Tíminn - 11.10.1981, Side 25

Tíminn - 11.10.1981, Side 25
Sunnudagur 11. október 1981 25 Karl Dietrich Brancher: The German Dictatorship. Penguin 1980. ■ Hér er vissulega engin skemmtilesning, bæði liggur það í eðli efnisins og því hvernig á efninu er tekið. „Þýska haröst jórnin” er geysi viðamikil félagsfræöi-söguleg úttekt á uppruna nasismans, þeim jarðvegi sem gerði Hitl- er og nótum hans kleift að komast til valda. Uppbygg- ingu hins nasiska fyrirkomu- lags, hvernig nasistum tókst aö rfkja svo lengi og andstöðu- laust sem raunin varð. Síðan dregur höfundurinn lærdóma af harðstjórn nasista og gerir samanburö við önnur ein- ræðiskerfi tuttugustu aldar- innar. M.a. er spurt hvort nasisminn sér sér — þýskt fyrirbæri ellegar afkvæmi þjóðfélagsþróunar i Evrópu. Brachner tekur mjög smá- smyglislega á efninu, hann fellur ekki fyrir einföldum Ut- listunum eins og svo margir sem hafa fjallað um þetta efni, hann gengur Ut frá þvi aö stjórnmálaþróun sé margþætt ferli kveðjuverkana. Bókin er því óhjákvæmilega stór i sniö- um. Höfundurinn, - Karl Dietrich Brachner, er prófessor i stjórnmálavísind- um og samtimasögu við há- skólann i Bonn. TIIE . EXK'ITBKEKS Norman Mailer: The Executioner’s Song. Arrow 1980. ■ Hér er ein i lengra laginu, eins og kannski var við aö bU- ast Ur þessari átt. Er „Söng- ur böðulsins” kom fyrst út fyrir um tveimur árum vakti hUn griðarlega athygli og var talin eitt af stórvirkjum Mailers. Þetta er sagan af morðingjanum Gary Gilmore frá 9da april 1976 þegar honum er sleppt Ur fangelsi, hafandi dvalið um 18 ár af sfnum 35 i steininum. 9 mánuðum siðar er Gary tekinn af lifi fyrir tvö- falt morð að eigin kröfu, eins og frægt varð. t leiðinni er þetta sagan af fólkinu sem haföi afskipti af Gary og fjöl- miðlunum sem töku á rás eftir honum. Einna handhægast er likast til að flokka bókina sem heimildaskáldsögu, Mailer byggir á skjölum og viðtölum við ættingja og kunninga Garys, en fer dneitanlega býsna skáldlega með. Löng — um 1000 siöur meðlúsaletri, en ótrúlega gripandi og full af innri spennu, manni verður stundum ekki um sel þegar Gery gerist hvað uppstökkast- ur. Meistarastykki i þessari grein, sem oft er kennd viö höfundinn, Mailer sjálfan. f'NOMTHEAU'mOHOr nil'.OCADiOm: CUJO STEPHENKING FIRE- gTAr— Jorge Luis Borges: A Universal History of Infamy. Penguin 1981. ■Jorge Luis Borges — sjón- dapur sjáandi i heimi hug- mynda. Meistari smásögunn- ar og sértæka leikfimiæfinga andans. I formála að þessu kveri sem fyrst kom út i nokk- uö annarri mynd 1935 segir hann að hér séu á feröinni stil- æfingar ungs og feimins manns, sem ekki lagði i að skrifa sögur upp á eigin spýt- ur, en afbakaði þvi og færöi i stilinn það sem aörir höfðu gert. Þetta eru sögukorn um sanna og raunsanna fúl- mennsku, sagðar i kunnuglega samþjöppuðu smásagnaformi Borgesar, þar sem allt hefur sama vægi, jafnt smáir at- burðir sem stórir. Auk þess inniheldur þessi útgáfa fyrstu smásögu Borgesar, „Maður- inn á horninu, og yngri sögu- brot af illmennsku, þar sem Borgesnotar form sem honum er ekki ókunnugt, að leggja sögur sinar i' penna annarra höfunda, raunverulegra og Imyndaðra. Frásagnirnar i þessu skemmtilega kveri visa veginn til fullskapaðs sagna- heims Borgesar, þar sem vandi er að greina hugsunina frá atuburðinum, imyndun frá veruleika þar sem bókin og oröið upphaf og endir alls. Stephen King: Firestarter. Signet 1981. ■Stephan King ku vera kóng- ur hryllingsbókmennta siö- ustu ára upp á siökastiö hefur hann skrifað metsöluhrylling á færibandi, hvern skelfilegri en hinn fyrri — þar á meöal „The Shining”, „Carrie” og „Cujo”. Þessi grein hryllings- bóka, þar sem ósköpin koma innan úr mannssálinni, virðist eiga sér firna mikinn hljdm- grunn á viðburöasnauðri öld tækni og efnishyggju. Nýjasta bók Kings „Firestarter” kem- ur engan veginn á óvart, eins og endranær gerast lygilegir atburðir i ofur venjulegu um- hverfi: Foreldrar Charlie McGee, 8 ára stelpukrakka, hafa veriö viðfangsefni til- rauna sem hafa að augnamiöi að rækta meö þeim sálræna krafta. Þegar dóttirin fæðist kemur i ljós aö hún býr yfir þessum krafti og gott betur. Hvertsemhún ferfylgirhenni dauði og tortiming. Foreldr- arnir reyna að halda henni i skefjum og hamla gegn þvi aö stjórnvöld færi sér stúlkuna i nyt i vafasömum tilgangi. Fyrir þá sem kunna að meta ógnvekjandi eidaleysu finnst enginn betri en Stephan King. ■ Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Bókabúð Máls og menningar. Shaky Stevens fer á kostum á plötunni Shaky. Rokkararnir You Drive Me Crazy og Green Door njóta þrumuvinsælda og nu er Shaky aö bræöa hjörtu ut um allan heim meö ballööunni It’s Raining. Shaky veit vel hvaö hann syngur og ef þú þarft aö hrista upp i sálartötrinu. ættir þu aö fá þér plötuna Shaky. Heildsóludreilmg fttaÍAOf hf Simar 85742 og 85055

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.