Tíminn - 11.10.1981, Side 16

Tíminn - 11.10.1981, Side 16
16 Sunnudagur 11. október 1981 Sunnudagur 11. október 1981 17 * + Atta ar frá oktober-stríði Araba og Israela. Fyrrverandi hermaður skrifar Arie Liebermann fæddist i Tékkóslóvakiu en fluttist siðar til ísraels. Hann barðist i sex daga striðinu þegar ísraelar hertóku Gólanhæðir og Sínai-skaga og er strið braust út að nýju i október 1973 var hann liðsmaður i varaliðinu. Það eru nú átta ár frá þvi þetta strið hófst. Arie Liebermann er nú búsettur á íslandi, á Grundar- firði, og i eftirf arandi grein segir hann frá þátttöku sinni i þessu striði sem opinberlega heitir Yom Kippur stríðið en er, meðal hermannanna sem háðu það, aðeins nefnt „Hehdal stríðið” — „strið svikanna...” Aður en þif hnigur, stjaruau mínsmáa, bi'ddu andartak, aðeins andartak Leyfðu mtír að segja |lokkur orft engiu vísdómsorð, eu heldur ekki fávisleg: Hættið þessu, HÆTTIÐ ÞESSU! Ég starði á þessi orð sem skrifuð voru með joði á vegg i herteknu egypsku virki. Virkiö stóð á brenndum kornakri i út- jaðri Súez-borgar, þaö var farið að rökkva og ég reyndi að sjá fyrir mér hermanninn sem skrif- aði þessi orö. Mér fannst ég þekkja hann mjög vel þó senni- lega hafi ég aldrei séö hann hvað þá meira. Siðasta lina þessa litla ljóös var skrifuð I algerri örvænt- ingu. H versu oft undanfamar vik- ur haföi ég sjálfur ekki hvislaö þessa ósk að þrumuveörinu um- hverfis mig? Og ætli hafi ekki margir hermannanna i þessu djöfuls striöi gert slikt hið sama? Nú, er striðinu var að ljúka, höfðu þessi örvæntingarfullu orð mikil áhrif á mig. Skyndilega stökk ég á fætur, hljóp út úr virk- inu og leit i kringum mig. Ég sá bláan himininn fyrir ofan mig, ég sá sólina, ég sá fuglana fljiiga, og já, ég sá lifið. Ég sá það meö mln- um eigin augum, ég fann fyrir þvi. Ég fylltist hamingju. Ham- ingju eins og barn sem finnur aft- ur glatað leikfang. Ég fór að rumska af margra vikna svefni ég fór aö lifna við eftir að striðið hafði breytt mér i lifandi dauðan. Þaö var eins og að vakna af mar- tröð. Höfgöin en slátrunin sem ég hafði upplifaö sat enn eftir i huga mér. Það er svo að enn þann dag er mér ómögulegt aö átta m ig á þvi 4hvaða dag, eða hvaða nótt, til- teknir atburöir geröust, vegna þess að ég átti ekki eina einustu stund aflögu til að skipa hugsun- um mínum niöur i rökrétt sam- hengi. Það var heldur varla timi til að hugsa yfirleitt og flestir þeirra sem leyfðu sér þann mun- að eru nú dánir. Hugsunin er hæg- ari — miklu hægari — en þau við- brögð semreka manninn áfram á hættutimum. Þeim viöbrögðum á ég að þakka aö ég komst li'fs af eftirmargar vikur iþessu helviti. Hugsuninni á ég að þakka að ég er á lifi enn i dag. Dauðinn heimsækir aðeins hina sigruðu Meöan á ,,sex daga striöinu” stóð i júni 1967 sá ég hermenn ó- vinanna deyja hræðilegum dauð- daga. Algerlega magnþrota Egyptar lágu hjálparlausir á brennandi heitri Sinai-eyðimörk- inni og formæltu af veikum mætti steikjandi sólinni á heiðum himn- inum. Þaö var þorstinn sem drap þá en ekki viö, Israelar. ,,Moye! Moye! Moye!” örvæntingarfull bón Arabanna um vatn slapp naumlega gegnum blæðandi, skorpnar varir þeirra. Hitasjúk augu þessara deyjandi Egypta bræddu hjarta jafnvel harðsvir- aðasta hermanns. Og þvi var það að við — óvinir þeirra — urðum þegar á reyndi frelsarar þeirra, englar i rykugum grænum ein- kennisbúningum sem birtust allt i einu undan næsta runna og færðu þeim lifselexirinn — vatn. Þó dauðinn hafi veriö alls staðar I kringum okkur þá kynntumst við honum ekki sjálfir þvi dauðinn heimsækir aðeins hina sigruðu. En dnn daginn verða sigurvegar- arnir sigraðir. 1 október áriö 1973 birtist dauð- inn aftur á sandöldum Sinai'-eyði- merkur. Að þessu sinni vorum við sigraðir og dauðinn hlifði okkur ekki. Og dauöinn var skjótur. Nú var engum hliftþvi dauöinn hafði breytt um baráttuaðferð. Ekki lengur hægur dauðdagi ekki leng- ur freisandi englar með vatn, ekki lengur miskunn. Þvi' vopn dauöans var ekki lengur sólin, heldur ávextir mannlegrar eyði- leggingarhvatar: Eldflaugar, sprengikúlur, þrýstiloftsvélar. Ég jók eldsneytsigjöfina, reyndi aö kreista út úr vélinni all- an þann kraft sem þar var að fá. Hún var á síöasta snúningiog það var allt annað en auövelt verk aö stjórna þessu skrapatóli sem gert var til bardaga i siðari heims- styrjöld, en hafði nú verið breytt i sjúkrabifreið. Allt i þessum þrjá- tiu ára gamla bryndreka, streitt- istámótimér: stýriö skókst tilog frá, það hrikti óhugnanlega i gir- kassanum og heila draslið virtist að þvi komið aö hrynja. Ég var örþreyttur. Þaö var komið á þriðja sólarhring siðan ég hóf þátttöku i þessu djöfuls stríði og á fjórða sólaéhring siðan ég hafði fest blund siðast. Það voru sex dagar siðan ég var kall- aður út og á þessum sex dögum hafði ég aöeins étið um það bil tuttugu stykki af gömlu og hörðu beinakexi sem útdeiltvar tilokk- ar á morgnana. Hreyfingar min- ar voru vtílrænar og mtír fannst ég ekki vera annað en hluti af risastórri vélinni sem hélt sjálf- krafa áfram. ■ t þessum brynvagni háði Arie Liebermann striðið — brjálæðislegt, miskunnarlaust strlðið. Hann þurfti ekki að segja meira. Ég vissi hvað hann var að reyna að segja. Við vissum það allir. Flestir skriðdrekarnir sem sendir voru á vigvöllinn voru án nauðsynlegs búnaðar, þar á með- al kröftugrar vélbyssu og gátu þvi ekki varið sig gegn fótgöngulið- unum sem unnu á þeim með ný- tisku sovéskum vopnum, rakett- um sem bornar voru á öxlinni. Egypsku hermennirnir laumuð- ust svo nálægt israelsku skrið- drekunum að stóru fallbyssumar náðu ekki lengur til þeirra og það- an gátu þeir i ró og nasði beitt rak- ettum sinum, vegna þess að skriödrekarnir höfðu engar vél- byssur. „Er þetta raunverulegt?” Læknirinn beygði sig yfir móð- ursjúkan sjúklinginn og gaf hon- um enn einn skammt af morfini. Nokkru siðar náöum við til her- stöðvarinnar sem orðið hafði fyrir árás nokkrum minútum fyrr. í stöðinni var enn allt i ó- reiðu eftir árásina hermennirnir hlupu fram og aftur æpandi nokkrir skriðdrekar loguðu og hvergi var neina reglu aðsjá. Ég lét það ekki á mig fá en stefndi beint á ákvörðunarstað. Sjúkraskýlið varstórt tjald sem falið var ofan i gjötu og breitt yfir með dularmáluðu neti. i tjaldinu stóðu sjúkrabörur i löngum röð- um meðan hinir særðu biðu þess að þyrlur kæmu að ná i þá. Við hliö flestra þeirra hékk flaska með blóðvökva. Arásin virtist hafa haft mest áhrif einmitt hér. A hverri stundu var komið með fjölmarga særða til viðbótar, sumir voru bornir inn á börum, aðra báru félagar þeirra á öxlum sér, einstaka komu með bilum. Þar er ekki til það sár eða sú lemstrun sem ekki mátti sjá i þessu tjaidi. Ungur hermaður sat á jörðinni nálægt innganginum i tjaldiö. Hann virtist hafa gleymst i hamaganginum og myrkrinu. Hann kallaði á mig þegar ég var á leiðinni út aftur, i átt aö brynd- rekanum minum. Hann bað mig aö hjálpa sér á fætur en fætur hans skulfu svo mikiö að hann gat varla staðið. Ofurhægt nálguð- umst viö ljósræmuna sem barst út úr tjaldinu. Hann nam staðar Báðir aðilar á höttunnm eftir fjöldamorði Ég þurfti ekki spegil til að vita hvernigég væri útlitandi. Það var nóg að gjóta augunum á unga lækninn eða sjúkraliöann sem deildu örlögum með mér i þessu helvfti. Þeir voru vafðir inn i — fremur en að þeir hafi gengið i — rifna einkennisbúninga sem voru útataöir I svita, blóði, sóti og ryki sem þomaði utan á þeim og olli ó- bærilegum kláða. Entíg hafði ekki miklar áhyggj- ur af þvi. Aftur á móti langaði mig svo mikið i sigarettu að tíg var að deyja. Ég hefði gefið heil- an fjársjóð fyrir eina sigarettu en iþessu striði voru engirf jársjóðir að gefa og engar sigarettur að fá. AUt sem ég haföi var svefnþung- inn sem seig sifellt á mig, þetta vtílahræ og svoábyrgöina á þviað koma þessum þremur brenndu og limlestu vesalingum sem lágu á börum aftan i bryndrekanum undir mannahendur áður en dauðinn hrifsaði þá til sin. Þaö var nótt en ég átti ekki I neinum erfiöleikum með að ská- skjóta drekanum milli kjarrrunn- anna og gapandi sprengjugig- anna vegna þess að svæöiö var jafnbjart og aö degi til. Tugir ljósblysa i fallhiifum sveifluðust rólega niður úr himninum og gerðu óvininum kleift að miða enn betur á okkur. Ég vissi að einhvers staðar langt i burtu var óvinur sem fylgdist með mér en mér var sama. Hann myndi ekki eyða sprengikúlu á þetta óhrjá- lega skotmark. I þessari sláturtið hafði hvorug hlið áhuga á að gleðja dauðann með lifum ein- stakra manna. Báðir voru á hött- unum eftir fjöldamorði, vildu drepa tugi i einu eða fleiri. Ógnvekjandi þögnin umhverfis okkur var öðru hvoru rofin af sprengingum i fjarska, vélar- hljóði úr vel földum skriðdreka eða geltii sjálfvirkri vélbyssu. Og veikum stunum frá hinum særöu fyrir aftan mig. Læknirinn og sjúkraliöinn reyndu allt sem þeir gátu til aö bjarga lifi þeirra og hugrekki þeirra gerðimeira en að bæta upp skort á tækjum og kunn- áttu. Þegar nauösyn krafði hik- uðu þeir ekki við að framkvæma flókna uppskurði þarna i hrikt- andi bryndrekanum. Þeir gerðu sitt af hverju sem almennter tai- ið annað hvort ómögulegt eða þá geöveikislegt. Rignir eldi og brennisteini Ég var um það bil aðná á á- kvörðunarstað þegar tók aftur að rigna eldi og brennisteini. Sprengikúlunum var miðað á her- stöð sem haföi verið hróflað upp I flýtiog umkringd skriðdrekum og fallbyssum, en sumar kúlurnar misstu marks og sprungu svo ná- lægt okkur að tíg fann lyktina af gastegundunum sem losnuðu þegar þær sprungu. Grænir bloss- arnir og skerandi hljóðin mynd- uöu svo mikin þrýsting að ihvert sinn sem sprengja sprakk nálægt okkur kastaðist bryndrekinn til ogfrá eins og leikfang. Sandurinn þyrlaöist upp, settist i augu min og smeygði sér niöur i lungun. Nokkrar sprengjufli'sar hittu bryndrekann og ærandi iskrið geröi mig dauöhræddan. Ég ók farartækinu bak viö nógu háa sandöldu til að skýla okkur fyrir óvinunum og beiö þar til árásinni slotaöi. Sennilega stóö árásin að- eins i nokkrar sekúndur, i allra mesta lagi I eina minútu, en hver sekúnda var á viö heila öld. Einn hinna særðu vaknaði úr móki sinu. Hann skalf frá hvirfli til ilja og æpti af kvölum. Hljóðin sem komu úr barka hans voru ó- skýr I fyrstu, einhvers konar gól þrungiö ótta og reiöi og sársauka, en siöan mátti greina orðaskil: „Djöfulsins Dayan, helvitis Golda.... Hafði ekki einu sinni vélbyssu... Gat ekkert gert...” ■ Nálægt Suez-skuröi. Egyptar leyndust á bak viö hæöina, handan árinnar. Þær sjást ekki á myndinni en i loftinu eru áreiöanlega fjölmargar byssukúlur. eitt augnablik og leit á sundur- rifna öxl sina, það var undrun og vantrú i svip hans. Siðan sneri hann sér að mér og sagði skjálf- andi röddu: „Heyrðu, þú. Held- urðu að þetta sé allt saman raun- verulegt? Ég meina Allt þetta?” 1 langan tima hef ég reynt aö finna svar við þessari spurningu. Mérhefur ekki tekist það ennþá... Viðbjóðsleg fegurð eldflauganna Stundum, þá sjaldan mér gafst tóm til að fylgjast með striðinu Ur öruggu fylgsni, þá fyllti það mig undrun og hryllingi hversu við- bjóðslega fagurt það var að nóttu til. Þetta var litriksýning i tilefni þessað djöfullinn hafði unnið sig- ur yfir mönnunum. Katyuska- raketturnar flugu tugum saman i einuog dönsuðu tryllasta elddans sem dæmi eru um. Þærlentu ábakka Súez-skurðar og lýstu upp það sem annars var huliö myrkri. Sprengingarnar blossuðu upp eitt sekúndubrot og ég sá menn, skriðdreka, flugvél- ar, eins og frosin i bjarmanum. Og þegar við bættist spegilslétt yfirborð skuröarins minnti þessi sjón ekki á neitt annað en litljós- myndir sem við litum á eitt ein- asta ugnablik.nógtil að litadýröin festist okkur i minni en ekki nóg til að við greinum það sem mynd- in er af. Svo flugu skinandi sprengikúlur rétt yfir höfði manns, þær komu úr báðum átt- um og stundum varð ekki betur séð en þær myndu rekast á og springa beint yfir manni. Þetta var eins og að horfa á tennisleik og vera staddur undir netinu. Oðru hvoru hófu glitrandi loft- varnaflaugar sig upp frá jörðinni og eltu ósýnilegar þotur i kröpp- um dansi um himinhvolfið. Oftast misstu þær marks og brotlentu á jöröinni meö ægilegum hvelli enþaö kom fyrir að þær hæfðu og þá sá maður logana læsa sig eftir ósýnilegri flugvélinni uns hún var eins og halastjarna á braut um sólu, siðan lækkaði hún flugið, steyptist til jarðar og þaö var eins og eldgos væri aö hefjast: eld- tungur og neistar þeyttust hátt i loft upp og sandöldurnar sýndust brenna. Ahrifarikasta tólið i þessu galleri djöfulsins var samt sovéska Sam-6 eldflaugin — risa- stórt, fljúgandi skrimsli sem skaust upp úr jörðinni og hitti með óhugnanlegri nákvæmni skotmark sitt. Maður greip and- ann á lofti þegar þessi tröllauknu loftskip, hlaðin mörgum tonnum af bráðdrepandi sprengiefni, hófu sig til fhigs. Eldflaugar sigldu tignarlega gegnum myrkrið, svo hægt að ég hélt stundum að þær stæðu kyrrar i' loftinu. Umhverfis þær voru óteljandi ljóstaumar, það var skothriðin úr þungum loftvamarbyssum á jöröu niðri sem reyndu aö hindra skrimsliö i að ná marki sinu. En það tókst aldrei að skjóta þær niður og i hvert sinn hittu þær skotmarkið, þeyttu logandi málmflisum, sundurtættum mannslikömum og hundruðum kilóa af jarövegi mörg hundruð metra i burtu. Þetta var reglulega fallegt. Fallegt ef maöur gleymdi þvi að i för með skrímslinu var þjáning, sársauki og dauði. Golda Meir og Dayan vissu fyrirfram um árásina! Við — þeir dauðlegu menn sem böröumst i fremstu viglinu — gáf- um þessu striöi okkar eigið nafn. Nafn sem gaf til kynna allar þær ónauðsynlegu þjáningar sem þvi fylgdu og reiði okkar i' garð stjómarinnar sem átti sök á þvi. Viö köllum þetta strið „Mehdal striðið”— „strið svikanna”. Það var óheiðarleg rikisstjórn Goldu Meir, forsætisráðherra, og Moshe Dayans, varnarmálaráöherra, sem — til þess að fela sekt sina og mýkja hjörtu almenningsálitsins — nefndi þetta strið „Yom Kippur striðið” eftir hinum heilaga sorgardegi sem Egyptar og Sýr- lendingar notuðu til fyrstu árásarinnar.Nei! Viðháöum ekki það strið. Þau bæði — Golda og Dyan — vissu fyrirfram um árásina. Skýrslur frá bandarisku leyni- þjónustunni C.I.A. sem vöruðu viö miklum herflutningum viö landamærin og hugsanlegri skyndiárás i framtiðinni höfðu verið kynntar fyrir Meir og Dayan persónulega af bandarisk- um leyniþjónustumönnum, einni viku áður en árás Arabarikjanna hófst. En i' staö þess að Meir og Dayan byggjust til bardaga þá gerðu þau akkúrat það þveröfuga. Blaðagreinar sem vöruðu við árásinni voru klipptar út úr blöö- um af ritskoöurum Dayans rétt áður en árásin hófst. Meirihluti hersins var sendur i leyfi á Yom Kippur hátiöinni og varnirnar voru mun veikari en venjulega. Hinni yfirvofandi áraá var haldið leyndri fyrir i'sraelsku þjóðinni til þess eins að pólitikusarnir gætu sagt: ,,Sjáið,hið saklausa tsrael verður fyrir ruddalegri áraá óvina sinna.” Skömmu eftir aö árásin hófst voru flest landamæravirkja ísraels i höndum óvinanna. Her- mennirnir sem vörðu þau höfðu verið drepnir eða teknir höndum. Sókn óvinanna gekk snuröulaust. Og er varaliössveitirnar — sem ég tilheyrði — voru kallaðar út beið okkar enn eitt áfallið. Birgðarstöðvar hersins höföu veriö tæmdar. Nýtfsku vopn voru send til hersveita Idi Amis Dada I Uganda en við máttum láta okkur nægja útelta tékkneska riffla úr siðari heimsstyrjöld. Við klædd- umst rifnum egypskum ein- kennisbúningum sem teknir höfðu verið herfangi i ,,sex daga striðinu”. Seinna fékk ég vél- byssu en hana tók ég af særðum hermanni sem var á leið heim. Dýrkeyptum sigri kastað i ystu myrkur En þrátt fyrir allt — þrátt fyrir ófullnægjandi búnaö, ófullnægj- andi vopn, ófullnægjandi mat og þrátt fyrir þjáningar okkar og ósigra i upphafi striðsins — þá gerðum viö hiö ómögulega. Viö stöövuöum betur útbúiö og fjöl- mennara óvinalið. Okkur tókst meira aö segja aö brjótast gegn-„ um linurhans og snúa vörn isókn. Við náðum öllum þriöja her Egypta. Við komumst yfir Suez- skurðinn og hertókum egypskar borgir. A hinum vigstöövunum áttum við ekki langt ófarið til Damaskus. Undir stjórn hins frá- bæra hershöfðinga Ariel Sharon stóöum viö að lokum uppi sem sigurvegarar. Sérlegir skjólstæð- ingar dauöans. Viö færðum hern- um stolt hans aftur. Við guldum þaö stolt dýru verði en viö gerð- um þaö samt. A aðeins örfáum vikum. A örfáum vikum blóös, elds og dauöa. Og stuttu siöar var hinum dýr- keypta sigri okkar ýtt til hliöar, fleygt út i ystu myrkur af banda- ridium og Isrelskum stjórnmála- mönnum. Landsvæðunum sem við hertókum var skilaö til Egyptalands og Sýrlands tveimur mánuöum siðar. ijþýddi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.