólgudrauginum í skefjum fremur en að gera láns- fé ódýrara með aðgerðum sem beinast að því að koma genginu niður. Verðbólga mælist nú 3,2 pró- sent á evrusvæðinu og hefur viðlíka tala ekki sést í fjórtán ár. Mikil verðhækkun á matvæla- og eldsneytis verði á stærstan þátt í þróuninni. Líkt og greiningardeild Kaupþings benti á í Hálffimm- fréttum sínum í vikubyrjun bindur há verðbólga hendur bankastjórnar seðlabanka Evrópu til lækk- unar stýrivaxta í bráð. Sérfræðingur hjá bandaríska fjárfestingarbank- anum Bear Stearns er sama sinnis. Hann segir í samtali við Financial Times helsta vandann gengis- lækkun Bandaríkjadals í kjölfar snarpra stýri- vaxtalækkana í Bandaríkjunum fremur en styrk- ingu evru. Litlar líkur séu á að aðgerðir sem stuðla eigi að lækkun evru heppnist á sama tíma og Banda- ríkjadalur virðist í frjálsu falli, að hans mati. ÁHYGGJUFULLUR SEÐLABANKASTJÓRI Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans, hefur meiri áhyggjur af verð- bólguþróun en fjármálastöðugleika. Sterk staða evrunnar hefur bæst við á áhyggjuhauginn. MARKAÐURINN/AP Horfir á gengi evru Seðlabankastjóri evrópska seðlabankans hefur áhyggjur af sterkri evru. Sérfræðingar kenna bandaríska seðlabankan- um um stöðu mála. Ferðaskrifstofur í Danmörku segja kaupglaða Dani fara í stórum hópum í verslunarferðir til til Bandaríkjanna. Lágt gengi Bandaríkjadals gagnvart dönsku krónunni á stærstan hlut að máli. Í nokkrum tilvikum hefur við- skiptavinum fjölgað um 140 prósent á milli ára. Vinsæl- ustu áfangastaðirnir eru New York og Las Vegas. Gengi Bandaríkjadals hefur fallið talsvert frá síðasta sumri. Einn slíkur kostar um þessar mundir 4,8 dansk- ar krónur og hefur hann ekki verið jafn lágur gagnvart dönsku krónunni síðan árið 1977. Danska dagblaðið Nyhedsavisen segir Dani af þess- um sökum geta hagað sér eins og milljónerar, gamal- dags plantekrueigendur í borgarferð þar sem allt er keypt sem hugurinn girnist. Blaðið hefur eftir Jahn Shapiro, forstjóra ferðaskrif- stofunnar Profil Rejser, að mikill áhugi sér fyrir helgar- ferðunum og muni hann einungis aukast lækki gengi Bandaríkjadals frekar. - jab FRÁ STRIKINU Á sama tíma og Íslendingar ganga Strikið á enda flykkjast Danir í hópum til Bandaríkjanna í verslunar- leiðangra. MARKAÐURINN/AFP Kaupóðir Danir flykkjast í vesturátt Það er ekki aðeins gengi banka og fjármálafyrirtækja sem hefur orðið illa úti í hræringum á hluta- bréfamörkuðum. Gengi netleitar- risans Google hefur fallið um 44 prósent frá haustdögum. Helsta ástæðan – auk almennr- ar lækkunar á hlutabréfamörk- uðum – er nýlegt verðmat á fyrir tækinu. Helsta tekjulind Google er auglýsinga- sala, sem reiknað er með að dragist saman á árinu í skugga markaðs- aðstæðna. Markgengi bréfa Google var því fært niður. Google var skráð á markað í ágúst árið 2004. Fyrsti viðskiptadagur með bréf- in var 19. ágúst sama ár og stóð lokagengið í rúmum 100 dölum á hlut í enda fyrsta dags. Geng- ið reis hægt og bítandi eftir það og fór hæst í 747 dali á hlut í nóv- ember. Bandaríska vefritið Barron‘s sagði í vikubyrjun að nú riði á að Google næði væntingum ársins. Tækist það ekki mætti búast við að bréfin féllu jafnvel niður í 350 dali á hlut. - jab FEÐUR GOOGLE Þeir Larry Page og Sergey Brin. Google í frjálsu falli Sporslur Lloyds Blankfein, stjórnarformanns og forstjóra bandaríska fjárfestingarbank- ans Goldman Sachs, námu 100 milljónum Bandaríkja- dala, jafnvirði tæpra 6,9 millj- arða íslenskra króna, á síðasta ári. Rúmur helmingur verður greiddur út í peningum en af- gangurinn í hlutabréfum í bank- anum. Blankfein er langlaunahæsti bankaforstjórinn vestanhafs og nærri því sá eini sem hefur haldið starfi sínu í þeirri orra- hríð sem stórir bankar og fjár- málafyrirtæki í Bandaríkjun- um hafa lent í frá haustdögum, að sögn Associated Press-frétta- stofunnar. Goldman Sachs skilaði met- hagnaði á síðasta ársfjórðungi, 3,17 milljörðum dala, sem er talsvert betri afkoma en hjá keppinautunum vestra. Munar um að bankinn fjárfesti lítið í skuldabréfavafningum sem tengjast þarlendum undirmáls- lánum. - jab BANKASTJÓRINN Lloyd Blankfein, forstjóri Goldman Sachs, er launahæsti bankastjóri Bandaríkjanna. MARKAÐURINN/AFP Blankfein einn á launatoppnum Yasuo Fukudo, forsætisráðherra Japans, hefur tilnefnt Toshiro Muto næsta seðlabankastjóraefni landsins eftir að Toshihiko Fukui, núverandi seðlabankastjóri, sest í helgan stein fyrir aldurs sakir í næstu viku. Tilnefningin hefur verið gagn- rýnd í landi hinnar rísandi sólar enda Muto fyrrverandi aðstoðar- fjármálaráðherra og því mjög tengdur ríkisstjórn landsins. Hann er nú aðstoðarseðlabanka- stjóri landsins. Forsætisráðherrann hefur ekki í hyggju að tilnefna annan mann í embættið þótt svo geti farið að Muto hljóti ekki embættið. Hörð- ustu gagnrýnendur tilnefningar- innar eru stjórnarandstaða lands- ins, sem einmitt þarf að kjósa um nýjan seðlabankastjóra á næst- unni en hefur meirihluta þing- sæta í efri deild japanska þings- ins. Náist ekki sátt um Muto er hægt að ráða annan mann tíma- bundið í stól seðlabankastjóra á meðan annars er leitað, að sögn breska ríkisútvarpsins. - jab SEÐLABANKASTJÓRAEFNIÐ Forsætisráðherra Japans ætlar ekki að til- nefna nýjan mann í sæti seðlabankastjóra þrátt fyrir gagnrýnisraddir. MARKAÐURINN/AP Lítil sátt um bankastjóraefnið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.