Fréttablaðið - 12.03.2008, Blaðsíða 7
MARKAÐURINN 7MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2008
F R É T T A S K Ý R I N G
Í úttekt Sirkus, fylgiblaðs Fréttablaðsins,
í maí í fyrra voru feðgarnir Björg ólfur
Thor og Björgólfur Guðmundsson í tveim-
ur efstu sætunum en Jón Ásgeir Jóhannes-
son, starfandi stjórnarformaður Baugs, í
þriðja sæti. Miðað við hræringar á hluta-
bréfamörkuðum frá miðju síðasta ári er
hins vegar útlit fyrir að Jón hafi tekið
annað sætið af Björgólfi. Þá hefur talsvert
rót orðið á lista yfir 25 ríkustu Íslending-
ana og sumir hverjir, sem trónuðu ofar-
lega á honum í fyrra, fallið mun neðar.
Miðað við grófa útreikninga á eigna-
stöðu ríkustu einstaklinga Íslands færast
þeir sem byggja auð sinn á skráðum eign-
um neðar á meðan þeir sem festa fé sitt í
óskráðum eignum hafa færst ofar. Hafa
ber í huga að erfiðara er að áætla virði
óskráðra eigna en hinna.
Þannig eru þeir Bakkabræður, Lýður og
Ágúst Guðmundssynir, sem voru í 4. til 5.
sæti á listanum í fyrra með eignir upp á 80
milljarða hvor, komnir í hóp tuttugu rík-
ustu einstaklinga landsins. Auður þeirra
liggur að mestu í fjármálaþjónustufyrir-
tækinu Existu, sem hefur fallið um rúm 65
prósent frá því Sirkus birti listann í fyrra.
Þeir eru síður en svo á flæði skeri staddir
enda nema eignir hvors um sig tæpum 30
milljörðum króna. Sama skýring liggur
á bak við sætaskipti Björg ólfs eldri en
stærstu eignir hans liggja í Landsbankan-
um og tengdum félögum.
Á sama tíma hafa þeir Karl Wernersson,
stjórnarformaður Milestone og Aska Capi-
tal, og Ólafur Ólafsson, stjórnar formaður
Samskipa og Alfesca, færst ofar. Pálmi
Haraldsson, meirihlutaeigandi í Fons,
og Gísli Reynisson, stærsti hluthafinn í
Nordic Partners, eru hástökkvararnir á
lista yfir ríkustu einstaklinga landsins á
milli ára. Pálmi var í 13. til 14. sæti á lista
Sirkus í fyrra en skellir sér í fimmta sætið
nú. Gísli, sem var í 15. sæti í fyrra, vermir
6. sætið nú, samkvæmt útreikningum
Markaðarins.
GÍSLI REYNISSON Pálmi Haraldsson og Gísli
Reynisson eru hástökkvararnir á lista yfir ríkustu ein-
staklinga landsins. MARKAÐURINN/ANTON
Sviptingar í hópi ríkustu Íslendinga
R Í K U S T U Í S L E N D I N G A R N I R
Sæti Nafn Eignir*
1. Björgólfur Thor Björgólfsson 315
2. Jón Ásgeir Jóhannesson
og Ingibjörg Pálmadóttir 100
3. Björgólfur Guðmundsson 75
4. Karl Wernersson 65
5.-7. Pálmi Haraldsson 60
5.-7. Gísli Reynisson 60
5.-7. Ólafur Ólafsson 60
8.-9. Jóhannes Jónsson 50
8.-9. Ása Karen Ásgeirsdóttir 50
10. Steingrímur Wernersson 43
* í milljörðum króna
KARLAR BYGGJA UPP – KONUR
ERFA
Athyglisvert er að allar konurn-
ar í hundrað efstu sætunum yfir
auðkýfinga heimsins sem flagga
meira en einum milljarði dala
erfðu eignir sínar ýmist eftir
látna eiginmenn eða feður. Því er
öfugt farið með karlana í tuttugu
efstu sætum listans. Fjórtán
karlar – sem flestir eru komn-
ir yfir meðalaldur (rúm 65 ár) –
byggðu auð sinn í sveita síns and-
lits á meðan fimm fengu hann
að erfðum. Eftir því sem neðar
dregur á listann eykst hlutur erf-
ingjanna. Flestir eru erfingjarn-
ir af bandarískum, virtum evr-
ópskum ættum eða frá Indlandi
þótt önnur þjóðarbrot slæðist inn
á milli.
Rússarnir eru athyglisverð-
ir í þessu samhengi. Svo virð-
ist sem meirihluti þeirra hafi
nýtt sér einkavæðingu og óról-
eika í Rússlandi um miðjan tí-
unda áratug síðustu aldar enda
hafa þeir byggt upp auðinn í
kringum gömul rússnesk ríkis-
fyrirtæki. Flest hver eru þau í
olíu- og gasgeiranum og millj-
arðamæringarnir oft nefndir
ólígarkar. Þessir nítján auðkýf-
ingar frá Rússlandi sem sitja á
lista yfir hundrað ríkustu ein-
staklinga í heimi eru talsvert
yngri en kollegar þeirra af öðru
þjóðerni hjá Forbes. Meðalaldur
þeirra er 47,3 ár. Þeir elstu eru
59 ára en sá yngsti fertugur.
Sá yngsti er jafnframt sá rík-
asti. Það er Oleg Deripaska,
sem á meirihluta í alþjóðlega ál-
risanum UC Rusal, stærsta ál-
fyrirtæki heims. Eignir hans eru
metnar á 28 milljarða Banda-
ríkjadala, jafnvirði 1.920 millj-
arða íslenskra króna. Deripaska
er annar tveggja hástökkvara á
topp tíu lista Forbes. Hann sat
í 40. sæti listans fyrir ári en
tvöfaldaði auð sinn á tímabil-
inu með sameiningu þriggja ál-
fyrirtækja.
Á hæla hans í fimmtánda sæti
er Roman Abramovich, eigandi
breska knattspyrnuliðsins Chel-
sea. Auður Abramovich jókst
talsvert á milli ára og fer hann
upp um eitt sæti á, var í sextánda
sæti á síðasta ári. Hann var met-
inn á 18,7 milljarða dala á listan-
um í fyrra en eignirnar standa
nú í 23,5 milljörðum, jafnvirði
1.594 milljarða íslenskra króna,
samkvæmt nýjustu útreikning-
um Forbes. Abramovich er jafn-
framt næstyngstur í hópi Rúss-
anna, 41 árs.
MILLJARÐAMÆRINGAR RÆÐA MÁLIN Warren Buffett, nú ríkasti maður heims, hefur þekkt Bill Gates, nú þriðja ríkasta mann heims, í
áraraðir en þeir hafa spilað saman bridds endrum og eins í gegnum árin. MARKAÐURINN/AFP