Tíminn - 29.11.1981, Síða 22
Sunnudagur 29. nóvember 1981
Sunnudagur 29, nóvember 1981
Norsk nýbylgja:
The Cut á íslandi
A hvaöa tungumáli tekur
maöur viötal viö hljómsveit sem
skipuö er norsurum, þýskara og
breta? Þessu velti útsendari
Nútimans fyrir sér á leiö sinni til
aö taka viötal viö meölimi norsku
hljómsveitarinnar „The Cut”,
sem hér eru staddir. Þesgar viö
höföum komiö okkur þægilega
fyrir viö borö i Sigtúni, en þar
voru þeir aö undirbúa sina fyrstu
tónleika hér á landi, lá beinast viö
aö spyrja á islensku, þvi hjá
okkur var stödd Elsa nokkur sem
er nokkurskonar framkvæmda-
stjóri heimsóknar The Cut. Von
min um þaö aö hún myndi þýöa
spurningarnar fyrir mig rann út i
sandinn þegar hún haföi lokiö viö
aö kynna okkur, þvi hún stakk af
ásamt öörum gitarleikaranum til
aö redda einhverju fyrir kvöldiö.
Þá var ekki annaö aö gera en
gripa til norskunar. Já, þaö er
hægara sagt en talaö. Brátt gáf-
ust strákarnir upp á tautinu I mér
og viötaliö fór fram á ensku.
Upphafið
Eins og áöur sagöi er The Cut
norsk hljómsveit, þ.e. hún kemur
frá Noregi, en þaö sama er ekki
hægt aö sgja um suma hljóm-
sveitarmeölimina.
Volker Zibell, er þjóöverji,
fæddur og uppalinn i Berlfn. Hann
er upphafsmaöur hljómsveit-
arinnar og tónlistarlegur leiötogi
hennar. Rólegur og yfirvegaöur
náungi. Ekki gott aö átta sig á
persónuleikanum en greinilega
alvörumaöur.
Don Buchanan, er breti. Opinn
og ræöinn. Annar af upphafs-
mönnum hljómsveitarinnar.
Torgrimm Eggen, Atle
Gundersen og Arne Lund eru
norsararnir. Arne er úti búö aö
kaupa skinn á trommururnar
sinar. Torgrim og Atle taka þátt i
viötalinu. Sá fyrrnefndi, eldrauö-
hæröur, er greinilega sá sem
hefur orö fyrir norsurunum.
Hefur ákveönar skoöanir.
Þaö lá beinast viö aö spyrjast
fyrir um upphaf hljómsveitar-
innar til aö koma boltanum af
staö. Volker varö fyrir svörum.
„Um áramótin 1979 — 80 haföi ég
mikinn áhuga á aö stofna hljóm-
sveit, til þess aö spila og vinna
eingöngu i stúdiói. Ég setti mig i
samband viö Don Buchanan og
viö fórum af staö aö leita aö
mönnum. Brátt bættust þeir Tor-
grim og Atle viö. Viö geröum eina
litla plötu I aprll 1980 sem hét
„Four Cuts — Fresh and
Bleeding”. Um þaö leyti sem viö
gáfum plötuna út ákváöum viö aö
veröa alvöruhljomsveit, þ.e. ekki
vinna eingöngu i stúdiói. Viö
fórum þvi af staö meö aö halda
tónleika og viö bættust tveir nýjir
menn þeir Arne Lund og Kikkan
Fossum. En hann (Kikkan) er nú
hættur.”
Og hvernig gekk svo aö koma
sér á framfæri?
„Fyrst til aö byrja meö var þaö
erfitt. En smátt og smátt barst
þaö út aö viö værum ágætis sviös-
band og áhorfendur tóku aö
streyma á tónleikana hjá okkur.”
Af hverju Island?
En hvers vegna kaus hljóm-
sveitin aö koma hingaö til Islands
þar sem þeir eru nær algerlega
óþekktir heldur en aö vera áfram
I Noregi, þar sem dyggur aödá-
endahópur fylgir þeim?
„Þaö er eitt af markmiöum
hlómsveitarinnar aö ná til sem
flestra. Viö setjum okkur þaö tak-
mark aö feröast sem viöast um
veröldina og spila. Viö höfum tvi-
vegis veriö i Sviþjóö og erum
reyndar nýkomnir þaöan. Þaö aö
viö skulum vera vinsælir I Noregi
og Sviþjóö skiptir ekki öllu máli.
Þegar viö förum héöan stefnum
viö aö þvi aö komast til Þýska-
lands, þvi þar er aö koma út litil
plata meö okkur. Viö erum búnir
aö metta markaöinn i Noregi.”
Hvernig tónlist spilar svo „The
Cut”?
„A hana er ekki hægt að setja
neitt merki. Viö reynum aö breyt-
ast og þróast eins mikiö og viö
getum. Við erum ekki að ieita að
réttu „sándi” og halda þvi. Viö
erum allir frekar hrifnir af þvi aö
gera tilraunir meö tónlist. Viö
erum ekki synthesiser hljómsveit
og heldur ekki „rock and roll
band”. Þaö má lýsa þvi sem
melódiskri tilraunamúsik með
þéttum, oftast funky, takti. Viö
spilum rafvædda tónlist ekki raf-
magnaöa.”
Hvaö meö plötur?
„Viö höfum sent frá okkur eina
litla og eina stóra plötu. Stóra
platan er nýkomin út og heitir
„Shadow Talks”. Viö fundum
engan góöan upptökustjóra i
Noregi svo viö fengum John
Leckie sem hefur starfaö meö
hljómsveitum á borð viö Mag-
azine, Public Image, XTC og
Simple Minds, til þess aö aöstoöa
okkur. Samstarfiö viö hann gekk
Laugardagskvöld 28/11
NEFS (m/Egó)
Sunnudagskvöld 29/11
Tónabæ (hin hljóm-
sveitin óþekkt)
Mánudagskvöld 30/11
Fjölbrautarskólanum
Akranesi
mjög vel (enda platan góö) og viö
læröum mikið af honum.”
Hefur það áhrif á hljómsveitina
aö meölimirnir skyldu vera meö
svo ólíkan bakgrunn?
„Alveg örugglega, en á hvern
hátt er erfiöara aö segja til um.”
Volker veröur fyrir svörum.
„Þegar ég ákvaö að setja saman
hljómsveit fannst koma fram
nokkur munur á afstööu okkar til
hljómsveitarinnar. Ég setti mér
það frá upphafi aö þetta skyldi
veröa atvinnuhljómsveit (pro-
fessional) en sú skoöun fannst
mér ekki vera rikjandi hjá
hinum. Það hefur hins vegar
breyst. Kannski var þaö vegna
þess að ég er frá Berlin, þar sem
tónleikum, bæði fyrir eyru og
fætur.”
Ahugamál?
„Tónlist. Viö reynum allir aö
dreifa okkur um tónlistarsviöiö,
ef svo má segja. Viö eigum okkar
eigiö útgáfufyrirtæki „Sensible
Sound”, vinnum alla vinnu I
samkeppnin er hörö, aö ég gekk
til þessa verks af svona mikilli
alvöru.
Góður arkitektúr
Þegar reynt var að forvitnast
fyrir um dagskrá þeirra félaga
hér á landi, hvar og hvenær þeir
spiluðu, ypptu þeir öxlum og
visuðu alfariö á Elsu.
„Hins vegar má það alveg
koma fram hér að viö spilum
dansmúslk. Viö leggjum okkur
fram við aö vera áheyrilegir á
kringum útgáfu platna frá upp-
hafi til enda. Auk þess störfum
viö sjálfstætt utan hljómsveitar-
innar. Torgrim er blaðamaöur
hjá tónlistarblaði, Don vinnur I
músikklúbb og Volker hefur tekiö
aö sér að vera upptökustjóri hjá
nokkrum hljómsveitum.”
„Heyröu.þaö má alveg koma
fram að viö erum stórhrifnir af
arkitektúrnum á húsunum hér á
tslandi. Viö höfum aldrei séö
annað eins þessu llkt.”
Hvernig i ósköpunum..........?
„CUT”
—M.G.
• PLÖTUR • PLÖTUR • PLÖTUR • PLÖTUR • PLÖTUR • PLÖTUR • PLÖT R # PLÖTUR • PLÖTUR • PLÖ
Nýtt plötuútgáfufyrirtæki
A dögunum tók til starfa nýtt
plötuútgáfufyrirtæki. Nafn þess
er SPOR og starfar þaö i náinni
samvinnu meöSteinum h.f., en þó
alveg sjálfstætt. Hællinn og táin
og allt þar á milli I þessu fyrirtæki
er Jónatan Garðarsson, eini at-
vinnuáhugamaöur okkar Islend-
inga um tónlist. Nútiminn sneri
sér til Jónatans og spuröist fyrir
um tilurö fyrirtækisins.
„Þar var komiö aö fyrirtækiö
Steinar h.f. gat ekki gert meira
heldur en aö anna þeim lista-
mönnum sem þegar voru á samn-
ing hjá fyrirtækinu. En eins og
allir vita þá hefur veriö mikil
gróska í tónlistarlifi Islendinga aö
undanförnu og nýár listamenn
spretta upp, nánast á hverjum
degi. Til þess aö sinna þörfum
þeirra fyrir aö koma efni sinu á
framfæri var ákveöið aö stofna
nýtt útgáfufyrirtæki til aö anna
eftirspurninni.
Og reynslan hefur kennt okkur
þaö aö þaö er nægur markaður
fyrir þetta efni”.
Fyrirtækiö mun likt og Steinar
h.f., einbeita sér aö útgáfu á inn-
lendum og erlendum hljómplöt-
um. A vegum þess eru þegar tvær
plötur komnar á markaöinn (og
veröa þær ræddar hér á eftir).
Væntanleg er fyrsta platan frá
„Grýlunum” og eru þær jafn-
framt fyrstu islensku listamenn-
irnir sem gera samning viö
SPOR, en fleiri eru i sigtinu aö
sögn Jónatans.
Matchbox — „Flying
Colours"
Rokkabillý hefur heyrst mikiö
aö undanförnu. Bæöi er mikiö um
baö talaö og þaö mikiö spilaö
vegna skyndilega áhuga almenn-
ings á þessu tónlistarformi, sem á
sér djúpar rætur i tónlistarsög-
unni.
En hvaö er þetta rokkabillý?
Heitir þaö eftir einhverjum göml-
um rokkara sem hét Billý?
Nei, þetta er tónlistarstefna
sem er jafngömul aö árum og
rokkið. Hún hlaut nafn sitt ann-
arsvegar frá „Rock and Roll” og
hinsvegar frá „Hillbilly” tónlist
viö samruna þessara tveggja tón-
listarstefna um miöjan sjötta
áratuginn. Af þeim listamönnum
sem fluttu þessa tónlist er Elvis
Presley liklega þekktastur, en
Bill Haley, Carl Perkins, Jerry
Lee Lewis og Burnett bræöurnir
eiga einnig frama sinn þessari
stefnu aö þakka. Rokkabillýiö
hvarf I skuggann af Bitlaæöinu og
hefur veriö litt haldiö á lofti siöan.
Nú á timum hins vegar hefur það
átt vaxandi fylgi aö fagna. Þaö er
eflaust þvi aö þakka aö þetta er
ein alskemmtilegasta danstónlist
sem fyrirfinnst og á þessum ára-
tug hafa danslög, létt og gripandi,
veriö hvaö vinsælust.
Hér á landi hafa nöfn eins og
Shakin Stevens og Stray Cats ver-
iö helstu fulltrúar endurvakning-
ar rokkabillýsins.
Hljómsveitin Matchbox er
bresk rokkabillýhljómsveit sem
nýtur töluverörar viröingar og
vinsælda i heimalandi sinu, og
ekki aö ástæöulausu. Hljómsveit-
inni hefur tekist aö ná hinni
hreinu tilfinningu fyrir tónlist-
inni, þannig aö maöur er ekki aö
hlusta á gamlan endurvakinn
slagara heldur nýja ferska tónlist
flutta á hressilegan hátt. Lög
hljómsveitarinnar eru flest sótt i
tónsmiöju Steve Bloomfield, gitar
og munnhörpuleikara hljómsveit-
arinnar og hafa þaö öll sér til á-
gætis aö vera létt, gripandi og
stutt.
„Flying Coloures” er þriöja
breiöskifa hljómsveitarinnar og
stenst hún prófiö meö „flying
colours” (meö ágætum)
Bad Manners n Gosh
it's...."
Þaö er siöur en svo aö Madness
séu einu sprellikarlarnir i bresku
tónlistarlifi. A þvi sviöi er um
GOSHITS...
næga samkeppni aö ræöa. Einna
heist kemur hún frá hljómsveit
sem nefnir sig þvi sérkennilega
(en jafnframt táknræna) nafni
„Bad Manners” (slæmir manna-
siöir). Það virðist vera oröið
sameiginlegt meö breskum
„ska” hljómsveitum að liðsmenn
þeirra séu ólátabelgir hinir
mestu. Þaö viröist einhvern veg-
inn fara saman viö gleöirika og
taktfasta „ska”-tónlistina.
Bad Manners hafa þegar náö aö
skapa sér nafn I Bretlandi og lag
þeirra „Can-can” náöi hátt á vin-
sældarlista. Hljómsveitin er niu
manna og mætti halda að slikur
fjöldi myndi dreifa athygli áhorf-
enda þegar þeir léku á sviði og aö
erfitt væri aö þekkja þá i sundur
til aö hafa einhvern fastan punkt I
hljómsveitinni.
En Bad Manners hafa séö viö
þessu. Söngvari þeirra er tvitug-
ur piltur, akfeitur og auk þess
vita-sköllóttur. Ef þetta er ekki
nóg til aö halda athygli áhorfenda
á tónleikum þá dugar ekkert. En
ekki er þaö útlitiö sem skiptir öllu
máli. Hvernig er tónlistin?
„Ska”-tónlist er taktföst, þar
sem grunnurinn er lagöur meö
bassa, trommum og hljómboröi,
en ýmis blásturshljóðfæri vefa
krúsindúllur i kringum hann.
Söngurinn skiptir miklu máli viö
útlinur og heildarsvip tónlistar-
innar. Reggeatrommarar og
blásarakvintett úr Earth, Wind
and Fire á bjórfyllerii. Partý-
plata.
— M.G.
Earth Wind and Fire:
Raise!
Það má sjálfsagt lengi deila um
þaö aö hve miklu leyti hver ný
plata frá „Earth Wind and Fire”
sé ólik fyrri plötum. Mér virðast
beir komnir á það stig aö gefa út á
hverju ári kringlótt endurtekn-
ingarmerki. Mér er ómögulegt aö
greina nokkurn mun á hljóm-
sveitinni ár frá ári. Sykursætar
ofhlaönar ballööur meö diskótakti
um ástina og guö er tónlist EW &
F.
Það sem mér finnst einna
skemmtilegast viö hljómsveitina
er ótrúlegur áhugi hennar á öllu
sem viðkemur goöafræði Egypta.
Þegar er oröin fræg notkun þeirra
og trú á pýramidaforminu sem
þeir segja að sé upphaf alls góðs.
A hverri einustu plötu þeirra
kemur þetta form fram og nú á
Raise! er opnu umslagsins eytt
undir þessa trúarjátningu. A
framhlið og bakhlið umslagsins
er táknrænni mynd frá Egypta-
landi tvinnað saman við nútima-
legri form.
Trú þeirra Earth Wind og Fire
manna er i senn mikil og einlæg.
Við það er ekkert að athuga en ég
gat nú ekki annað en brosað þeg-
ar ég las innra umslag plötunnar.
EW & F er niu manna hljómsveit
og teldist sumum það vera dálag-
leg tala fyrir poppgrúbbu, og
segðu sem svo að þeir ættu nú að
geta komið skammlaust frá sér
tónlist sinni. En ekki aldeilis, á
umslaginu eru hvorki meira né
minna en 59 nafngreindum tón-
listarmönnum þakkað liðsinni
þeirra við gerð þessarar plötu, og
eins og það sé ekki nóg þá má
finna innan þar sem þessir 59
menn eru taldir upp eftirfarandi
klausu: „Special thanks to The
Creator our Guiding Light”.
Er Hann nú orðinn sessionleik-
ari?
— M.G.
Elvis Costello & The Att-
ractions / Almost blue
Þetta er i rauninni alveg stór-
merkileg plata.
Elvis Costello sem var i fram-
varöarsveit enskrar nýbylgju
bregöur sér til Nashville I Banda-
rikjunum og tekur upp „country
and western” plötu. Þetta fram-
tak hans kom öllum á óvart. Ekk-
ert haföi bent til þess aö hann
væri hneigður til kántrýtónlistar.
Þá mai-daga sem hann dvaldi i
Nashville og það kvisaðist að
hann hefði tekið ástfóstri við
kántrý settu menn upp efasemd-
arsvip og spurðu sjálfan sig:
Hvernig getur hreinræktaður
Breti, og það nýbylgjugæi i
þokkabót, spilað kántrý?
Svarið er að finna á plötunni
„Almost blue” og svarið er:
„Mjög vel”.
É fæ ailtaf tvöfalda ánægju út
úr þvi að hlýða á þessa plötu (og
þaö geri ég oft). 1 fyrsta lagi er
þetta stórskemmtileg kántrý-
plata.
1 öðru lagi fæ ég mikið „kikk”
út úr þvi að hlusta á Elvis og fé-
laga flytja þess konar músik.
Þetta gengur svo gegn fyrirfram
gerðum hugmyndum sem maöur
geröi sér um hann og þvi sem
hann var aö gera áður. Hann tek-
ur töluveröa áhættu meö þessu og
þaö likar mér. Hann opnar sig al-
veg og segir „hér er ég og þessu
hef ég áhuga á núna” Hann er
ekki þannig maður aö hann láti
sér nægja aö veröa fyrir áhrifum
af vissri tegund tónlistar, heldur
tekur þátt i tónlistinni.
„Almost blue” hefur aö geyma
kántrýtónlist eins og hún gerist
best, flutta á hressan og gleöirik-
an hátt. Þaö er greinilegt aö tón-
listarmennirnir skemmta sér
konunglega viö flutninginn og sú
tilfinning kemst vel til skila.
Söngur Elvis nýtur sin vel i ró-
legri lögunum og hljómsveitin
skilar sinu vel, en nýtur mikillar
aðstoðar frá John McFee sem.
leikur á stálgitar og gefur plöt-
unni þennan óvéfengjanlega
kántrýblæ.
Elvis Costello & The Attracti-
ons eru ekki aö segja skiliö við
nýbylgjuna. Þeir eru aöeins að
vikka sjóndeildarhring sinn og
vonandi aödáenda sinna.
— M.G.
Rodkál
Rodkal!
ogncmn
Húsbygg jendur - Verktakar
Loftorka s.f.Framleiðsluvörur:
Frátennslisrör, brunnar- rotþrær.
Milliveggjaplötur ur gjalli.
Holsteinn til útveggjahleöslu.
Gangstéttarhellur, kantsteinar.
Steinsteyptar húseiningar. Fjöldi"
húsgerða. Pantiö sýnishorn.
Verktakastarfsemi.
Borgarplast HF.Framleióslu- og
söluvörur:
Einangrunarplast, allar þykktir og
stærðir.
Plpueinangrun úr plasti, allar stærðir.
Glerull og steinull, allar þykktir. Ál-
papplr, þakpappi, útloftunarpappi,
bylgjupappi, plastfólla. Múrhúóunarnet,
nethald.
Góð verð, fljót afgreiösla og greiösluskilmálar við flestra hæfi. Daglegar feröir vöru-
flutningabifreiða I gegnum Borgarnes, austur, noróur og vestur. Borgarplast hf. af-
hendir vörur á byggingarstaö á stór- Reykjavlkursvæðin, kaupendum aó kostnaðar-
lausu. Ferðir alla virka daga.
Borgarnesi, slmi 93—7113
Kvoldslmi og helgarslmi 93—7155
BORGARPLAST HF
Borgarwesi simi93-7370
Kvöldslmi og helgarslmi 93—7355
Byggingarvörur-Einingahús
IMÝR
LITMYNDALISTI
ÓKEYPIS
Komió, hringió eöa skrifiö
og fáiö nýja MICROMA
litmyndalistann ókeypis.
FRANCH MICHELSEN
ÚRSMÍÐAMEISTARI
LAUGAVEGI 39 REYKJAVÍK SÍM113462