Tíminn - 29.11.1981, Side 13

Tíminn - 29.11.1981, Side 13
Sunnudagur 29. nóvember 1981 skákþáttur slavaskák ® Það er fremur auðvelt að ná valdi á peðastöðum. Undir eins og skákmaður hefur gert það getur hann unnið margar fallegar stöðubaráttuskákir og óefað færist hann upp um einn flokk. Þar nemur hann svo staðar og fær að kenna á þvi! Það eru nefnilega fleiri menn en peð i skákinni. 1 eftirfarandi skák er ósköp auðvelt að skilja að hvitur skyldi vilja leggja undir sig reitinn c4. Það má lika virða það hvernig hann stöðvar peðaframrás svarts á drottningarvæng, enda þótt hann hafi færri peð. Hvitur var sem sé á réttri leið en hann hefði ekki átt að fara á peðaveiðar með drottningunni. Skyndilega sjá- um við að svartur stendur betur og við fylgjumst með fallega útfærðri árás hans. Skákin var tefld á júgó- slavneska meistaramótinu i ár. Stórmeistarinn Vukic hefur hvitt, kollegi hans Velimirovic gerir árásina. Byrjunin heitir nútima Benóni. 1. d4-Rf6 2. c4-e6 3. Rf3-c5 4. d5-exd5 5. cxd5-d6 6. Rc3-g6 7. Bf4-a6 8. a4-Bg7 9. e4-Bg4 10. Be2-0-0 11. Rd2-Bxe2 12. Dxe2- Rh5 13. Be3-Rd7 14. g4-Rhf6 15. h3-b5. Eftir 16. axb5-axb5 17. Hxa8- Dxa8 gefur bæði 18. Dxb5-Hb8 og 18. Rxb5-Dal+ svörtum taktiska möguleika. Hvitur segir þvi neitakk. 16. 0-0-b4 17. Rdl-He8 18. f3- Rl)6 19. Db3-a5 20. Ha2-Rfd7 21. b3-Hc8 22. Hc2-Re5. Svartur stendur enn fyrir sinu varðandi reitinn c4. Nú hefur hið áhættusama peðsrán sem aldrei skyldi verið hafa. 23. Db5?-Hb8 24. Dxa5-Dh4 25. Kh2 25. ...-Rxd5! 26. exd5-Rxg4+ 27. fxg4-Be5 + Nú getur hver maður séð að hvita kónginum er orðið illt. 28. Hf4-Bxf4+ 29. Bxf4- He2+ 30. Kgl-Dxh3 31. Re3- Hxe3 32. Kf2-Hbe8 og hvitur gafst upp. Að sönnu hafði hvitur náð valdi á reitnum c4. En reitirn- ir umhverfis kónginn skipta einnig dálitlu máli. Upp og ofan hjá Gligoric A siðasta ári var júgó- slavneski stórmeistarinn Gligoric sem allir skák- unnendur þekkja svo óánægður með frammistöðu sina að hann bað um að vera tekinn úr júgóslavneska ólympiuliðinu. 1 janúar fannst mér að hann tefldi ljómandi vel i Linares, en að visu stóð hannsig mun betur með hvitu en svörtu! Fyrir gamalreynda skákmenn sem misst hafa nokkuð af fyrri snerpu er miklu auðveldara að stýra skákunum inn i afbrigði sem þeir þekkja út og inn, ef þeir hafa hvitu mennina en þá svörtu. Hér kemur fallegur sigur Gligoric frá júgóslavneska skákmótinu. Það er Kovacevic sem hefur svart. 1. d4-d5 2. c4-e6 3. Rf3-Rf6 4. Rc3-Bb4 Þessistaða getur bæði kom- ið upp eftir drottningarbragð eða Nimzó-indverska vörn. Eftir næsta leik hvits ætti maður að leita i teóriubók um Nimzó-indverjann en ef hvitur hefði leikið Bg5 væri rétt að kynna sér drottningar- bragð. 5. e3-0-0 6. Bd3-dxc4 7. Bxc4- Rc6 Algengara er 7. ...-c5. A sin- um tima lék rússneski stór- meistarinn Ragozin Rc6 mjög oft. 8.0-0-a6 9. h3-h6 10. Hel-Bd6 11. e4-e5 12. Be3-Bd7 13. a3. 1 gamalli skák Kéresar var hérleikiðDc2 en Gligó kýs að halda drottningunni á cl enn um stund. Textaleikurinn er ágætur, hann kemur i veg fyrir b5-b4. Svörtum reynist erfitt að þola spennuna á mið- borðinu. 13. ...-exd4 14. Bxd4! Flestir mundu liklega hafa drepið með riddaranum án þess að hugsa sig um. Mýtan um biskupaparið er þrautseig. En nú veldur hótunin e4-e5 usla i herbúðum svarts. 14. ...-Rxd4 15. Dxd4-b5 16. Ba2-Rh7 17. e5-Be7 18. Hadl- Bc6 19. De3-De8 20. e6! Þetta fripeð verður geysi- sterkt. Svartur má ekki drepa þvi eftir Dxe6+ vinnur hvitur mann. 20. ...-f5 21. Rd5f4 22. Dc3- Bxd5 23. Bxd5-Hd8 24. Bc6-Dh5 25. Hd7!-Hxd7 26. exd7-Bd8 27. He8. Staðan er nú full af pyttum. Ef til dæmis 27. ...-Df7 28. Dc5- Rf6 29. Re5. 27. ...-Rf6 28. Db3 + -Df7 29. Dxf7 + -Kxf7 30. Re5+ og svartur gafst upp. Ef 30. ...-Kg8, þá 31. Rg6 og vinnur mann. Bent Larsen, stórmeistari, skrifar um skák 13 Jóla- getraun Tíminn í samvinnu við Einar Farestveit & Co. h.f efnir til Jólagetraunar fynir lesendur Tímans Vinningunnn er TOSHIBA 619 œhylgjuojh að verðmæti kr. 4.950.- Þú sparar allt áð 75% i rafmagnsnotkun með örbylgju- ofninum, auk timaspamaðar við matreiðsluna og mat- urinn heldur næringargildi sinu. Þú getur notað við matargerðina gler, postulin, plast, pappa og jafnvel pappirsserviettu og losnar þar með við uppþvott á pott- um og pönnum og losnar um leið við matarlykt úr ibúð- inni. Vinningshafi fœr ókeypis kennslu á ofninn hjá matreiðslukennara fyrirtœkisins Getraunin verður i þremur biöðum með nokkm millibili. Það sem þú þarft að gera, er að krossa við eitt af upp- gefnum svörum við spurningu hvers seðils, halda spurningaseðlunum saman og þegar þriðji og siðasti seðillinner kominn, að senda þá alla seðlana til blaðsins merkt Timinn jólagetraun, Siðumúla 15, Reykjavik. Ef þú hefur krossað við rétt svar á öllum seðlunum, hefur þú möguleika á að eignast þennan nytsama ör- bylgjuofn og fá hann heim fyrir jól. Við hvaða götu er fyrirtækið Einar Farestveit & Co. h.f.? Bergstaðastræti Hringbraut Ármúla Nafn: Heimilisfang:

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.