Tíminn - 16.12.1981, Qupperneq 3
Miðvikudagur 16. desember 1981 .
■ Hinn nýi togari Búlandstinds á Djúpavogi, sem áður hét Kapp Linné, en sem nú hefur verið gefið
nafnið Sunnutindur SU-59.
Nýr togari kom til
Djupavogs í gærdag
— Kaupverdid 19 milljónir norskra króna
■ 1 gær kom til Djúpavogs skut-
togarinn Sunnutindur SU-59, sem
fyrirtækið Búlandstindur hefur
keypt frá Noregi. Kaupverð
skipsins er um 19 milljónir
norskra króna. Skipið er um 300
tonn að stærð, með 1700 hestafla
vél af gerðinni Bergen-diesel.
Gengið hefur verið frá öllum
leyfum og lánafyrirgreiðslum frá
hendi stjórnvalda hvað skipa-
kaupin varðar, og rikisstjórnin
lagt blessun sina yfir kaupin.
Skipið var smiðað árið 1978, og
hefur verið notað aðeins 3-4 mán-
Vararafstöð útvarpsins brást
í gærmorgun:
OFKALT
í HÚSINU!
■ „Hitinn i útvarpshúsinu hefur
verið eitthvað litill undanfarið, og
þvi fór vararafstöð útvarpsins
ekki i gang i gærmorgun”, sagði
Hans Þormar hjá Pósti og sima i
viðtali við Timann i gær, þegar
hann var að þvi spurður hvernig
uði á ári þau ár sem liðin eru sið-
an, vegna strangra veiðitak-
markana út af Tromsö þar sem
skipið var gert út frá. Er skipið
allt hið fullkomnasta að gerð.
Smábreytingar þarf að gera á
skipinu áður en það getur hafið
veiðar, t.d. þarf að setja isvél i
skipið, en búist er við að það geti
farið til veiða upp úr áramótum,
auðvitað að þvi tilskyldu að nýtt
fiskverð hafi verið ákveðið.
—Kás
hefði staðið á þvi að vararafstöðin
fór ekki i gang, i gærmorgun, en
eins og kunnugt er, þá féll út-
varpsútsendingniðuri I5minútur
i gærmorgun, vegna þess að
vararafstöðin fór ekki i gang,
þegar rafmagn fór af útvarpshús-
inu.
Hans var að þvi spurður, hvort
svona atvik yrði ekki til þess, að
eftirlit með kyndingu yrði aukið,
þvi það gæti komið sér mjög illa
ef útvarpsútsendingar stöðvuð-
ust. „Þetta verður sjálfsagt til
þess að betur verður kynt þarna,
en það má ekki gleyma þvi að
vararafstöðin hefur oft farið i
gang i haust, án þess að nokkuð
kæmi fyrir. Þetta einstaka tilvik
sem gerðist i morgun, hefur ekki
komið fyrir mjög lengi, en slikt
getur að sjálfsögðu hent alla
hluti.”
—AB
Ákvörðun um
nýtt siðdegisblað
tekin á næstu
dögum?
■ Verið er að vinna að útgáfu
nýs siðdegisblaðs og er ætlunin að
það komi i stað Alþýðublaðsins.
Samkvæmt heimildum Timans
þá mun verða tekin ákvörðun um
útkomu blaðsins á allra næstu
dögum, jafnvel i dag eða á morg-
un.
Þótt ákvörðun verði tekin nú i
vikunni er ekki útlit fyrir að blað-
ið komi út fyrr en eftir áramótin.
Hlutafjársöfnun mun vera i
gangi fyrir hið nýja blað og hafa
m.a. Þjóðviljinn og Félag bóka-
gerðarmanna verið nefndir sem
væntanlegir hluthafar.
Aðspurður sagði Jóhannes Guð-
mundsson framkvæmdastjóri Al-
þýðublaðsins sem meðal annarra
hefur unnið að undirbúningi hins
nýja blaðs að enn væri áætlun um
slikt blað ekki fastmótuð. Ýmsar^
hugmyndir væru á lofti og vænt-'
anlega yrði gengið frá málinu
fyrir eða um helgina.
—FRI
Sjóménn í verk-
fall á jóladag
■ Samninganefnd sjómanna hef-
ur samþykkt að boða skuli til
verkfalls sjómanna á jóladag, 25.
desember n.k.
Samkvæmt samningum eru
stóru togararnir skyldugir til að
koma i höfn annaðhvort um jólin
eða nýárið, en minni skipin aftur
á móti skyldug að koma i höfn um
jólin, nema þau sem eru að fiska
fyrir erlendan markað.
Að sögn Óskars Vigfússonar,
forseta Sjómannasambandsins er
þetta gert til að þau fari ekki að
þvælast út eftir jólin og þar með
skemma þá samhygð sem óskað
er eftiraf sjómönnum. „Við verð-
um að gripa til þessa vopns á
jóladag til að tryggja að þau fari
ekki út”.
Óskar sagði sum sjómannafé-
lögin gefa samninganefndinni
umboð til verkfallsboðunar, en að
önnur séu með það i eigin hönd-
um. „En við reynum að sam-
ræma þetta, þannig að allir séu á
sama báti á sama tima”.
Samningamálin sagði Óskar
ganga heldur treglega eins og við
sé að búast, á þeim samninga-
fundum sem haldnir hafa verið.
—HEI
í dagsins önn
Þorsteinn Matthíasson skráði
Nú er komið f jórða bindið af þessum fróðlegu ævi-
þáttum. I þessa þætti er ekki valið eftir vegtyllum
eða mannvirðingum. Hér eru alþýðumenn og konur
að segja sögu sina en þó sumt þeirra landsþekkt
fólk. Sagnir af lifsbaráttu til sjávar og sveita á liðn-
um árum. Þessar bækur eru fróðleiksnáma um þau
erfiðu og fjölbreyttu kjör sem eru að verða okkur
hulin fortið.
Sögumenn:
Friðgeir Þorsteinsson, útgerðarmaður, sjómaður og oddviti á Stöðvar-
firði. ______
Hallgrimur Egilsson, garðyrkjumaður, Hveragerði.
Haraldur Kristinsson, frá Núpi, sjómaður, bóndi og smiður.
Hinrik Vilhjálmur tvarsson I Höfnunum, útgerðarmaður, formaður og
refaskytta og siðast en ekki sist faðir söngstjarnanna okkar Eillar og
Vilhjálms. ------
Jónas Pétursson, fyrrverandi alþingismaður, bóndi, bústjóri á Skriðu-
klaustri og verslunarstjóri.
Marinó Guðfinnsson, Seyðfirðingur, sjómaður og vaktmaður.
Páll Einarsson, Mýrdælingur, sjómaður og bóndi, lengi fjósamaður á
Vifilsstöðum og Bessastöðum. ^
Þorbjörg Árnadóttir, hjúkrunarkona, hefur unnið ómetanleg störPSy
i sjúkdómsvörnum og hjúkrun, auk þess skrifað nokkrar bækur. Æ
;HnistitK(ií<in
LOFORÐIÐ
Saga um ungar ástir og hindranir í vegi hennar. Arkitekt
og listakona fella hugi saman. En honum er œtlað að taka
við fyrirtœki fjölskyldunnar - og unnustan hlýtur ekki náð
fyrir augum móður hans. Átökin enda með ósköpum og
leiðir skilja - elskendumir öðlast nýja reynslu. En vegir
ástarinnar eru órannsakanlegir og tryggðarbönd geta
stundum þolað mikið álag.
Höfundurinn, Danielle Steel, er bandarísk og sögusviðið
er stórborgir í heimalandi hennar. Hún hefur skriíað vin-
sœlar ástarsögur, sem haía verið þýddar á mörg tungu-
mál.
SETBERG