Tíminn - 29.11.1981, Síða 8

Tíminn - 29.11.1981, Síða 8
8 Sunnudagur 29. nóvember 1981 SÍMÉIftyf Utgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastióri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjori: Sig- urður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jóns- son. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Páll Mígnússon. Umsjónarmaður Helgar-Timans: lllugi Jökulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrímsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar orn Pétursson (iþróttir), Skafti Jónsson. Utlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Próf- arkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteins- dóttir. Samkeppni síðdegis- blaðanna er lokið ■ Með samruna siðdegisblaðanna aðfaranótt fimmtudagsins er sex ára samkeppni þeirra á milli lokið. Einokun rikir aftur á siðdegismarkaði islenskrar blaðaútgáfu, eins og var fyrir stofnun Dagbiaðsins árið 1975. Orsök þessa skyndilega samruna siðdegisblaðanna er augljóslega fjár- hagslegs eðlis. Rekstur þeirra hefur gengið erfið- lega, eins og flestra dagblaða. Engu að siður munu margir undrast, að eigendur blaðanna skyldu gefast upp á samkeppninni og fallast i faðma eftir sprenginguna miklu þeirra á milli fyrir aðeins sex árum siðan. Sá mikli samdráttur i blaðaútgáfu, sem felst i samruna siðdegisblaðanna, er auðvitað öllum þeim vonbrigði, sem telja sem mesta fjölbreytni i blaðaútgáfu æskilega. Samruninn hefur einnig þegar leitt til fjöldauppsagna á starfsfólki. Á annan tug blaðamanna, og margir aðrir, sem unnið hafa við útgáfu blaðanna, missa nú atvinnu sina. Sú fjölgun, sem varð i islenskri blaða- mannastétt með tilkomu Dagblaðsins, er þannig að mestu fyrir bi. Hið nýja blað verður að sjálf- sögðu mun minna en Visir og Dagblaðið voru sameiginlega áður. Hörð samkeppni siðdegisblaðanna átti mikinn þátt i að gera þau sæmilega frjálslynd hvað efnis- val snerti, þótt þau hafi i leiðurum sifellt tengst nánari böndum við tiltekna arma i Sjálfstæðis- flokknum. Nú er þessi samkeppni úr sögunni og veitir þvi hinu nýja blaði ekkert slikt aðhald. Skortur á samkeppni á siðdegismarkaðinum hlýtur óhjákvæmilega að setja mark sitt á nýja blaðið, sem verður vafalaust i mun rikari mæli blað sjálfstæðismanna en t.d. Dagblaðið var. Aðferðirnar, sem viðhafðar voru við samruna Dagblaðsins og Visis, munu án efa þurrka glýj- una úr augum margra, sem hafa hingað til hald- ið, að það eitt að blöð væru i eigu einstaklinga en ekki flokka gerði þau að einhverju leyti óháð og frjáls eins og það hefur verið kallað. Ritstjórnum dagblaða hefur aldrei i sögu islenskrar blaða- mennsku verið sýnd slik litilsvirðing eins og i þessu tilviki. Eigendur blaðanna sameinuðu þau á einni nóttu, eftir nokkurra daga tveggja manna tal, og tilkynntu blaðamönnunum morguninn eftir, þegar þeir mættu til vinnu, ýmist að þeir væru komnir til starfa á nýju blaði, eða þá að þeir væru reknir! Slik meðferð sýnir auðvitað, að það eru eigendur einkablaðanna, sem ráða þeim að vild sinni. Vinnubrögðin hafa þvi undirstrikað þá staðreynd, að allt hjal um, að slik blöð séu óháð eigendum sinum, er út i hött. Islenski dagblaðaheimurinn er fátækari en áður eftir samruna siðdegisblaðanna. Einkum munu tryggir aðdáendur elsta dagblaðs landsins, Visis, þykja hlutur þess blaðs illilega fyrir borð borinn i nýja blaðinu með Dagblaðsbragðinu. Eina raunverulega samkeppnin i blaðaútgáfu hér á landi verður á milli morgunblaðanna, með Morgunblaðið og Timann i fararbroddi, þvi á sið- degismarkaðinum rikireinokun á ný. —ESJ. menningarmál LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR UNDIR ALMINUM, eftir Eugene O’Neill Þýðing Árni Guðnason 4. sýning Lýsing: Daníel Williamsson. Tónlist: Sigurður Rúnar Jóns- son. Leikmynd og búningar: Steinþór Sigurðsson. Leikstjórn: Hallmar Sigurðsson Ameriska leikritið ■ Ýmsireru þeir, er telja Eugene O’Neill vera eins konar upphafs- mann i bandariskri siðari tima leikritun, og að þegar hann hóf leikjaskrif sin hef jist visst blóma- skeið i leikritun, sem ekki var til áður, þar er fjallað á sérstakan hátt um bandariskt þjóðlif, sem var i mótun. Bandaríkin voru land tækifæranna, og landnemar flykktust þangað. Margir voru i leit að skjótum gróða, en flestir landnemanna urðu þó að vinna hörðum höndum, hvort sem það var nú i dularfullum borgum, eða úti í sveit. Þeir unnu venjuleg störf og eygðu fæstir nein uppgrip GRJÓTBÝLI UNDIR ÁLMI það þekkjum við m.a. af sögum af Vestur-lslendingum. Þessir nýju höfundar unnu siðan Ur sigrum og vonbrigðum hinnar ungu þjóðar, úr draumum hennar og vöku, ást og hatri i nýrri veröld, sem var með allt öðru sniði en hinn gróni heimur i austri. 1 leikskrá segir m.a. þetta um Eugene O’Neill.er siðar hlaut Nóbelsverðlaun og annan frama, er bættist á heimsfrægðina sjálfa: „Höfundur leikritsins i kvöld hefur af mörgum verið talinn mesta leikskáld Bandarikjanna fyrr og siðar. Um slikt má ugg- laust deila lengi, en bandarisk leikritun vakti fyrst verulega athygli, þegar Eugene O’Neill birti fyrstu leikrit sin á árum heimsstyrjaldarinnar fyrri. Með nokkrum sanni má raunar tala um vakningu i bandariskri leik- ritagerð á þessum árum, en þá voru stofnaðir þrir leikflokkar, sem allir störfuðu á áhuga- mannagrundvelli, en þó af mun meiri metnaði en mörg atvinnu- leikhúsiná Broadway. Einn þess- ara hópa, The Provincetown Players, fékk O’Neill til sam- starfs við sig strax á öðru starfs- ári, 1916, og næstu sex árin frum- sýndi leikhópurinn flestöll af fyrstu verkum höfundar. Það var því við frumstæðar aðstæður sem leikrit eins og ÞORSTI (Thirst) og SIGLT TIL CARDIFF (Bound East for Cardiff) voru sýnd. Fyrsta leikrithans af fullrilengd, HANDAN SJÓNDEILDAR- HRINGSINS (Beyond the Hori- zon) var frumsýnt 1920, en fyrir það hlaut hann Pulitzer-verölaun- in sem hann átti reyndar eftir aö fá aftur siöar. Nóbelsverðlaunin hlaut hann svo árið 1936. EugeneO’Neill fæddist 1888 við sjálfa leikhúsgötuna Broadway f. New York. Faðir hans var þekkt- ur og vinsæll leikari, og fyrstu ár ævi sinnar ferðaðist O’Neill um landið ásamt foreldrum sinum og barnfóstru. Móðir hans var illa farin af eiturlyfjaneyslu og faðir hans vansæll þráttfyrir vinsæld- irnar. O’Neill oröaði það svo, aö faðir hans hefði ,,selt sig”, en hann lék hlutverk greiíans af Monte Cristo. árum saman við miklar vinsældir, þó aöhann teldi það standa I vegi fyrir framför- um si'num og listrænum þrœka. Fjölskyldulifi sinu lýsir skáldið á áhrifamikinn og eftirminnilegan hátt i einu þekktasta verki sinu HÚMAR HÆGT AÐ KVELDI (Long Day’s Journey into Night), sem ekki var frumsýnt fyrr en eftir lát höfundar. Undir álminum Undir álminum segir frá lifinu á bóndabæ hjá gömlum harð- stjóra, Ephraim Cabot (Gisli Halldórsson), sem lifað hefur við stöðugan grjótburð og vinnu- þrælkun alla ævi. Hann eignast þrjár konur, þrjá eða fjóra syni, er hann hefur pint ásamt konun- um til verka i grjótburði og ýmsu öðru og þannig hefur hann eignast dágóða bújörð. Að visu kemur það ekki fram, aðhann hafihagn- ast verulega á búi sinu, en jörð hans er þó það eftirsóknarverð, að synirhans biða arfs, biða þess, að hinn gamli harðjaxl og þræl- dómsmaður verði allur, þannig að þeir geti tekið við eigninni. Að vísu kallar margt annað á synina. Gullið i vestri, gullið i Kalifomiu, þar sem gullmolar koma upp Ur plógförunum. Heimilið er iupphafi leiksins án kvenmanns, en Eben (Karl Agúst Ulfsson), yngsti sonurinn sér um matseki i grjótbyrginu. Eldar i bræður sina, og gamla bóndann, föðursinn, sem allir biða eftir að hrökkvi uppaf. Það er hins vegar af þeim gamla að segja, að eitt sólfagurt kveld riður hann burt, og kemur siðan heim nokkru siðar og er þá harðgiftur ungri stúlku, Abbie (Ragnheiður Steindórsdóttir), sem ferekkidulineð að hún hefur gifst þessari grjótjörð eða gaml- ingjanum til að tryggja framtið sina efnalega. Og þá byrja hjólin að snúast. Ekki veit ég hvar þetta verk er sett til borðs þegar verk O’Neills eru sett saman og skoðuð. En á einhvern sérstakan hátt virðist það dæmigert fyrir þann leikhús- heim er það tilheyrir. Ahrifamik- iö leikrit, eða bókmenntaverk um erfiðismenn i nýju og stóru landi, þar sem öllu ægir saman. Álmur Leikfélags Reykjavíkur Leikfélag Reykjavfkur hefur oft áður sýnt verk O’Neills og UNDIR ALMINUM sem er i snjallri þýðingu Arna Guöna- sonar, er likiega sjötta verkefni þess eftir þennan höfund. Þar hafa ýmsir góðir kraftar komiö nærri gegnum árin. Að þessu sinni stýrir Hallmar Sigurðsson verki, en leikmynd er eftir Steinþór Sigurðsson. Undir álminum er dæmigjört textaverk, ef svo má að orði kom- ast. Það gerist með öðrum orðum meira i orðinu en i leikbrögðum. Náttúrunni er lýstmeð orðum. Gullinu i vestri með orðum, fegurö landsins, grjótinu, f jósinu, svinunum og hænsnunum. Um- hverfið er orð og sviðið er aöeins miðja i viðáttu hins mikla lands. Leikmynd Steinþórs Sigurðs- sonar er sérlega hentug. HUn er opin. Hún er partur af þrjátiu ára grjótburði, litlum þægindum og búskap. L ei k s tj ór inn, Hallmar Sigurðsson, vinnur þetta verk býsna vel. Einkum i fyrra hluta sýningarinnar. Orð komast til skila og hófsemi er i hreyfingum. Orð eru undirstrikuð, heimilisli'f- inu i grjótheimum Ephraims Cabot er haldið saman með orð- inu, fyrst og fremst. Nokkuð sígur þó á ógæfuhliðina i siðari atriðum leiksins en þá taka atburðir á sig nýjar, óhugnanlegar myndir. Þá fer nokkuð að bera á ofleik, einkum hjá hinum óvönu. Þessu þyrfti að kippa i liðinn og gæta meiri still- ingar, þvi orðin standa nefnilega þar fyrir sinu lika. Túlkun Gisla Halldórssonar á harðstjóranum Cabot er eftirminnileg og þá ekki siður leikur Ragnheiðar Stein- dórsdóttur i hlutverki ungu kon- unnar Abbie. Ragnheiður hefur fengið mörg hlutverk, fleiri tæki- færi en flestir ungir leikarar, og hún stendur fyrir siriu og vinnur hér enn einn sigur. Góðir þóttu mér þeir Sigurður Karlsson og Jón Hjartarson i hlutverkum eldri bræðranna, þótt Jón sé að vi'su enn dálitið fastur i Ofvitanum, en það er ókostur þess fámennis er við búum við. Karl Agúst úlfsson virðist mér efnilegur leikari, en mætti gæta hófs á vissum stöðum. Hans hlut- verk erþó ef tilvillþaðörðugasta og þyrfti þvi' meiri mótun. Margirfleiri koma þarna fram, i smáum hlutverkum, og i það heila tekiö er þetta ágæt sýning. Svona „vestrar” eru ómissandi á verkefnaskrár leikhúsanna, þótt ekki sé nema ööru hverju. Verk Bandarikjamanna höfða nefnilega með dularfullum hætti til okkar allra, og er þá átt við hina frægu leikjahöfunda þessar- ar aldar, er rita um venjulegt ftílk og baráttu þess við land og sam- félag sem er i mótun. Tilraun og. viðleitni til aö lifa lifinu og borga svo reikninginn i tárum og svita. Jónas Guðmundsson Jónas Guðmundsson skrifar um leiklist

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.