Fréttablaðið - 02.04.2008, Qupperneq 14
2. APRÍL 2008 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● tækni og afþreying
Farsímar eru ekki lengur
eingöngu hugsaðir sem
samskiptatæki heldur miðstöð
upplýsinga og afþreyingar.
Símafyrirtæki bjóða upp á alls
kyns afþreyingu fyrir farsíma
og þar eru tölvuleikir vinsælir.
Vodafone er eitt þeirra símafyrir-
tækja sem bjóða viðskiptavinum
að niðurhala leikjum í síma sína,
en Síminn og Nova bjóða upp á
svipaða þjónustu. Viðskiptavinir
Vodafone hafa hingað til getað sótt
leiki á Vodafone live en nú hefur
fyrirtækið einnig opnað vefsíðu
undir slóðinni www.leikir.voda-
fone.is þar sem er hægt að nálgast
sömu leiki og á Vodafone live.
„Sex leikjaflokkar eru í boði
en þeir eru kappakstur, heila-
brot, íþróttir, þrautir, spilakass-
inn og hasar. Úrvalið ætti því að
henta bæði þeim sem hafa gaman
af spennandi og hröðum leikjum
sem og þeim sem vilja brjóta heil-
ann yfir flóknum þrautum,“ segir
Elva Guðrún Guðjónsdóttir, vöru-
stjóri Vodafone.
Ekki þarf að greiða fyrir GPRS-
umferðina með Vodafone live en
hún gerir símnotendum kleift að
skoða margmiðlunarefni á netinu.
„Það þýðir að ekki þarf að hafa
áhyggjur af því að fá óþægilega
bakreikninga fyrir notkun á Voda-
fone live. Öll notkun er gjaldfærð
annað hvort sem einingar eins og
leikir eða sem áskrift og má nefna
fótboltafréttir sem dæmi. Greitt
er fyrir eitt stykki eða ótakmark-
aðan aðgang í ákveðinn tíma,“ út-
skýrir Elva Guðrún.
Vodafone live styður öll nýj-
ustu símtækin á markaðinum
óháð framleiðanda þeirra. Þar
komast viðskiptavinir á netið
og hafa aðgang að afþreyingu
og upplýsingum. Þar á meðal
er fjöldi Java-leikja í boði.
„Yfirleitt eru fáir leikir fáan-
legir fyrir allra nýjustu símana,
þar sem tíma tekur að þróa þá,
en þeir bætast þó jafnóðum við,“
segir Elva.
Í símum sem styðja Vodafone
live er einnig hægt að vafra um
nýju heimasíðuna og skoða lýs-
ingar og skjámyndir fyrir leiki
sem eru í boði. „Eins og þegar
tónlist er keypt í gegnum sím-
ann er hægt að senda WAP-push
hlekk í símann með SMS til að
kaupa leik og sækja,“ útskýrir
Elva og nefnir þá leiki sem njóta
hvað mestra vinsælda um þess-
ar mundir. „Það eru samstæðu-
leikurinn Slide-a-Lama Deluxe,
kappakstursleikurinn The Fast
and the Furious 4 3D og kapall-
inn Café Solitaire.“
- ve
Heilabrot, þrautir og hraðir leikir
Elva Guðrún Guðjónsdóttir, vörustjóri Vodafone, segir sex leikjaflokka í boði. Flestir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Samstæðuleikurinn „Slide-a-Lama
Deluxe“ er vinsælasti farsímaleikurinn
hjá Vodafone um þessar mundir.
Kappakstursleikurinn „The Fast and the
Furious 4 3D“ er í öðru sæti á lista Voda-
fone yfir vinsælustu farsímaleikina.