Tíminn - 16.12.1981, Qupperneq 7

Tíminn - 16.12.1981, Qupperneq 7
Miðvikudagur 16. desember 1981 7 ■ Lech Walesa og Seweryn Jaworski á Radom-fundinum. Osáttfýsi jókst á báða bóga Það leiddi til herlaga í Póllandi ■ ENN er ekki hægtaðgera sér alveg glögga grein fyrir siðustu atburðum i Póllandi, er leiddu til þess að neyöarástandi var lýst yfir og herlög látin taka gildi. Sennilega þarf ekki að fara lengra aftur í timann en til fundar þeirra þremenninganna, Jaru- zelskis forsætisráðherra og leið- toga kommilnista, Glemps erki- biskups ogWalesa, leiðtogaSam- stöðu. Fljótlega eftir hann létu hægri menn í forustu Kommúnista- flokksins og vinstri menn i for- ustu Samstöðu meira á sér bera og settu fram kröfur, sem ejfitt myndi eða Utilokað væri að fá samstöðu um, en fundur þre- menninganna var einmitthaldinn i þeim tilgangi að reyna að koma á þjóðareiningu. Þótt Walesa reyndi að . afstýra verkföllum, héldu þau á- fram meira og minna i einstök- um héruðum, verksmiðjum og skólum. Þetta var vatn á myllu hægri aflanna hjá kommúnistum. Þau héldu þvi fram, að tilgangs- laust væri aö semja við Walesa, þvi að hann væri i raun umboðs- laus, þrátt fyrir formannstitilinn hjá Samstöðu. Á miðstjórnarfundi i Kommúnistaflokknum, sem haldinn var fyrir skömmu, fengu hægri menn samþykkt að skora á þingið að samþykkja lög, sem heimiluðu stjórninni að banna verkföll. Þetta gaf vinstri mönnum hjá Samstöðu byr i seglin. Þeir Jiót- uðu með allsherjarverkfalli, ef slik lög yrðu samþykkt. Þeir settu jafnframt fram nýjar kröfur og skilyrði. Þá gagnrýndu þeir Wal- esa harðlega fyrir að hafa rætt við þá Jaruzelski og Glemp, án þess að hafa til þess nokkurt um- boð frá Samstöðu. KUNNUGT er að harðar deilur urðu á fundi leiðtoga Samstöðu, sem haldinn var i Radom fóstu- daginn 4. þ.m. Fundur þessi var haldinn rétt eftir,að lögreglan hafðimeð valdi bundið enda á setuverkfall nemenda i skóla brunaliðsins i Varsjá.en hann heyrði undir her- inn. Það var krafa nemenda, að skólinn væri tekinn undan stjórn hersins. Þessi aðgerð lögreglunnar var óspart notuð af vinstri mönnum i Samstööu, sem töldu nauðsyn- legt, að Samstaða léki einhvern mótleik til að sýna styrk sinn. Með einhverjum hætti tókst lögregluvöldum að láta taka um- ræðurnar á fundinum i Radom upp á segulband og var veruleg- um hluta þeirra útvarpað ■ Glemp erkibiskup. nokkrum dögum seinna. Þar kom fram, að ýmsir fundarmanna kröfðust þess, að látið yrði koma strax til átaka við stjórnarvöld, m.a. sett upp bráðabirgðastjórn og stofnað sérstakt varnarlið. Walesa maldaði i móinn og taldi timann illa valinn til átaka nú. Til þeirra myndi sennilega koma, en áður yrði Samstaða að hafa styrkt sig betur og unnið sér meiri tiltrú. A meðan yrði að semja við stjórnarvöldin og segja við þau, að „við elskum ykkur og við elskum Sovétrikin.” Walesa var óvægilega gagnrýndur á fundinum og lét einn fundarmanna, Seweryn Jaworski, sem er talinn valda- mesti maður Varsjárdeildar Samstöðu, orð falla á þessa leið: Ef þú lætur undan, skal ég háls- höggva þig, og geri ég þaö ekki, mun einhver annar gera það. Svo virðistsemWalesa hafilent í rhinnihluta og látið undan siga. Samþykkt var á fundinufh að efna tafarlaust til allsherjarverkfalls i sólarhring, ef þingið samþykkti lög um að banna verkföll. Vinstri menn i Samstöðu virð- ast enn hafa sótt i sig veðrið á landsfundi Samstööu, sem hald- inn var i lok siðustu viku, en þar var m.a. samþykkt að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um kröfur þær, sem Samstaöa hafði sett fram um breytingar á stjórnar- kerfinu. Atkvæðagreiðsluna skyldi Samstaöa annast sjálf, ef stjómarvöld fengjust ekki til að framkvæma hana. Atkvæðagreiöslunni skyldi ldc- ið fyrir 15. janúar. ENDANLEGA átti mið- stjórnarfundur Samstöðu að samþykkja þessar tillögur. Sá fundur hefur sennilega ekki verið haldinn. Snemma á sunnudags- morguninn var tilkynnt, að lýst hefði verið yfir neyöarástandi i landinu, herlög væru komin til framkvæmda og öll völd i höndum sérstaks herráðs. Jaruzelski virðist hafa gert sér von um til si'ðustu stundar að samkomulag gæti náðst. Hann dró þvi að kalla þingið saman, eða enda þótt hægri menn ýttu á eftir þvi. Jaruzelski virðist hafa gert sér ljóst, að það gæti enn aukiö upplausnina i landinu, ef þingið setti lög um'aö banna verk- föll. Glemp erkibiskup varaðieinnig við slikri lagasetningu og hvatti til að reynt yrði að sameina þjóðina. Meðan þessu fór fram, versnaöi stöðugt efnahagsástandið i landinu og matvæladreifingin komst i algert óefni. Svo virtist sem óánægja almennings hafi i seinni tið bitnað verulega á Samstöðu. I byrjun desember var birt nið- urstaða skoðunarkönnunar, sem gat til kynna að ekki báru nema 58% þeirra, sem spurðir voru, til- trú til Samstöðu i stað 74% fyrir tveim mánuöum. Hins vegar hafði tiltrú til stjórnarinnar auk- izt úr 30% i 51%. Svo virðist sem það hafi verið taliö til bóta, að Jaruzelski tók við forustunni af Kania. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar erlendar fréttir Hundruð þús- undir í verk- falli í Póllandi ■ Þrátt fyrir fullyrðingar yfir- valda i Póllandi, þess efnis að allt sé með kyrrum kjörum i landinu, benda fregnir frá Póllandi til aö svo sé ekki, þvi fregnirnar herma að hundruð þúsundir verkamanna um gjörvallt Pólland séu nú i verkfalli og með aðrar mót- mælaaðgerðir til þess að mót- mæla herlögum þeim sem nú eru i gildi i landinu. Stórar verksmiðjur i Varsjá eru enn undir stjórn verka- mannanna, sem hafast við i verksmiðjunum. Fregnirnar um verkföll fjölda verka- manna i fjölmörgum verk- smiðjum um Pólland eru komnar frá stjórnstöð Eining- ar, sem sett var á til bráða- birgða i skipasmiðastööinni i Gdansk. Fregnirfrá Varsjá hermdu i gær að viða um landið yrðu merki upplausnar og óreiöu i atvinnulifinu meira og meira áberandi, en stjórnvöld hafa ekki viljað staðfesta slikar fregnir. Leynileg upplýsingamiðstöð i Varsjá gaf út i gær upplýs- ingarþessefnis,að á a.m.k. 20 stöðum viöa um landið stæðu nú mótmælaverkföll, sem almenn þátttaka væri i. Var andrúmsloftinu i Varsjá lýst i gær á þann hátt að það bæri skýr merki vonleysis og drunga. Enn hefur ekkert heyrst af Lech Walesa, né þvi hvar hann dvelur. Yfirvöld hafa þrætt fyrir þá fullyrðingu að hann væri i stofufangelsi og segja að hann sé enn i viöræðum við ráðamenn i Póllandi og að við- ræðurnar fari fram i grennd við höfuðborgina, Varsjá. 1 gær bárust þær fregnir frá Hollandi að vöruflutningalest sú sem fór til Póllands, heföi fengið að fara óáreitt inn i Pól- land, þar sem tekið var við vörunum. Breskar hjálpar- stofnanir hafa einnig lýst þvi yfir aö vörur þær sem sendar voru til Póllands i aðstoðar- skyni, hefðu komist á áfanga- stað og að þeim væri dreift á eðlilegan hátt. Ákvördun ísraelsmanna um innlimun Golanhæða: llla tekið víða llsraelsmenn eru sagöir hafa styrkt verulega liðsafla sinn á Gólanhæðum i gær og i fyrra- dag. Eru þessar aðgerðir Israelmanna afleiðing þess að Israelþing hefur ákveðið að innlima Gólanhæðir i riki sitt, en siðan 1967 hefur þetta svæði verið hertekið af Israelsmönn- Sýrlendingar, sem töpuðu Gólanhæðum i hendur Israels- manna i striðinu 1967, hafa nú þegar aðvarað Israelmenn og sagt að þeir muni endurgjalda á sama hátt, útþenslustefnu Israelmanna. Auk þessa hafa ísraelmenn verið þunglega gagnrýndir af öörum þjóðum fyrir þessa á- kvörðun sina. Weinberger varnarmálaráðherra Banda- rikjanna sagði t.d. að þessi innlimun bryti bæði i bága við ákvæði samninga Sameinuðu þjóðanna og við Camp David samkomulagið. Sendiráð írak í Beirut sprengt í loft upp í gær PGriðarlega mikil sprenging lagði i gær sendiráð Irak i Beirút i rúst og a.m.k. 20 manns létu lifið. Til að byrja með var talið að sendiherra Irak i Libanon væri einn þeirra sem lét lifið, en siðar fannst hann særður undir rúst- unum og var fluttur á sjúkra- hús. Sendiherrann var ekki sagður alvarlega særður, heldur með einhverja höfuð- áverka og eins með áverka á handleggjum. Hvorki fengust i gær stað- festar fréttir af þvi hvernig sprengjunni hafði verið komið fyrir, né af hverjum. BANDARÍKIN: Fregnir frá New York hermdu i gær að Banda- rikjamenn ætluðu á nýjan leik að hefja oliuinnflutning frá Irak, en hann hefur legið niöri i tvö ár. Er talið að fluttar veröi inn 30 þúsund tunnur á dag. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR: Javier Perez de Cuellar, 61 árs gamall lögfræðingur og diplómatfrá Perú, sór i gær embættiseiö sinn sem aðalritari Sameinuðu þjóðanna. öryggisráðiö sam- þykkti einróma aðútnefna hann fyrir helgi, þannig aö samþykkt allsherjarþingsins i gær, var aðeins formsatriði. De Cuellar tek- ur viðembætti 1. janúarn.k.en þá lætur Kurt Waldheim af störf- um. SUÐUR-AFRlKA:Enn eitt hermdarverkiö var unnið á raforku- stöð ISuöur-Afriku í fyrrakvöld. Mikil leit fór fram i fyrri nótt og gærdag að þeim sem eyðilagöi rafstöð hvitra I Jóhannesarborg, en hann fannst ekki. Skemmdirnar höfðu þaö i för með sér að viða var rafmagnslaust i fyrrinótt.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.