Tíminn - 17.12.1981, Síða 14
Fimmtudagur 17. desember 1981
14
heimilistíminn ^ Umsjón: B.St. og K.L.
Sambandið „Átak
gegn áfengi” kynnir:
Óáfenga
veislu-
drykki
■ Glæsilegar kökur á jólakaffiboröiö: Súkkulaöikaka, hnetusmákökur
Kökurá
jólakaffi-
borðid
■ Hér á landi hefur veriö stofnað
samband 35 félaga og stofnana
sem nefnist „Atak gegn áfengi”
og áað vinna gegn vaxandi vanda
af neyslu áfengis og annarra
vfmuefna. Það ýtti undir stofnun
sambandsins að Alþjóðaheil-
brigöisstofnunin hefur beint þvi
til aöildarþjóða sinna að reyna
með öllum tiltækum ráðum aö
minnka heildarneysju áfengis,
þar eðtjónið sem neyslunni fylgir
er í ákveðnu hlutfalli við hann.
Tekið skal fram að öll félög og
samtök sem vilja leggja hönd á
plóginn eru boðin velkomin til
samstarfs. Upplýsingareru veitt-
ar i sima 19944.
Eftirtaldir hafa þegar gerst
aði lar:
Afengisvarnad. Heilsuv .st.R.
Afengisvarnaráð
Alþý ðubandalag
Alþýðuflokkur
Alþýðusamband Islands
Bandalag fslenskra skáta
Bandalag kvenna i Reykjavi'k
Bandalag starfsm. rikis og bæja
Bindindisfélag isl. kennara
Bindindisfélag ökumanna
Félagsmálastofnun Reykjavilcur
Framsóknarflokkur
Heilbrigðisráðuneytið
Islenska bindindisfélagið
Islenskir ungtemplarar
Iþróttasamband islands
Kennarasamband tslands
Krabbameinsfélag Reykjavikur
Kristilega skólahreyfingin
Kvenfélagasamband lslands
Landssamband KFUM og KFUK
Landssambandið gegn áfengis-
böiinu
Landssamtök Junior Chamber
Menntamálaráðuneytið
Samtök áhugafólks um áfengis-
vandam.
Sjálfstæðisflokkur
Slysavarnafélag íslands
Stórstúka tslands
Unglingaregla Stórstúku tslands
Ungmennafélag tslands
Æskulýðsráð Reykjavikur
Æskulýðsráö rikisins
Æskulýðssamband tslands
Æskulýösstarf þjóðkirkjunnar
öryrkjabandalag tslands.
Atak gegn áfengi hefur sent frá
sér leiðbeiningar um óáfenga
hátiðadrykki og er þar bæði um
heita og kalda drykki að ræða.
Areiðanlega finna þarna allir
eitthvað við sinn smekk:
Jótiin eru háttö allrar fjölskyld-
unnar! Bjööum öáfenga drykki á
jólum!
Sólskin
2 dl sterk sólberjasaft
2 dl vatn
3 1/2 dl eplasafi
3 negulnaglar
litiö eitt af kanel
1/2 dl rúsinur
20 afhýddar möndlur
Blandið saman saft, vatni, epla-
safa og kryddinu. Hitiö og látið
sjóöa hægt i' nokkrar minútur.
Skiptið möndlum og rúsinum i
glösin. Tilvaliðaðbera fram með
piparkökum.
Boðlegur
1 li'tri appelsinusafi
safi úr einni sitrónu
2 flöskur sftrón
7 dl eplasafi
1/2 dós blandaöir ávextir
isteningar
Saltaðar hnetur og kartöfluflögur
þykja góðar með.
Notalegur
Blandið 4 dl af sterku kaffi saman
við 4dl af vatnskakó, sem gert er
úr
4 tsk. kakó
4 tsk. sykri
4 msk. rjóma
4 dl sjóðandi vatni.
Hrærið saman kakó, sykri og
rjóma — þeytið i sjóðandi vatni.
Blandið saman kaffi og kakó og
hitið án þess að sjóða. Bætið i
sykri eftir smdck. — Þeytiö 1 1/2
dl af rjóma. Framreiðið drykkinn
heitan i stórum bollum — með
rjómadoppum. Berið með honum
smurðar saltkessamlokur.
Bananamjólkurdrykkur
1 1/2 dl. mjólk
1 lftill banani
1 1/2 msk si'trónusafi
1 msk sykur
4 msk. Emmess
vanilluis
Appelsinusneið,
Merjið bananann með gaffli og
þeytið siðan allt saman.
Súkkulaðimjólkur-
drykkur
1 1/2 dl mjólk
1/2 dl súkkulaðiissósa
4 msk Emmess súkkulaði-, van-
illu- eða dúettis
Þeytið allt vel saman og berið
fram strax.
Gullmjólkurdrykkur
1 1/2 dl mjólk
Safi úr 1/2 sitrónu
Safi úr 1/2 appelsinu
1 eggjarauða
1 msk. sykur
2 msk. Emmess appelsinu- eða
vanilluis.
Þeytið saman mjólk og eggja-
rauðu. Blandið öllu hinu samar
við og þeytið. Notiðalltaf iskaldc
mjólk i alla ísdrykki.
Templar
6 cl. Tropicana
2 cl Mai Tái Mix (Holland House
1 cl pönnukökusiróp
Fyllt með Seven-Up
Skreyting: +
AppeJsinusneiö,
ananasbitar,
rautt kirsuber, rauö rör.
Marfa Hilmarsdóttir
Ógnvekjandi
3 cl. Tropicana
3 cl si'trónusafi
2 cl rjómi
1 cl grenadine
1/2 pressuð appelsína
Skreyting:
Sftrónusneið,
rauð rck'
og súkkulaðispænir
Kristjón örn Kristjónsson
Prinsessan
6 cl Egilssafi
6 cl sódavatn
6 cl Tropicana
Skreyting:
rauð kokteilber,
dash af bl. ávaxtasafa frá Val
■ Um hátíðina er mikið um
heimsóknir á heimilum og er þá
gaman að bera hátiðlegt meðlæti
með kaffinu. Hér sýnum við á
myndinni fallega súkkulaðiköku,
hnetusmákökur með hjúpsúkku-
laði og koniakshringi.
Hentugra er að hafa smjör-
krem eða súkkulaði krem á
súkkulaöi-kökunni, því þá er
betra að geyma hana, en gott er
að bera þá sér fram þeyttan
rjóma ískál. 1 myndinni er þeytt-
umrjóma hellt yfir kökuna og lit-
að marsipan lagt yfir en skreyt-
ingin er skorin út úr marsipan og
rauðu kokkteilberi stungið inn i
hvert blóm.
Súkkulaðikaka:
(á glerfatinu)
200 gr. mjúkt smjör eða smjör-
liki, 250 gr sykur, 3 egg, 3/4 dl
rjómi, 4 tesk. kakó, 2 tesk.
vanillusykur, 1 1/2 tesk. lyftiduft
250 gr hveiti.
Smjör og sykur hrært vel
saman, og eggin hrærð út i eitt i
einu og siðan rjóminn. Þá eru
þurrefnin sett út í og allt hrært
saman. Deigið er sett i vel smurt
form. Það getur verið hvort sem
er hringlaga „springform”, eða
stórt sandkökuform leins og er á
myndinni), en ekki má setja
meira f formið en að það sé að 2/3
fullteöa svo. Ef kakan er bökuð i
sandkökuformi við ca. 160 gráðu
hita,erbökunartiminn áætlaður 1
klst.
Þegarkakan er oriSn velköld á
að skera hana eftir endilöngu i
þrjá parta og siðan sett smjör-
krem, eöa annaö krem á milli og
skreytt að vild.
Hnetusmákökur
(i glerdiskinum á fæti)
125 gr hakkaöir hnetukjarnar,
100 gr sykur, 100 gr smjör, 50 gr.
fint saxað súkkat, 125 gr hveiti.
Hjúpsúkkulaði og glassúr-krem
litað til að skreyta kökurnar með.
(áætlaðar 50 kökur).
Sykur, hnetukjarnarnir og
súkkatið er hnoðað saman við
smjörið og hveitið. Allt hnoðað
vel saman og siðan rúllað saman
isivalning.sem er aðeins þykkari
en venjulegt kústskaft. Deigið er
svo geymt i isskáp 1/2-1 tfma.
Siðan er það skorið i smákökur,
sem settar eru á smjörpappir á
plötu og bakaðar við 200 gr hita i
ca 8 minútur. Kökumar eru
penslaðar með bráðnu hjúp-
súkkulaöi og puntaðar með smá-
dropa af lituðum glassúr (eða
smarties).
Koniakshringir
(á laufblaðs-diskinum)
200 gr smjör (eða smjörlíki),
250 gr. hveiti, 75 gr sykur, 2
eggjarauður, 2 snafsglös koniak.
Til skrauts ofan á : egg, valhnetu-
kjarnar og sykur. (Ca. 50 stk.)
Smjörið er blandað saman viö
hveitið, sykur settsaman við. Þá
er deigið hnoðað með eggjarauð-
unum og koniakinu. Deigið er
siðan látiö biða um stund i kulda,
en svo breitt út á borö og stungnir
út hrihgir með tveimur stæröum
afglösum. Hringirnir eru settir á
smjörpappir á bökunarplötu,
penslaðir mtí) hrærðu eggi og
siöan sáldraðyfir hökkuðum val-
hnetukjörnum og sykri.
Hringimir eru bakaöir við 200
gráðu hitaí um það bil 10 minút-
ur. Liklega er best að halda
konfaksliringjum frá börnum og
aðvara þá sem alls ekki vilja —
eða þola — að fá minnsta magn af
alkóhóU i blóðið. Sagt er að það
geti verið afdrifaríkt fyrir alkó-
hólista að finna svo mikiö sem
vinbragðið i kökum eða mat.
og koniakshringir.
■ Karsa er auðvelt að rækta
inni í gluggakistu. Hann
lætur sér nægja votan pappir
eða bóinull til að spretta á.
Bragðið er sterkt og krydd-
að. Klippið karsa yfir
smurða brauðið, eða notið
hann á sama hátt og stein-
selju og dill, klippið hann yfir
matinn til bragöbætis.
■ Fonduegafflar eru oft
m jög hvassir og beittir til að
ganga vel i kjötið og þvf ekki
gott að geyma þá i skúffu
með öðrum hnffapörum.
Hægt er að útbúa ágætis
geymslu fyrir gafflana úr
papparúllu undan eldhús-
þurrkum eða minni tegund-
inni af áipappir. Fallegt er
að líma ,,contact”-pappfr
eða einhvern skrautlegan
pappir utan um rúlluna og fá
svo hæfilega korktappa i
báða enda. Þá er komin góð
geymsla fyrir fonduc-gaffl-
ana.