Tíminn - 29.11.1981, Blaðsíða 30

Tíminn - 29.11.1981, Blaðsíða 30
30 Sunnudagur 29. nóvember 1981 ■ (Jr myndinni I Confess. ■ i myndinni A Place in the Sun meft Liz Taylor i myndinni Red River. ® Montgomery Clift, 1920-1966. Fjórtán ára steig hann fyrst á leiksvið á Broadway, New York, og lagði borgina aö fótum sér. Skjótt var hann talinn i hópi efni- legustu og bestu leikara Banda- rikjanna. Hann fór til Hollywood varð fyrstur til að semja við framleiðendurupp á sin eigin býti og lék aðalhlutverk við mikinn oröstir i myndum á borð við Red River, A Place in the Sun, I Con- fess, From Here to Etemity, The Young Lions, The Misfits... Hann skapaði nýjan leikstil, var fremri Marlon Brando og James Dean. Hann átti ástir margra fegurstu kvenna sinnar samtiöar, hann naut viröingar fyrir gáfur . i'nar og vinsældir hans voru gifu'leg- ar. Hann var ógæfumaður oi' dó niöurbrotinn. Titt er að leita orsaka til semi tima ógæfu i' bernsku. Og er e iki að spyrja að — bernska Mo ít- gomery Clifts var ekki meö venjulegum hætti. Móöir hans v ir jafnan kölluö Sunny, hún var li- sprengi forboðinnar ástar innan tveggja gamalgróinna fjö. - skyldna i Bandarikjunum, Andei að þau fylltust á endanum sektar- kennd. Sér i lagi Montgomery jafnan kallaður Monty. Monty var afskaplega bliðlynd- ur drengur, góöur og nærgætinn, kurteis, gáfaður og vel upp alinn. Engin ástæða er til aö ætla að þaö hafi ekki áttsér stoö i raunveru- legum persónuleika hans, en sá timi kom að Monty vildi lifa sinu eigin lifi, án vakandi auga Sunny- ar. Það gekk illa. Hann var upp- götvaöur af leikhúsmönnum er hann var nýkominn á táningsald- ur og talinn eiga mikla framtið fyrir sér, Sunny féllst á að hann færi á leiksvið en ætlaði það að- eins til bráðabirgða meðan hann væri að vinna sér sess hjá aristó- kratii Bandarikjanna. Monty var á annarri skoðun. Frá fyrstu stundu fann hann að hann átti heima i hiutverki leikarans, þar lifði hann sinu öðru lifi. Hann hlaut enda strax mikið lof fyrir frammistöðu sina á Broadway þar sem hann lék sitt fyrsta hlut- verk aðeins fjórtán ára eins og áður kom fram. Menn skynjuðu að upp var risinn mikill leikari. Næstu árin starfaði Monty sama leyti lék hann einnig i myndinni The Search sem leik- stjórinn Fred Zimmerman gerði, hún fjallar um hermann Banda- rikjanna f býskalandi sem tekur að sér litinn þýskan dreng. Báðar þessar myndir gengu mjög vel og sjáldgæft að kvikmyndaleikari hefji starf með jafnmiklum „bravúr” og Montgomery Clift. Næstu myndir Montys voru The Heiress, þar sem hann lék á móti Oliviu de Havilland og Ralph Richardson, og The Big Lift, sem fjallaði um loftbrúna til Berlinar. Sú siðarnefnda var frumsýnd i april 1956. bá var orðin breyting á Mont- gomery Clift. Þessi ljúfi maður, hvers manns hugljúfi, var lentur i sálarkreppu — það fór ekki fram hjá vinum hans. Ofurviðkvæm skapgeröhans gerði hann veikan fyrir,ofverndunin sem hann hafði alla tiö notið hjálpaöi ekki upp á. Nýtt vandamál skaut upp kollin- um og ógnaði sjálfsvitund hans — hann reyndistsem sé vera tvitóla, hafði álika gaman af karlmönn- um og kvenmönnum. Þetta var honum eðlilegur hlutur og hann Montgomery Clift r>s son og Blair. Foreldrum hennar var ekki leyft að eigast út úr ein- hverjum duttlungum fjölskyldn- anna og er barnið fæddist þrátt fyrir allt var þvi' komiö i fóstur hjá óbreyttu alþýðufólki sem reyndist þvi misjafnlega. Er Sunny fékk að vita um sinn rétta uppruna tókst hún öll á loft, hún var nefnilega hreint og beint snobbuð. Þvi sem eftir var ævi hennar eyddi hún i að reyna að öðlast viöurkenningu Anderson og Blair ættanna og sparaöi sér hvorki peninga né ómak til þess. Eftir að hún giftist Bill Clift, sem fyrir Kreppuna miklu var auðug- ur bankamaður, fékk hún fé upp i hendurnar til að ala börn sin upp sem aristókrati — þeim var sifellt sagt aö þau væru sérstök, máttu ekki fyrir sitt litla lif eiga nokkurt samneyti viðönnur börn og eyddu bernskunni einangruö á hótelher- bergjum i Evrópu, á söfnum, á tónleikum og á ferðalögum. Þessi börn voru þrjú — elstur var Brooks, siðan komu tviburarnir Edward Montgomery og Ethel, jafnan kölluð Sister. Þetta voru falleg börn og vel upp alin svo af bar, tilfinningar þeirra, athafna- þrá og gáski var allt bælt misk- unnarlaust niður, undir yfirskini bliðlyndis og göfugs ættemis móðurinnar. 1 Kreppunni miklu sem sló Bandarikin og heiminn allan niö- ur upp úr 1930 missti Clift-fjöl- skyldan fé sitt allt og sú stolta kona, Sunny, þurfti að fara út að vinna, skúra gólf. Einu gilti hins vegar hversu að kreppti, alltaf varbörnunum talin trú um að þau væru betri og merkilegri en önnur börn, þau væru af hinum gagn- merku ættum Anderson og Blair, sem að visu vildu ekkert með þau hafa. Allur þessi undarlegi upp- vöxtur einangraði börnin sifellt meira og þegar þau geröu mátt- vana tilraunir tilað brjótast und- an ofurvaldi Sunny var reynt eftir megni aö bæla þær niöur, þannig mestanpart á Broadway en fór einnig i leikferöir um öll Banda- rikin. Er sföari heimsstyrjöldin hófst var hann um tvitugt, öll striösárin lék hann vegna þess að hann var ekki kallaöur i herinn. Þaö hlaut aö koma að þvi að Hollywood færi að sýna honum áhuga. Þegar að þvi kom uppgötvuðu fjármálaspekúlantar kvik- myndaveldisins i Hollywood að þeir voru ekki að eiga við neinn meðaljón sem vildi allt til vinna að verða kvikmyndast jarna. Monty hafði mjög mikinn metnað isinni leiklistog var ákveðinn i að láta ekki draga sig niður á plan meðalmennskunnar, hann stefndi hátt, vildi fá að leika Hamlet og Chekov, fá að reyna alla mögu- leika leiklistarinnar, færa fólki annaö og meira en sér og hver kvikmyndastjarna gerði fyrir peninga. Þvivarðdrátturá þvi að hann tæki að sér hlutverk i kvik- myndum. Erað þvi kom heimtaði hann ekki einungis að hann fengi að hafa hönd i bagga með samn- ingsgerð heldur krafðist hann þess að fá að ráöa þvi algerlega sjálfurhvaða hlutverk hann veldi sér og það sem mestu máli skipti var, aö hann kom inn i alla si'na samninga klausu þess efnis að hann fengi að hafa vald yfir hlut- verki sinuog breyta þvi sem hann vildi breyta og fannst geta farið betur. Var hann fyrsti leikarinn sem geröi uppreisn gegn ægivaldi stóru kvikmyndaveranna i Holly- wood, á eftir honum komu m.a. Marlon Brando, keppinautur Montys. Fyrsta myndin sem Monty lék i var Red River, vestri sem geröur var af Howards Hawks og John Wayne lék aðalhlutverkið i. Monty lék fósturson hans og i raun annað stærsta hlutverk myndarinnar. Red River þykir núorðiö næstum klassiskur vestri og samleikur Waynes og Montys þykir með afbrigðum góður. Um ■ Monty, ungur og myndarlegur drengur. gerði ekkert til að bæla þessar hvatir niður i sér en samt gat hann aldrei sætt sig almennilega við þetta. Hið púritanska uppeldi sagði þar til sin. Monty, sem varla hafði snert áfenga drykki fyrir árið 1949, var ári siðar far- inn að drekka heilu vodka-flösk- urnar upp á hvern einasta dag og það sem verra var: hann fór að taka pillur. Er Monty lét innrétta nýtt Ibúð- arhúsnæði handa sér skömmu eftir 1950 lét hann koma fyrir á baðherberginu lyfjaskáp sem var hvorki meira né minna en fjórtán feta langur! Þar voru allar hugs- anlegar og óhugsanlegartegundir af pillum — róandi lyf, örvandi lyf, svefnlyf, verkjatöflur og allt sem nöfnum tjáir að nefna. Það var mjög algengt að Monty gleypti á hverjum mánuði allt að eitt þúsund töflur af öllum gerð- um — þaö gerir rúmlega 30 töflur á dag. Og i hvert sinn sem hann fann til vanliðunar, andlegrar eða likamlegrar, fékk hann sér krepping af pillum. Stundum at- hugaði hann ekki einu sinni hvaða tegundir hann var að bryöja. Li'fið var honum erfitt. Hann fann i' sjálfum sér hvatir sem komu illa heim og saman við það sem honum hafði verið kennt að rétt væri og göfugt að sækjast eft- ir, hann langaði til að reyna svo fjarska margt. Oftsagði hann við vini sina að hann vildi stiga niöur til helvitis og risa upp aftur, jafn hreinn og flekklaus og hann var i rauninni i eðli si'nu. Næstu árin, raunar allt þar til hann lést, steig Montgomery Clift hvað eftir ann- að niður til helvitis og alltaf reis hann upp jafn hreinn og fyrr. En þetta vafstur hafði samt si'n áhrif einsogliggur i augum uppi.Hann varð æ brotgjamari andlega, mátti ekki við miklu, og heilsa hans fór vitanlega i hundana vegna piiluáts og drykkju. Hann gat hins vegaraldreihorfst i augu við að drykkjan eða pilluátið væri iraun vandamál og þar átti hann hauk i horni sem var sálfræðingur hans, sem hann hitti næstum dag- lega i fjórtán ár. Sálfræðingur þessi vildi Monty ákaflega vel, en þegar upp var staðið voru flestir á einu máli um að hann hefði haft mjög slæm áhrif á Monty. Þetta var Freudistiog hneigðist til að á- lita að öllvandamál mætti rekja til bernsku —sem vissulega mátti til sanns vegar færa i þessu til- viki, jafnvel eitt einstakt atvik: þegar svo væri komið félli allt i dúnalogn og Monty yrði ham- ingjusamur. Auðvitað var þetta firra. Monty skorti sjálfsvitund, öryggi og hann þarfnaðist ástar i mjög rikum mæli: vegna þess sem sálf ræðingur hans sagði hon- um tókst honum ekki að manna sig upp i aö horfast i augu við vandamál si'n eins og þau blöstu viö, heldur lét reka á reiöanum. Og gaf ööru fólki endalaust af sjálfum séren fékk litið i staöinn. Hann átti fjöldamarga vini og enn fleiri kunningja en hann var erfiður í umgengni og þrátt fyrir öll sin vinahót og bliðu hleypti hann mönnum ekki nálægt sér. Er þeir gáfúst upp á honum fannst honum hann hafa verið notaður, og fátt var honum jafn illa við og það. Allan áratuginn frá 1950 til 1960 flaut hann sofandi að feigðarósi. Hann lifði hátt, elskaði mikið og var elskaður, en fannst hann um leið vera einn i heiminum, ein- stakur, enginn skildi hann. Sem kann ekki góðri lukku að stýra. Þrátt fyrir alla þessa erfiðleika fór frami hans sem kvikmynda- leikara enn vaxandi. Árið 1951 var frumsýnd kvikmyndin A PlaceintheSun, sembyggð var á sögu eftir Theodore Dreiser, og þar sannaði Monty griðarlega hæfileika sina. Hann tók á sig skinn þeirrar persónu sem hann lék, hann ummyndaðist. Sumir telja að ástæðan fyrirþvf aðhann fékk aldrei Óskarsverðlaun eða ámóta viöurkenningar fyrir leik sinn hafi veriö sú að hann sýndi i rauninni aldrei stjönruleik eins og það orð er vanalega notað. Hann skaraði ekki fram úr, stökk ekki út úr tjaldinu, heldur átti hann þvert á móti heima þar, hann samlagaöist mönnunum sem hann lék. Oft svo vel að mönnum þótti nóg um. 1 myndinni A Place in the Sun lék Monty i fyrsta sinn á móti EBzabeth Taylor og eins og fleiri heillaðist hann af henni. Hún var þá aöeins 17 ára og á hátindi feg- urðar sinnar og persónutöfra — milli þeirra myndaðist djúp og trygg vinátta. Þaö er raunar vit- að mál að Taylor reyndi oft að fá Monty til að giftast sér en hann var aldrei tilleiðanlegur, vildi ekki binda sig niöur, var hræddur við afleiðingarnar. Þess i stað {

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.