Tíminn - 11.10.1981, Page 22

Tíminn - 11.10.1981, Page 22
Jarðarf ararmórall — Á tónleikum Fræbbblanna á Borginni Ekki er hægt að segja að þétt- setinn hafi verið bekkurinn á Hótel Borg s.l. fimmtudagskvöld er Fræbbblarnir hófu þar konsert sinn og þeir sem á annað borð voru mættir virtust ekki hafa mikinn áhuga á tónlistinni. Fræbbblarnir hófu konsertinn á frekar þungu og drungalegu lagi sem virtist vera fyrirboði kvölds- ins. Þeir fóru þó fljótlega af þeim bömmer og á eftir fylgdu nokkur hrá og hröð „Fræbbblarokks- lög”,en eftir þvi semlengra leið á flutninginn þvi ómarkvissari varð leikur Fræbbblana. Allir meðlimir hljómsveitar- innar voru mjög taugastrekktir og gitarleikarinn eins og hengdur upp á þráð en ástæðan fyrir þessu frétti maður siöar var að þeir tóku konsertinn upp á band. Af þessum sökum var aðeins eitt lagiö fyrir hlé flutt á nokkuð eðli- legan hátt en það var gamla Fræbbbla-slagarinn „t iiótt” Eftir rúmlega hálftima leik tóku Fræbblarnir hlé, til aö lag- færa græjurnar sem ekki virkuðu rétt og væntanlega til að koma þessu giggi sinu saman og á rétt- ar brautir. ■ Ekki var —FRI hrifinn af tónleikum Fræbbblanna á Borginni. Þó segir hann að Eyjólfur hafi hresst eftir þvi sem á leið. Varla var hægt að sjá viðbrögð Fræbbblanna fyrir hléið og einn konsertsins á nákvæman hátt frá áheyrendum við leik gestanna lýsti þeim hluta með þvíað segja. „Þetta er meiri djöfulsins jarðarfararmórallinn hérna”. Diskóteks þáttur 1 hléinu tók diskótekið viö leikn- um i' smástund og fórst það væg- ast sagt hörmulega Ur hendi. Af u.þ.b. tiu lögum sem leikin voru í hléinu var aðeins eitt af viti en það var lag Dead Kennedys „California uber alles”. Er ég segi „af viti” þá á ég við miðað viö að þetta var pönk-konsert. Lifnað úr dáinu Eftir hlé lifnaði aðeins yfir áheyrendum enda höfðu Fræbbblarnir þá tekið sig saman i andlitinu. Flutningurinn varð allur markvissari og þéttari og áheyrendur betur með á nótun- um. Mikil keyrsla var hjá Fræbbblunum eftir hléið og það kom fyrir að þeim tækist að skafa eyrnamerginn úr eyrum áheyr- enda. t lokin tóku þeir aftur lagið „1 nótt” og nú af meiri krafti og tilfinningu þannig að það varð hápunktur kvöldsins. Þeyr: Iður til fóta „Það er engin leið, engin leiö út, úr þessu rassagati,” segir hljómsveitin Þeyr á nýjustu plötu sinni, ,,Iður til fóta” og það má vel vera rétt hjá þeim en meðan dvelur þar getur maður létt á „fýlunni” með þvi að hlusta á þá þvi platan er þaö langbesta sem þeir hafa sent frá sér og ein sú besta plata sem hér hefúr komið út á árinu. Plötuna, sem er 10 tommur, prýöa fjögur lög, Bás 12, Magga- sýn sem tilvitnunin er Ur, Te- drukkinn og Ariareggea. Hún er rökrétt framhald af fyrri plötum hljómsveitarinnar, „Þagaö i hel” og „Otfrymi”, en með þessum þremur plötum hefur hljömsveit- in stöðugt þróast fram á við. Hljóöfæraleikurinn er aöals- merki sveitarinnar, söngurinn situr nokkuö á hakanum og er meira notaður sem aukahljóðfæri en til að koma einh verri sérstakri merkingu til skila. Söngurinn nýt- ur si'n þó nokkuð vel á tveimur fyrstu lögunum, Bás 12 og Maggasýn, en hljóðfærin bera hin tvö seinni algerlega uppi. Þéttur leikur einkennir þrjú fyrstu lögin og er sérstaklega áberandi þáttur bassans og gitar- leiksins f þeim, fjórða lagiö, Aria- reggae, er aftur á móti rólegra lag meö hreinum og tæum tónum, og gitarleikurinn þar léttur og leikandi. FRI Þeyr: Brennunjálssaga Kosmóbiólógískar li'fmögnun- arbylgjur einkenna tónlistina sem Þeyr flutti undir sýningu á myndinni Brennunjálssaga. Erfitt er að imynda sér hvernig tónlistin hefur falliðað myndinni, þar sem ég sá hana þvi miður ekki, en maður hefur á tilfinning- unni að tónlistin gæti frekar smollið að einhverri frumskógar- mynd, a la Tarzan, þar sem Dinky the Chimp væri við stjórn- völinn. Tónlistin er mjög „frikuð” og reynt er m eðal annars a ð ná fram áhrifum sem veðurhljóðum ef grannt er skoöað, en á heildina litið getur tónlistin tæplega staðið sjálfstæð enda gerð með það fyrir augum að flytja undir kvikmynd. Hægt er að fá spólu með bæði „Iður til föta” og „Brennunjáls- sögu”, en spólan hefur þann kost að önnur hlið hennar er algerlega auð og getur maður þvi notað hana að vild. Þó hef ég grun um að Þeyr hafi sett efni á þessu hlið með „Sctiabin” tæki Guðlaugs en það vinnur sem kunnugt er alger- lega yfirsviði mannlegrar heyrn- ar. — FRI Debbie Harry: Koo Koo Ætli nafniöá plötunnisegi ekki jafn mikiö og skifan eins og hiin leggur sig. Þ.e.a.s. akkúrat dcki neitt. Af hverju er verið aö gefa Ut svona plötur. Mér finnst hún leiðinleg, andlaus, niðurdrepandi, vélræn. Að visu var ég aldrei neinn sérstakur áhangandi Blondie, en tónlist þeirra höfbaði þó sæmilega til fótanna og var melódisk eftir þvi sem gengur. Glaölegur flutningur vó upp á móti þvi sem skorti á i tónsmiöum og textagerð. En þegar söngkon- an, Debbie Harry (ég get fallist á að hún stendur i stykkinu sem kyntákn) ræðst I að gera plötu upp á eign spýtur þarf hún endi- lega að komast i bland við tröllin — þáNileRogers og Bernard Ed- wards, hverra sérgrein er að „framleiða ” metsöluplötur fyrir aflóga „listamenn”. Og gengur vist meira en bærilega, a.m.k. i diskókreðsum. Þvi var vart Við öðru aö búast en að allur flutn- ingur á þessari plötu yrði hinn vandaðasti, hver nóta og hljómur á réttum stað og stund. En hand- bragðið megnar ekki að breiða yfirtómahljóðiö og náttúruleysið, það er eins og áhuginn sé i lág- marki á öllu öðru en að heyra dollara klingja. Aukinheldur er umslagið miður smekklegt, fóld- át mynd i Playboy stil af Debbie Harry hefði verið til meiri sóma. Segir Denni pis, bróðir minn. Óefað á þessi plata sér þó ein- hvern visan hlustendaskara eins og flest annaö. Bennipis. heldur Jakob ótrauður áfram og hefur nú stofnað svokallaða „Fúturista-hljómsveit” ásamt Alan nokkrum Howarth — hver sem þaö nú er. Þeir gáfu fyrir stuttu Ut plötu. „Fúturista-hljómsveitir” eru svo kallaðar vegna þess að tón- listin erbyggð upp i kringum raf- eindatæki og tölvur, hefðbundin hljóðfæri eru litt eða ekki notuð. Or öllum þessum tólum kemur nýstárlegur hljómur og ekki laust við að hann sé ögn kuldalegur. En sumum fellur þetta vel. Frægasta „fútúrista-hljómsveitin er ábyggilega þýski flokkurinn „Kraftwerk”, hann hefur náð íengst i að skapa raunverulega og bitastæða tónlist úr tölvunum. Annars munu þessar hljómsveitir vera hver annarri likar. Og nú þegar Jakob Magnússon — áður Frimann Flugkappi, Jobbi Maggadon, Jack Magnet etc. — leggur rafurmagnið fyrir sig, hver er þá útkoman? JU, Jakob virðist ekki hafa mikið til málanna að leggja. Hann, og þessi Alan, kunna vissulega á tækin sin en þeim tekst ekki að skapa alvöru, hvað þá skemmti- lega tónlist. Lögin byggjast upp á fjarska ‘keimlikum töktum, til- finning er varla fyrir hendi. Ólfkt til að mynda „Kraftwerk”. Aftur á móti er platan sosum áhuga- verð, þetta er vist það fyrsta sem Islendingurgerir i tölvutónlist, og það er engin ástæða til að æsa sig yfir henni. Það gæti nú einmitt verið lóðið. En Jakob heldur áreiðanlega áfram. Og kannski fær hann til- finningu fyrir tækjum sinúm. Box Byrjendaplata Ur Kefla- vikinni, sonur RUnars JUlius- sonar er farinn að leika inn á hljómplötur! (og hárunum farið að fækka á höfði mér). Frumraun „Box)) er svokölluð stór litil plata, sem skal snUið á 45 r.p.m. HUn inniheldur fimm lög, öll með nokkrum byrjendabrag, en sem gefa þó nokkur fyrirheit um aö þessir strákar getið haldið uppi merki Suðurnesjanna i fslensku poppi. Einkum lögin Box, sem er eingöngu spilaö, og London sem er samið við ljóð Nordals Grieg i þýðingu Magnúsar Asgeirssonar. Vitaskuld er þetta alltmeö nokkr- um byrjendabrag, hljóðfæraleik- ur og tónsmiðar, en þaö er gott til þess að hugsa að ungar og óreyndar hljómsveitir geti spreytt sig á plasti. The Magnetics: \ Historical Glimpse of the Future Oðru visi mér áður brá. f eina tið var Jakob Magnússon óska- barn þjóðarinnar, ljúflingur fjöl- miðlanna og á góðri leiö með að slá i gegn i Ameriku. Nú hefur sljákkað i þjóöinni, fjölmiðlarnir tala með fyrirlitningu um Garöar Hólm og ekki fer sögum af gegn- umbroti vestra. Hins vegar plötur — plötur — plötur — plötur — plötur — plötur — plötur

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.